Alþýðublaðið - 12.02.1963, Síða 16

Alþýðublaðið - 12.02.1963, Síða 16
ÞETTA SOGÐU ÞEIR HUS'AVIK í gær. IVoríiurlandsborinn borar hér í ákata íiff var kominn niður á 500 < metra í gærkvöldi. Hitinn i hol- uuni hefur komizt upp í 74 gráð- lir. Borunin fer fram í suáur- brún Laugardals í austanverðum Húsavík.urli()í‘ða, og er fyrst unn ' ið við 65 metra djúpa borholii, er tilraunabor gerði í fyrra. Hingað er kominn nýr prestur, -,-og.þykir hann nokkuð siðavand- -ur. Sagt er, að hann hafi neitað að gifta hjónaleysi sökum þess, . að sannast hafði upp á þau, að - þau hefðu lifað í synd, — enda áttu þau barn saman. Sagt er, að i hann hafi farið í hús hér á Húsa- vík og brýnt fyrir mönnum að ‘ ba-ta hegðan sína, enda lízt hon- • Uni ástandið ískyggilegt hér á - -stáðnum. Hann hefur haft það við orð, að lifinu væri hér lifað á~þann veg, að helzt mætti líkja 1 Húsavik við einn allsherjar Á hænsnagarð. Húsvíkingar eru - ekká aiiir ánægðir með þennan i vitnisburð. — e.j. AKUREYRI. - Skipásmíðastöð Kr. Nóa Kristj áassoiíar sjósetur um þessar 'mundir 3ja lesta bát. Eigendur - eru þeir Bergsteinn Garðarsson -~.Og KárT Hjálmarsson, Akureyri. ^Báturirm er búinn dýptarmæli og öSrum venjulegum siglingatækj v'uniy *og er hann hinn fullkomn- astitoað, búnaði. Báturinn mun ' verða nötaður til veiða á Eyja- -firði' i—iætur og framvegis. - ' Frá þessu segir í Akureyrar- * blaðinu ísfirðingur. ísfirðingur segir einnig frá 'því, áð tveir bæir, sem komnir ’. voru í' eyði s Sléttuhlíð í'Skaga- ' firði IiaTí' byggzt á síðasfa ári. ' Þykir Slétthreppingum þetta að vonum góðar fréttir. Búin í Sléttu -hrepp eru nú óðum að færast í það horf, að framleiða mjólk, — ~enda- er nú gott vegasamband þaðan til - Sauðárkróks. íg.. Rfepntaskólanemar á Akureyri r. sýnamá.sjónleikiim Brúðkaup og vBotulÍsmi (matareitrun) eftir - brteiká leikritahöfundinn, Kenn- g.ethv-Hörúe. Leikurinn gerizt í S- ^■Esglahdi. Er í þrem þáttum og hlutverkum er þannig skipað: — J'Ffú' O'Connor ráðskona, Berg- þóra Einarsdóttir, Dugdle, gest- •'úr, Jónas Mattiiíasson, Claud, brúðgumi, Sigurður H. Guðm., Andrea brúður, Elinborg Björns- dóttir, Geirþrúður frænka, María Jóhanna Lárusdóttir, Brigga .blaðakona, Jóhanna Hjörleifs- dóttir og Ron blaðaljósmyndari, Amar Einarsson. Sævar Helgason frá Keflavík er leikstjóri að þessu sinni, en þetta er 18 leikurinn, sem leik- félag Menntaskólans sýnir frá því Menntaskólasýningar hóf- ust. BORGARNESI, 6. febr. Tíðarfar hefur verið mjög gott frá því um jól og þar til nú fyrir nokkrum dögum, að kólnaði. — Frost komst upp í um og yfir 10 stig. Dálitlar rafmagnstruflanir hafa orðiS nú í vikunni vegna bilana á aðreimslisrörum við Andakíi, og höfum við bjargast á Sogsraf- magni. Nokkrar skemmdir urðu á rafmótorum vegna spennufalis. Horfur eru á miklum fram- kvæmdum hér í sumar, svo sem viðbyggingu við skóla, framkald gatnagerðar og mörg íbúðarhús eru og verða í byggingu. Þar á meðal verður byggt talsvert á vegum Byggingarfélags, sem nú hefur fengið fjármagn frá Bygg- ingarsjóði verkamanna. Unnið hefur verið af krafti aff byggingu verksmiðjuhúss hér í vetur fyrir Galvanstækni. Atvinnurekendur og verkalýðs félagið hafa samið um sömu kjör og með sama fyryirvara og önnur félög, 5% — óbundið. j í byrjun þorra hélt kvenfélag Borgarness þorrablót og fór það hið bezta frarn. — g.