Alþýðublaðið - 07.02.1963, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 07.02.1963, Blaðsíða 11
Dómaranámskeið og dómarafélag í Valbjörn 4,33 VALBJÖRN Þorláksson stökk 4.33 m. á stangarstökksmótinu í gærkvöldi. Er það nýtt met. Gamla metiff var 4.30 m. NÚ stendur yfir dómaranámskeið á vegum Dómara og laganefndar KKÍ. Þátttaka hefur- verið allgóð og nú þegar hafa 10 piltar og ein stúlka lokið skriflegum prófum. Fimm eiga ólokið prófum. Verk- legu prófin verða í sambandi við íslandsmótið í körfuknattleik. — Mikill skortur hefur verið á hæf- um dómurum og við skulum vona, að þetta námskeið bæti eitthvað úr. Næsta mál körfuknattleiksdóm- ara er stofnun dómarafélags. & Sveinaog Unglinga mót í frjálsíþróttum Unglingamótiff á Selfossi. Um næstu helgi fer fram Drengja- meistaramót íslands hér í Rvík og verður keppt í íþróttahúsi Háskól- anS. 18. febrúar næstkomandi verð ur Sveinameistaramót íslands inn- anhúss háð á Akranesi. Keppt verður í langstökki hástökki og þrístökki án atrennu og hástökki með atrennu. Þátttaka tilkynnist Guðmundi Svelnbjörnssyni, for- manni ÍA í síðasta lagi 15. febrú- ar. Unglingamótið fer fram á Sel- fossi 24. febr. og verður keppt í langstökki, hástökki og þrístökki án atrennu, hástökki með atrennu, kúluvarpi og stangarstökki. Keppn in í síðasttöldu fer þó fram í Rvík. Þátttökutilkynningar sendist Haf- steini Þorvaldss. c/o Umf. Selfoss Landsliöiö sigraöi 24:23 í GÆRKVÖLDI sigraffi landsliffið í handknattleik liff sem íþrótta- fréttamenn hafa valiff meff 24 mörkum gegn 23. í fyrri hálfleik skoraði landsliðiff 12 mörk gegn 10 mörkum pressuliffsins. Evrópumót ungl- inga i Frakklandi BOGI Þorsteinsson skýrði frá þvi á fundi með íþróttafréttamönnum í gær, að áætlanir KKÍ um þátt- töku í Evrópumóti unglinga hefðu nokkuð breytzt, þannig að nú hefðu Bretar tilkynnt, að þeir gætu ekki haldið mótið. Frakkar og Spánverjar hafa því boffizt til að hlaupa í skarðið. Framkvæmda- nefnd mótsins hélt fund um þetta mál um síðustu mánaðamót og ís- lendingar munu taka þátt ef á- kveðnum skilyrðum verður full- nægt. Vonandi heyrist fljótlega frá framkvæmdanefndinni. Rannsóknarkona óskast Rannsóknarkona óskast nú þegar til starfa í Kleppsspital- ann hálfan eða allan daginn. Laun samkvæmt reglum um laun opinberra starfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fyrri störf sendist Skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 15. febrúar n.k. Reykjavík, 5. febrúar 1963. Skrifstofa ríkisspítalanna. hreyfilhitarinn meff hitastilli Smiðjubúðin við Háteigsveg Sími 10033. Alfcýðublaðið vantar unglinga til að bera blaðiö til áskri' enda í þessum hverfum- Laufásvegi Afgreiðsla Alþýðublaðslns Símí 14-900. Nýkomið Gott og ódýrt kjólafóður, margir litir. Einnig mikið úrval af ódýrum kjólefnum. Verzlunin Snjót Vesturgötu 17. Gæruúlpur Aðeins kr. 990.00. Verzlunin ...j WSTKÍSl'llllíl'ili'VllÍ Miklatorgi. DAGSKRÁ Skíðamóts Reykja- víkur 1963. Við Skíðaskála ÍR í Hamragili: Laugardagur 23. febrúar: Kl. 11.00 Mótið sett í Skíðaskála ÍR. Nafnakall fyrir stórsvig strax á eftir. Kl. 14.00 Stórsvig, allir flokkar. Kl. 16.00 Ganga í norrænni tví- keppni. Sunnudagur 24. febr. Kl. lO.OOGuðsþjónusta í skálanum. Kl. 11.00 Svig A og B flokkur og kvennaflokkur. Kl. 15.30 Stökk. I Laugardagur 2. marz. i Kl. 15.00 Boðganga 4x5 km. Kl. 16.30 Svig C-flokkur og drengjaflokkur og stúlknaflokk- ur. Sunnudagur 3. marz. Kl. 10.00 Brun, drengjaflokkur og kvennaflokkur. Kl. 11.00 Stökk, norræn tví- keppni. Kl. 14.00 Brun, A, B og C flokkar. Réttur til að breyta dagskránni er áskilinn, ef vetur og snjóalög gefa tilefni til þess. Þátttökutilkynningar skulu hafa borizt Skíðadeild ÍR, pósthólf' 1333 eða á skrifstofu félagsins í IR húsinu fyrir mánudaginn 11. marz. Skíffadeild ÍR.- SUNDMÓT KR verður haldið í Sundhöll Rvíkur 27. febrúar n. k. kl. 8.30 e. h. Keppt verður í þessum greinum: 100 m bringusundi karla Sindrabikar. 200 m skriðsundi kai’la. 50 m baksundi karla 50 m flugsundi karla 100 m skriðsundi kvenna Flugfreyjubikar 100 m bringusundi kvenna 100 m skriðsundi drengja 50 m bringusundi drengja 50 m bringusundi telpna 50 m bringusundi sveina 3x50 m þrísundi karla Þátttaka skal tilkynnt Jóni Ottó Jónssyni, Vesturgötu 36A, Sími 14061 í síðasta lagi 20. febr. n. k. Akranes og nágrenni ii g er-kynning Kaupfélag Suður-Borgfirffinga gengst fyrir kynningu á Singer-sauma- og prjónavélum í vefnaffarvörubúff sinni n.k. helgi á þeim tíma, sem hér segir: LAUGARDAG 9. febrúar kl. 3—6 e.h. SUNNUDAG 10. febrúar kl. 2—6 e. h. Á sýningunni starfa 2 konur, sem sýna fjölhæfni vélanna || og Ieiffbeina um notkun þeirra. g Þar verður einnig staddur sérfræffingur í viffgerðum Sing- er-véla og er fólk bent á aff hitta hann til aff fá eldri vélar yfirfarnar, ef meff þarf. Notiff þetta einstæffa tækifæri til aff kynnast nýjustu gerff- um þessara heimsfrægu véla, sem leysa flókin verkefni i saumum og prjóni á auðveldan hátt og fljótvirkan. Kaupfélag S-Borgfirðinga Véladeild S./.S. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 7. febrúar 1963 fj,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.