Alþýðublaðið - 17.03.1963, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 17.03.1963, Qupperneq 3
SUMARNAMSKEID IISLENZKRITUNGU HASKOLI Islands gengst fyrir sumarnámskei'öi í islenzkri tungu og bókmenntum á komandi sumri. Er það einkum ætlað Norðurlanda- stúdentum í norrænum málum og stendur yfir í sjö vikur, frá 2. á- gúst til 19. september. Námskeið þetta er þáttur í vaxandi samstarfi norrænna háskóla, en að því hef- ur Norræna menntamálanefndin m. a. stutt öfluglega. Ráðgerð eru árleg .sumarnám- Aðaífundur bifreiðasmiða AÐALFUNDUR Félags bifreiða smiða var haldinn 3. marz 1963. Fráfarandi formaður, Haraldur Þórðarson, baðst undan endur- kjöri og var Hrafnkell Gíslason kjörinn formaður. Aðrir í stjórn eru: Hrafnkell Þórðarson, Magn- ús Gíslason, Sigurður ísaksson og Eysteinn Jónsson. 3. marz s.l. átti Félag bifreiðasmiða 25 ára afmæli og var þess minnst með veglegu hófi í Þjóðleikliúskjallaranum. — í tileíni af afmælinu var Gunnar Björnsson kjörinn heiðursfélagi félagsins fýl’ir vel unnin störf fyr- ir félagið. skeið í dönsku, norsku og sænsku, og annast skólar hlutaðeigandi ! landa þau, en í íslenzku er ráðgert að hafa námskeið 3. hvert ár við Háskóla íslands. — Einnig munu finnskir háskólar annast hliðstæð námskeið í finnsku á ákveðnu ra- bili. Með þessari tilhögun gæfist hverjum stúdent í norrænum mál- um kostur á að læra til nokkurrar hlítar tungu þeirrar þjóðar, sem fyrir námskeiðinu gengst hverju sinni,, og kýnnast bókmenntum og ýmsum þáttum öðrum í menn- ingu hennar. Sú er von þeirra manna, sem frumkvæði eiga að námskeiðum þessum, að þau megi að sínu leyti verða til eflingar á gagnkvæmum skilningi hinna nor rænu bræðraþjóða. Alþingi hefur í fjarlögmu þessa árs veitt fé til að standa straum af kostnaði við námskeið þetta. Tilkynning um þátttöku þarf að berast í síðasta lagi hinn 15. maí n. k. Hana skal senda íslcnzkunám- skeiðinu, Háskóla íslands, Reykja- vík. Árni Böðvarsson, cand. mag., Nýja stúdentagarðinum, er fram- kvæmdastjóri námskeiðsins, og veitir hann allar nánari upplýs- ingar. Sumarnámskeið í íslenzku fyrir norræna stúdenta hafa áður verið haldin við Háskólann, síðast sum- arið 1959. Gekkst stúdentaráð Há- skólans fyrir því; var námskeiðið vel sótt og tókst hið bezta í alla staði. GLEYMA VONANDI verður sú breyting á eftir þetta, að við komumst í nánara samband við myndlistar- menn á Norðurlöndum, en þeir hafa mjög sterkan félagsskap sín á miili, sem auðveldar mjög aukin kynni bæði á milli mynd- listarmannanna sjálfra og fólks af list þeirra. Myndlistarmenn á Noröurlöndunum eiga til dæm- is hús í bræðralöndunum, þar sem þeir geta sýnt og dvalizt, livenær sem er. Við höfum fram til þessa ekki verið með í þess- ari samvinnu, en núna eftir sýn- ineuna í Helsinki vonumst við til að þetta breytist. Við búum svo langt úti í hafi, að við eig- um alltaf á hættu að gleymast. Þetta sagði Jóhannes Jóhann- esson, listmálari og gullsmiður, I viðtali við blaðið í gær, en hann) er nýkominn heiin frá norrænu j listsýningunni í Helsinki, sem stendur yfir þessa dagana. Þar j eru 449 verk til sýnis frá Norð- urlandaþjóðunum fimm, en 62 verk frá íslandi. — Fannst þér verk íslending- anna skera sig að einhverju leyti úr? — Nei, alls ekki. Mér fannst einmitt mjög áberandi, að sami tendensinn vera meðal lista- manna allra þessara þjóða. — Og hvernig er hann? — Þarna varð vart allra mögu- Iegra stefna, en hin non-figúral- ! íva virðist þó á sífelldri uppleið. Það er áberandi, að þróunin stefn I ir í þá átt. I Á sýningunni í Gautaborg fyr- •* ir fimm eða sex árum voru non- figurativar myndir í miklum minnihluta. Nú bar mest á þeirh. — En liljóta þær ekki að eiga sinn hápúnkt og síðan undan- hald eins og allt slíkt? — Það má vel vera. JÓHANNES JÓHANNESSON — Hvað kemur þá? — Það er erfitt að segja. — Sást ydda á nokkru alveg nýju, sem gæti verið fyrirboði þess, sem koma skal? — Það eí erfitt fyrir mig að dæma um það, því að ég var of mikið á kafi í þessu. Við unn- um að því að koma sýningunni upp og erum því kannski ekki nógu skarpir dómarar. — Er mikill áhugi fyrir mynd- list í Finnlandi? — Mjög mikill, að því er virð- ist. Sýningin var vel