í. SÚÐAVÍK í gær. Héðan róa þrír bátar. Afliþn liefur verið fremur lélegur, (jn sökum þess, hve fátt fólk er hér lieima, er nóg að gera í plássinu. Veðrið liefur verið fremur leið- inlegt að undanförnu, — en ann- ars allt sæmilegt að frétta. - a.k. HÖFN í HORNAFIRDI. Laugardaginn 9. febrúar var félagsheimilið á Höfn vígt. Er hús þetta stórt og mikið 2ja hæða hús með kjallara undir noklcurn hluta þess. Grunnflötur lmssins er um 460 fermetrar. — Neðri hæð er þannig skipt: Fyrst er anddyri, miðasala og fata- geymsla, þá forsalur um 50 ferm, og til hlíðar við hann, snyrtiher- bergi karla og kvenna, þá lcemur nðalsalur með um 122 metra gólfflöt, við enda hans er leið- sviðið með 63 ferm. gólffleti inn an við tjald. Til hliðar við aðal- sal er veitingasalur, 64 femi. gólf, og við enda hans nýtízku eldhús með öllum þægindum nú- tímans. Til hliðar við leiksviðið eru tvö búningsherbergi og í kjallara er eitt. Milli aUra sala eru fyrirferðalitlar skothurðir. Yfir forsal eru svalir, að baki þeim kvikmyndasýningarklefi. Yfir nokkrum hluta hússins er önnur hæð og er þar einn fund- ársalur og fjögur herbergi, sem félög kauptúnsins fá afnot af. I kjallara ern geymslur, kynding- arherbergi og hlástursklefi, því húsiff er lofthitað. Gólf I aðal- sal er birkiparkett, en kaffisalur, forsalur, eldhús og gangar eru flísalagðir. Stigar og svalir er teppalagt. í lofti er Armstrong hljóðeinangrun. í aðalsal eru sæti fyrir um 200 manns, en á svölum fyrir 68, þá má og bæta forsal viff, ef með þarf og yrðu þar sæti fyrir um 50-60 manns. Um bygginguna hefur séð Guðmundur Jónsson byggingameistari, Höfn. Raflagn ir hefur annast Björn Gíslason, rafvirkjameistari, Höfn, Pípu- lagnir gerði verkstæffið Neisti á Höfn, Málningu annaffist Bjarni Henriksson, málarameistari, Höfn, Innréttingar í eldhús eru frá Trésmiðju Homafjarffar, en stólar og borð í veitingasal, svo og stólar í aðalsal og á svalir eru frá Stálhúsgögn, Reykjavík. Að byggingu hússins standa Hafnarhreppur og ýmis félög innan hreppsins. Fullbúið mun húsið kosta um 5,5 milljónir kr. Forstoðumaffur hefur verið ráð- inn Hreinn Eiríksson frá Miff- skeri. 1955 var hafist handa um byggingu þessa fyrir forgöngu Umf. Sindra á Höfn, en fram til þessa má heita að Hafnarbúar hafi verið án samkomuhúss. Hef ur verið bjargast við bragga, er Sindri keypti af setuliðinu hér í stríðslok — fyrir kvikmynda- hús og samkomuhús, en braggi þessi er nú orðinn ónothæfur. Mega Hafnarbúar því gleðjast ýfir þessu nýja og veglega félags heimili,. Kr. Áhöldum stolið lír jarðýtum EINHVERJIR skálkar hafa íarið á stúfana yfir helgina og fcrotizt imi í fjórar ýtur frá Vega- *rerð ríkisins, þar sem þeir stálu torsiu af lyklum og alls konar nyt- samlegum verkfærum. Tvær ýtur stóðu í Hvassahrauni, en hinar voru rétt hjá Leirvogstungum í Mosfellssveit, og hjá Straumi fyr- ir sunnan Hafnarfjörð. Ýmist var brotizt inn í ýturnar með því áð ski-úfa húnana af þeim eða með þeim hætti, að skríða niður um lugu á þaki stýrishúss. Allmiklu af vegavinnuáliöldum hefur einn- Framli. á 5. síðu > 44. árg. — ÞriSjudagur 12. febrúar 19G3 — 34. tbl. Mikill sigur lýðræðissinna í Múraraféiaginu Togari strandar Bolungarvík í gr: í dag kl. 12.50 strandaði hér brezki togarinn Steiia Procyon frá Hull 184. Hann sigldi beint upp á grynningar og tók niðri. Veður var bjart. Togarinn var strandaður í um 40 mínútur, en náði sér þá út af eighx rammleik. togarinn var á leið til