Alþýðublaðið - 07.02.1963, Blaðsíða 7
mm ' BALMAÍ^
SííS Ö. -M ' i, ■ ■
DIOR
' /vV” :^í;>íV •
RÍCCI ■
NÝJA tízkan birtist í Patís
þessa dagana. Því miður höfum
við ekki nöstöðu til að fylgjast
með sýningunum í hinum
gullnu sölum Parísarborgar.
Við hér úti í íshafi verðum
að láta okkur nsegja myndir
og teikningar utan úr hinum
stóra heimi.
Tízkuteiknararnir í París
eru eins og mý á mykjuskán.
Hver og einn kemur með sína
línu. Svo er það duttlungum
auðkvcnnanna undirorpið, hver
er hrifinn upp til skýjanna á
hverju ári.
í rauninni er það eintóm
blekking að tala um tízku, og
ekkert er eins óviðeigandi og
þegar afgreiðslustúlkur í
verzlunum reyna að koma vöru
sinni út með því að fullyrða,
að „þetta sé í tízku.“ „Tízka“
hverrar konu er hennar eigin
smekkur, og hann er sá hæsti-
réttur, sem öllu varðar.
Að því er segir í erlendum
folöðum, var það Bohan, eft-
írmaður Diors gamla, sem kom
— sá og sigraði — í þetta
skipti. Aðallínan hjá honum
var: brciðar axlh’ en grannar
mjaðmir; sem sagt nokkurs
konar þríhvrningslína.
Diordragtin var með hvelfd-
um öxlum, þröngum ermum,
rúnnuðum krögum, lausum frá
hálsinum. Pilsin eru mörg með
haeversklegri strokkvídd eða
ofurlítið útsniðin. Síddin er
eins og í fyrra, rétt neðan við
hnéð.
★
Jakkamir eru ýmist stuttir
eða síðir og undir þeim bera
tízkumoyjarnar alsilki blúss-
ur. Sum dragtarpilsin eru með
fellingum að framan. eða aftan,
eða hvoru tveggja, eða jafnvel
allt um kring. Og litirnir:
grátt, hvítt, svart og dökkblátt.
Bohan hefur lítinn jakka með
dagkjólunum, — en kjólamir
eru flestir ermalausir og mjög
einfaldir í sniðum.
Kvöldkjólarnir eru ýmist
hnéstuttir, ökklasíðir eða al-
síðir. Stuttu kvöldkjólarnir eru
mjög mikið skreyttir ýmis kon
ar glitsteinum og bróderíi.
Ökklasíðu kjólarnir eru
brúsandi og léttir eins og ský,
úr doppóttu alsilki, knippling-
um eða einhverju slíku. (Nylon
sokkarnir eru með „húðlit” í
ár, — dökkir sokkar og abri-
kóslitir tilheyra liðnum tíma).
Alsíðir kjólar eru nú saum-
aðir úr stórrósóttu lérefti og
útbróderuðum efnum.
Dior-kápan er hálfþröng, en
þó ekki eins þröng og í fyrra.
Kragarnir eru mjóir og liggja
ekki þétt að hálsinum, og belti
sjást ekki nema á kápum, sem
voru með víðum ísettum erm-
Pelsjakkar vorsins em úr
ýmsum skinnum, og hattamir,
allt frá strákakaskeitum upp í
gífurlega hjálma, sem slúta
yfir andlitið.
★
Brúðurinn . var
tjulli og organza.
í hvítu
Og svo var skálað fyrir Bo-
han í ósviknu frönsku kampa-
víni!
JACQUES HEIM er aftur
kominn með ermarnar á sinn
stað, hvort heldur það er á
morgun-, síðdegis- eða kvöld-
fatnaðinum, og jafnframt
stækka ermarnar eftir því sem
líður á daginn, þar til þær
allt að því sópa gólfin undir
nóttina. Sýningarstúlkurnar
hans báru hárbrúska við eyrun
til að hlýja sér í kvöldkulinu,
en hárgreiðslumeistarinn Al-
exandre á heiðurinn af þessum
eyrnaskjólum og er það cftir
smekk, hvort hinar fínu dömur
bera hár í sama lit og þeirra
eigið hár eða þær fá sér nýj-
anJit á eyruní
Patou sýndi síð bómullarpils
í rauðum lit, — sem nota
á í sumarleyfinu af þeim fínu
stúlkum, sem ekki vilja láta
sjá sig á síðbuxum. Við þessi
pils ber að hafa svartar peys-
ur. Skómir voru háhælaðir en
hælkappalausir. foessi búnaður
var ætlaður fyrir húsmóður í
sumarbústað eða eitthvað slíkt.
En Dior skildi, hvað skyrtu-
blússukjóll kemur sér vel!
- § -
Litir Dior eru: stálgrátt,
dökkblátt og alla vega grænt;
svart og hvítt — á kvoldin,
sömulelðis rósrautt og sterk-
ur sítróngulur litur. í hvítu
eruð þið á grænni grein dag-
inn út og inn.
Kjólarnir eru glannalega
flegnir að aftan í ár.
— § -
Ungar stúlkur eiga að mála
varirnar með Ijósum Iit, éi»
teikna útlínurnar upp meÖT
mjórri, ljósrauðri línu, segir
Bohan.
- § -
Sokkarnir eiga að vera sto
þunnir og líkir húðinni, að það
sjáist ekki hvort stúlkan er I
sokkum eða sokkalaus.
- § -
En hversu sjálfstæðar, sem.
við viljum vera, tekur undír-
vitundin eftir línunum: f -á
París, London, New York. Og
við hagnýtum okkur hugmynl-
irnar eftir því, sem fjárhagur-
inn og framkvæmdasemin býð-
ur.
Dragtir: stuttir jakkar, — hóflega víð pils.
Popajakkar með enrnim, sem eru mjög víðar efst og strokkpils.
Kjólar: ermalausir, sniðnir út í eitt, beltislausir, oft með samstæðum
jakka. Sídd: hnéð falið.
Barmur: lítið aberandi.
Mjaðmir: grannar.
Kragar: litlir og lausir frá halsiniim.
Ermar: hvelfdar axlir, ermasaumurinn á háöxlinni, þröngar ermar.
Framlengd; fram að olnboga.
Bak: nakið.
Litir: hvítt, dökkblátt, svart.
s
V
s
s
s
>
s
s
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
V
s
s
um.
ALÞÝÐUBÍAÐH) - 7. íebrúar 1963 f