sótt og við- brögð fólksins góð. Finúarnir liöfðu unnið sitt verk mjög vel, auglýst sýninguna bæði með blaðagreinum og auglýsinga- spjöldum, sem fest voru upp víðs vegar um borgina. — Voru þá greinar um ísland í finnskum blöðum? — Já, Valtvr Pét”rsson skrif- aði grein um ís’enzka myndlist, og þótt hann hefði skamman tíma til undirf’únings, mæltist greinin vel fvrir. — Sástn déma nm íslfcnzku verkin á sýn*ngnnni í finnskiun blöðum? — Nei, aðe'ns fréttir, j— en aftur á móti sá ég dóma í dönsku blöðijnum. og voru vfirleitt vinsamlegir. Valtvr Pétdrsson féltk t. d. m.iög góða gagnrýni f Aktuelt. — F.'va málara? — Já, áeæta málara og góða myndhöggvnra og ark'tekta. Það er áherandi mik'ð öf höggmynd- um víðs vegar í borginni í görð- um og á torgi'm. og bamk eru margar fagrar byggingar. J — Var kait í Helsinki? — Já, það var 15 stiga frost þar á sunnudaginn, en veðrið var stillt, svo að kuldinn var ekki napur. En við ókum út fyrir borg- ina einn daginn, þar var kafsnjór og við lentum í hríð. — Og komið heim í sólskin- ið. — H. lökkviliðið efl- runavarnir VARASLÖKKVILIÐSSTJÓRIí Sigurður Gunnar Sigurðsson, kall aði blaðamenn á sinn fund í gær og sýndi þeim nýtt tæki, sem ætl að er til að vara menn við, ef eld- ur brýzt út. Tækiö er lítið fyrir- ferðar, og gefur merki um hættu, e£ hiti við þaði íer yfir 70°C. Á þessu tæki er lítii fjöður. Ef fjöðr in hitnar yfir 70°C, færist endi hennar að snertu, en við það opn- ast straumrás frá rafhlöðum að flautu, sem gefur frá sér skerandi" hljóð. Tæki þetta er mikið notað í bátnum nú orðið. Skipaskoðun |ríkisins krefst þess að þau séu í hverjum báti og það hefur þegar bjargað einum báti. Það var í Hafnarfirði á gamlárskvöld síðast- liðnu. Kviknaði þá í m. s. Víking, sem lá þar við bryggju. Þrír dreng ir voru þar á ferð og tók einn þeirra cftir einkennilegu hljóði • og er þeir athuguð betur, sáu þeir ; að reyk lagði upp úr lúkar báts- ins on gerðu þeir þegar slökkvilið inu aðvart. Telja má fullvíst, að i illa hefði farið, ef tæki þetta hefði | ekki verið í bátnum. I Tæki þetta má einnig nota, t. d í miðstöðvarherbergjum húsa Má telja það jafn nauðsynlegt og slökkvitæki, einkum í timburhús- um, þar sem eldhætta er mjög niikil. Tækið á að staðsetja í miðstöðv arklefanum, þar sem líkur eru fyr ir að hitinn verði. mestur, en það er undir flestum kringumstæðum uppi við loft. np tæki þetta notað í lokuðum k\’ndiklefum, er vafasamt, hvort T bess heyrizt um íbúðina. Er ’’ hægt að tengja flautuna í fc'ramli. á 4. síðu FYRSTI AÐALFUNDUR TOLLVÖRUGEYMSLUNNAR FYRSTI aðalfundur hlutafélags- ins Tollvörugeymslan h.f., — var haldinn í Sjálfstæð'ishúsinu þriðjudaginn 12. þ. m., og hófst með borðhaldi. Fundarstjóri var kosinn Krist- ján Jóhann Kristjánsson, forstj. og fundarritari Helgi K. Hjálms- son, viðskiptafr. Formaður félagsins, Albert Guð- mundsson, stórkaupmaður, flutti skýrsiu um störf stjórnarinnar á liðnu starfsári félagsins. Bárður Daníelsson, verkfræðingur, tlutti skýrslu um framkvæmdir þær, sem gerðar hafa verið og er ver- ið að framkvæma, svo og fram- tíðarskipulag á athafnasvæði fél- agsins við Héðinsgötu á Laugar- nesi. Gjaldkeri félagsins, Sigfús Bjarnason, forstjóri, gerði grein fyrir hag félagsins og las upp reikninga þess. Sigurður Magnússon, formaður Kaupmannasamtaka íslands, tók til máls og fagnaði þeim áfanga, sem þegar hefur náðst. og árnaði fél- aginu allra heilla í framtíðinni. Að loknum þessum skýrslum, var gengið til stjórnarkjörs. Var fráfarandi stjórn öll ein- Framh. á 13. síðu. „Ég reikna og íita” , RÍKISÚTGÁFA námsbóka hefur nýlega gefið út bókina „Ég reikna og Iita“, reikningsbók fyrlr byrj- endur, eftir Jónas B. Jóiisson, fræðslustjóra. Allt efni bókarinnar er í niynd- um og á hverri blaðsíðu eruiskýr- ingatextar, sem gefa bending^r um hvernig á að vinna á síðuna. Bókin er ætluð til að æfa'börn í að skynja stærðar- og lengdarmis- mun, gildi talna, telja myndir og lita þær. Og ennfremur til að læra að þekkja tölustafi og skrifa þá.' Henni er ætlað að udnirbúa yngstu börnin, áður en þau fara að reikna með tölustöfum’. ALÞÝÐUBLAÐ10 — 17. marz 1963 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.