Alþýðublaðið - 13.02.1963, Page 1
SÆVALDUR SU 2:
ÞAÐ mun láta nærri, að
Reykvíkingar einir fari með
tæpar tíu milljónir króna í
leigubifreiðir á ári. Mestur
liluti þessarar miklu f járhæðar
er fé, er Ieigubifreiðastjórar
vinna sér inn um helgar, við að
aka fólki, ungu og gömlu, um
borgina á skemmtistaði og af.
Nærri 600 menn hafa réttindi
til þess að aka á bifreiðastöð,
en þó eru ekki svo margir, sem
hafa leiguakstur að aðalatvinnu.
Þeir munu vera rúmlega 400
talsins. Eftir því sem bezt er vit-
að, ekur duglegur leigubifreið-
arstjóri allt að því 16-18 tíma á
sólarhring, og þykir ekld gott
nema að fá 25 þúsund krónur
brúttó fyrir slíkan vinnudag,
enda er þá tvennt sem kemur til
greina: mikil næturvinna og
talsverður rekstrarkostnaður.
Leigubifreiðarstjóri, sem far-
Framh. á 13. síðu
Myndin: Austurstræti — partur af „Rúntinum.” — Hér renna penrngarn-
ir örast gegnum leigubílana.
VÉLBÁTURINN Sævaldur SU 2
var tekinn að ólöglegum veiðum
í þrlðja sinn á þremur vikum 1.7
sjómflu innan landhelgistakmark-
anna undan Hjörleifshöfða. Einn-j
ig var tekinn að ólöglegum veið-
um 2.5 sjómílur innan landhelg-
istakmarkanna undan Meðallands
sandi vélbáturinn Frigg, VE 316.'
Það var varðskipið Þór, sem kom
að báðum bátunum að ólöglegum
veiðum um kl. 11,30 aðfaranótt
þriðjudags, og fór hann með þá
til Vestmannaeyja, þar sem rétt-
ur var settur í máli þeirra í gær.
Þegar í gær var skipstjórinn á
Frigg dæmdur í 20 þús. kr. sekt,
en ekki hefur enn verið kveðinn
upp dómur yfir Sævaldi SU 2.
Þegar báturinn var skoðaður,
kom í Ijós, að talstöð hans var
ínnsigluð, en bátum af þessari
stærð er óheimilt að róa án tal-
stöðvar. Einnig munu skoðunar-
pappírar bátsins hafa verið í ó-
lagi.
Einhver vafi virðist leika á því
hver hafi verið skipstjóri skips-
ins í þessari veiðiferð, þar sem
cnginn var munstraður sem slík-
ur. Þó hafði ekki sami maður
stjórn skipsins á hendi og þegar
það var tekið í hin tvö skiptin,
heldur var það bróðir þess manns.
Sævaldur SU 2 er gerður út frá
Framh. á 14. siðu
YFIR MÚRINN
ÞEGAR Harry Seidel var
dæmdur í ævilangt fangelsi í
Austur-Þýzkalandi fyrir að
hjálpa löndum sínum að flýja
til V-Berlínar, tók konan
hans við af honum. Hér er
hún í ræðustól í V-Berlin, en
i baksýn er stækkuð frétta-
mynd af ungri stúlku, sem
nýkomin er á flótta vestur
fyrir tjald. Hún syntl yfir
skurð, sem skilur borgarhluta
Vesturs og Austurs.
44. áFg.—MiSvikudagur 13. febrúar 1963 - 35. tbl.
ViS viljum vekja athygli á
þvf, að nýi dálkurffin okkar,
BÍLAR f UMFERÐ er í Opnu
SNN
Bjartari horfur
★ Washington, 12. febrúar.
(NTB-Reuter).
Kcnnedy forseti sagði í dag,
að horfurnar á því að gera sam-
komulag um bann við tilraunum
roeð kjarnorkuvopn væru bjart-
ari nú en áður, enda þótt eftir
væri að leysa erfið vandamál. Horf
urnar hefðu batnað er Krústjov
forsætisráðherrá viðurkenndi í
des. grundvallaratriðið um eftirlit
á staðnum. Yfirlýsing Kenncdys
var gefin út í sambandi við setn-
ingu afvopnimarráðstefnunnar í
Genf.