Alþýðublaðið - 13.02.1963, Síða 8

Alþýðublaðið - 13.02.1963, Síða 8
\ ALLT D LAGT D Ö N S K U sundin eru öll lögð. Ferjunum, sem annast samgöngur á milli eyjanna, gengur illa að komast leið- ar sinnar og sums staðar er ekki reynandi. ísbrjótarnir reyna að halda færum leiðum og með hjálp þeirra gengur skipaumferðin sæmilega. Mikil eftirspurn eftir lóðum í Kópavogi MIKIL eftirspurn er eftir lóðum í Kópavogi, og hefur mikill fjöldi umsókna um lóðir borizt bæjarskrifstof- um Kópavogs. Blaðið átti í gær tal við Pál Hanncsson bæjarverkfræðing og innti hann eftir hvemig horfurn- ar í byggingarmálum væru í Kópavogi. Hann sagði, að ekki væri lóðum úthlutað annars staðar nú heldur en á þcim stöðum, sem. skipu- lagðir væru og búið að byggja að miklu leyti á. — Væri því aðeins um cinstak- ar lóðir að ræða, þar sem óbyggt væri milli húsa, en ekki skipulögð nýbygginga- hverfi. ■■■ . HIN ÁKVEÐNA og óvænta af- staða de Gaulles á Briissel-fundin- um fræga gegn inngöngu Breta í Efnahagsbandalagið er ennþá aðal umræðuefni heimsblaðanna. Bretar og Bandaríkjamenn hafa sérstaklega bent á, að þessi nei- kvæða afstaða de Gaulles hafi fyrst komið fram, þegar ætla mátti, að málið væri að leysast. Þetta atriði hafa Frakkar ekki sérstaklega rætt í blöðum sínum. Hitt er greinilegt, að hvorki emb- ættismenn né stjórnmálamenn í Frakklandi hafa sýnt neina and- stöðu við stefnu de Gaulles í þessu máli. Svo er að sjá, sem afstaða forsetans njóti skilnings franskra stjómmálamanna úr ólíkustu flokkum. • Meðal franskra borgara, sem ekki hafa neinn áhuga á stjórn- málum er viðhorfið þetta: De Gaulle hefur á réttu að standa. Hvers vegna eiga Bretar ekki að ganga að sömu skilyrðum og aðrir? Hins vegar hafa aðferðir de Gaulle í málinu sætt gagnrýni. Bent hefur verið á, að enda þótt ekkert sérstakt hefði gerzt á Brús- selfundinum, hefðu sennilega sex mánuðir liðið, þar til málið hefði aftur komið til umræðna. Líklegt hefði verið, að á þessum tíma hefðu Bretar bókstaflega þreytzt. Þannig liefði niðurstaðan orðið sú sama, án þess að Frakkar þyrftu að taka afdrifaríkar ákvarðanir til málsins. Bent hefur verið á, að andstaðan gegn inngöngu Breta í bandalagið hefur stöðugt farið vaxandi hjá þeim heima fyrir. Sumir hafa haldið því fram, að Bahama-fundur þeirra Macmill- ans og Kennedy hafi verið orsök- in til framkomu de Gaulles í Brús- sel. Innan 48 klukkustunda féllust Bretar á það sjónarmið, að Banda ríkjamenn hefðu eftirlit með brezkum landvörnum, en í fimm mánuði hafa þeir haldið uppi vörn- um fyrir kjötið sitt og aðrar land- búnaðarafurðir. Er hægt að krefj- ast betri sönnunar fyrir því, að „umsköpun” Evrópu var alls ekki alvarlega meint af þeirra hálfu? Flestir eru þeirrar skoðunar, að hér sé ekki rétta skýringin á ferð- inni. Menn hallast fremur að þeirri skýringu, sém fram hefur komið hjá sjálfum de Gaulle. Hann hef- ur afdráttarlaust haldið því fram, að Bretar væru ekki nógu þrosk- aðir til að vera meðlimir í Efna- hagsbandalaginu. í franska blaðinu „La Monde” birtist nýlega athyglisverð grein, þar sem fullyrt er, að de Gaulle hafi þá skoðun, að hrörnun Bret- lands sem heimsveldis taki mjög SIGGA VIGGA OG TILVERAN Nýjar kenningar um upp- runa grískrar heimspeki KOMIN er út sjöunda bókin í bálki I Gunnars Dal, „Úr sögu heimspek- J innar. Þessi bók nefnist „Grískir j heimspekingur”. Er þar gefið stutt yfirlit yfir kenningar ellefu hinna eldri grísku heimspekinganna, og er um að ræða þá: Anaximander, Anaximenes, Pyþagpras, Xenofan- es, Parmenides, Zenó, Herakleidos, Anaxagoras, Empedokles, Ðemó- kritos og Protagoras. Um bókina stendur eftirfarandi á kápusíðu til skýringar á efni hennar og viðhorfum höfundar: „Þessi bók er árás á hina hefð- bundnu söguritun um uppruna grískrar heimspeki. Hér er gerð tilraun til að leiðrétta tvö þúsund og þrjú hundruð ára gamlan mis- skilning, sem hefst með söguföls- un Aristótelesar, og fræðimenn hafa apað hver eftir öðrum alveg fram á þennari dag, eins og sjá má í kennslubókum okkar og heim- spekiritum íslenzkum og erlendum. Heimspekin stekkur ekki, eins og gyðjan Pallas Aþena, fullsköp- uð út úr höfði þeirra manna, sem taldir eru fyrstu heimspekingar Vesturlanda. Hún á' sér sína for- tíð, og þar hefur hún sums staðar risið jafnhátt eða hærra. Þess vegna er ástæðulaust að líta á upp haf grískrar heimspeki, sem ein- hverja stökkbreytingu í sögu mannsandans, þar er aðeins um að ræða tiltölulega hægfara þróun menningar á vesturleið. Söguritar- ar framtíðarinnar gerðu því rétt 1 að hefja heimspekisögu sína að minnsta kosti ■ 3000 árum fyrr en nú tíðkast og hefja hana með heim speki hinna fornu menningarþjóða austursins. — Viðfangsefni hinna fyrstu heimspekinga Grikkja var: Hvað var fyrst? Hvað er það, sem allir hlutir eru komnir frá og er í öllum hlutum, þar sem tilveran er ein heild? Hér verður reynt að sýna fram á að þeir sem ritað hafa sögu heimspekinnar og fullyrða að heimspekingarnir í Miletos hafi svarað: 1) vatnið, 2) óskilgreind efnisblanda, 3) loftið, — hafi farið villir vegar og útskýrt kenningar þessara fornu heimspekinga í ljósi hugmyndakerfis, sem varð sérkenn andi fyrir Vesturlönd frá Aristó- telesi til okkar tíma, en ekki var til í tíð heimspekinganna þriggja í Miletos. Að sjálfsögðu eru fræðimenn að byrja áð vakna til skilnings á þess- ari mistúlkun. Kirk og Raven telja t. d. í bók sinni „The Presocatic Philosophers" (Cambridge 1957), að Aristoteles rangtúlki skoðanir hinna fy.rstu grísku héimspekinga. Höfundur þessarar bókar (Grískir heimspekingar) er samt einn ábyrg ur fyrir sjónarmiðum hennar, enda eru þau fyrst sett fram í dagblað- inu ,,Vísi“ í maí 1956, eða ári áður en bók þeirra Kirk og Raven kem- ur út“. „Auðvitað held óg að ég sé að villast. Haldið þið ai $ 13. febrúar 1963 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.