ísa- fjarðar til að ná í kost, og ... að hann losnaði. — Ingimui dur. niMVMMMUHMMMMtMUWI KOSNING stjórnar- og trúnað- armannaráðs Múrarafélags Reykja víkur fór fram um helgina, og kusu 210 féiagsmenn af um 230 á kjörskrá. Úrslit urðu þau, að A- listi, fráfarandi stjórnar, hlaut 128 atkvæði, en B-listi, kommún- ista, hlaut 78 atkvæði. Fjórir seðl- ar voru auðir, A-listinn hlaut því alla menn kjörna. Við síðasta stjórnarkjör hlaut A- listinn 114 atkvæði, en kommún- istar 74, og voru þá tveir seðlar auðir (190 kusu). Kommúnistar gerðu nú allt hvað þeirj gátu til að auka fylgi sitt, en árángurinn varð ekki meiri en raun ber vitni um. Hefur mismunurinn við stjóm arkjör aldrei verið meiri en nú, eða .50 atkvæði. Stjórn og trúnaðarmannaráð Múrarafélags Reykjavíkur fyrir næsta ár eru því þannig skipuð: Einar Jónsson form. Hilmar Guðmundsson varaform. Jörundur Guðláugsson ritari, Jón V. Tryggva son gjaldkeri félagssjóðs og Svav- ar Höskuldsson gjaldkeri styrkt- arsjóðs. — Varastjórn: Helgi S. Karlsson, Kristján Haraldsson og Snæbjörn Þ. Snæbjörnsson. Trún- aðarmannaráð: Jón G. S. Jónsson, .Tóhannes Ögmundsson, Jón R. Guðjónsson, Sigurjón Sveinsson, Tryggvi Halldórsson og Þórir Guðnason. Til vai;a: Hilmar Guð- jónsson, Þorsteinn Einarsson og Sigurður G. Sigurðsson. GENF 11. febrúar (NTB-Reuter). Skömmu áður en 17-veldaráðstefn- an hefst á morgun munu hlutlausu ríkin . eiga einkaviðræður við Rússa; um vandamáliff varðandi bann við tilraunum með kjarnorku- vopn að beiðni hinna síðarnefndu. Jafnframt þe^su liefur frétta- stofan Tass sent út yfirlýsingu þar sem Rússar kenna vesturveld- unum um að upp úr einkaviðræö- um vesturveldanna og,Rússa um af vopnun hafi -litnað. BRÁÐDREPANDI SAUÐFJÁRVEÍKI I MÝVATNSSVEIT Tuttugu og sjö ær li^ifa drepizt á báenum Litiu-Strönd í Mývatns sveit óg nokkrar kindur hafa farii^. úr sömu veiki í Álftagerði í sönír sveit. Talið er, að um einhvers- konár heyeitrun sé að ræðá, — í súrheyi eða þurrheyi. Blaðið átti í gær tal við Gísla Árnason bónda á Helluvaði í Mý- vatnssveit og spurði hann frétta af þessari veiki í sauðfénu. Gísli sagði, að bændur hefðu fengið lyf gegn veikinni, og virtist svo sem •lyfið slægi á veikina. En samt drápust nokkrar ær eftir að lyfið var fengið. Gísli sagði, að veiki sem þessi væri stundum nefnd Hvanneyrarveiki, en sams konar veiki kom upp á Hvanneyri í Borg arfirði ekki alls fyrir löngu. Sum ir vildu kenna súrheyinu um, en aðrir hefði á það bent, að ekki virtist minni hætta stafa af þurr- heyinu. Ýmsir vilja telja þessa veiki smitandi, en aðrir benda á það, að það fari mest eftir ásig- komulagi kindanna, hvort þær taka .^ybikina og fara il.la út úr henni — úða ekki. Gísli sagði, að þessi veiki stingi ser víða niður á vetrum, en Mý- vetnskir bændur hefðu aldrei bqð- ið fyrr siíkt afhroð af völdum hennar og Litlu-Strandarmenn hafa nú orðið fyrir^ Á Litlu-Strönd 'býr Kristján Jónsson og synir hans.' Gísli Ámason á Heliuvaði segir, að einmunatíð hafi verið nyrðra í vetur og bændur liafi beitt sauðfé sínu léngur og meir en venja er til. Mikill fóðurbætir hefur verið notaður með beitinni en heyin spör uð, enda heyjaðist víðást livar slæ- lega í sumar, og bændur því illa birgir. Vegasambönd eru með afbrigð- um góð, sagði Gísli, — og hvergi teljandi svell á vegum. En um snjó er naumast að tala norður þar.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.