Alþýðublaðið - 17.03.1963, Page 14
NINNISBLRÐ
FLU€i
MESSUR
flugfélag íslands h.f.
Millilandaflug: Gullfaxi fer
til Glasgow og Kliafnar kl. 08.10
f fyrramálið. Innanlandsflug: í
dag er áætlað að fljúga til Akur
eyrar og Vestm.eyja. Á morgun
er áætlað að fljúga til Akureyr-
ar. Vestm.eyja, ísafjarðar og
Hornafjarðar.
SSCIi*
Skipadeild S. í. S.
Hva^safell er í Rvík. Arnar-
fell er í Middlesbrough. Jökul-
fell fór 11. þ. m. frá Gloucester
áleiðis til Rvíkur. Dísarfell er í
Rvík. Litlafell er væntanlegt til
Fredrikstad á morgun frá Kefla
vík. Helagfell er væntanlegt til
Reyðarfjarðar í kvöld frá Ant-
werpen. Hamrafell fór 5. þ. m.
frá Hafnarfirði áleiðis til Bat-
umi. Stapafell fór frá Rvík í
dag til Norðurlandshafna.
Jöklar h.f.
Drangajökull lestar á Breiða-
Cjarðar- og Vestfjarðahöfnum.
Langjökull fór frá Murmansk
16. 3 á leið til íslands. Vatna-
jökull er á leið til London, fer
þaðan 18. 3 til Rvíkur.
ÝMISLEGT
Minningarspjöld Sjálfsbjargar,
félags fatlaðra, fást á eftir-
töldum stöðum: Bókabúð ísa-
foldar, Austurstræti, Bóka-
búðinni Laugarnesvegi 52,
Bókaverzlun Stefáns Stefáns-
sonar Laugavegi 8, Verzlunin
Roði Laugavegi 74, Reykjavik
ur Apótek- Holts Apótek Lang
holtsvegi, Garðs Apótek Hólm
garði 32, Vesturbæjar Apótek.
Minningarspjöld Kvenfélags-
ins „Keðjan" fást hjá: Frú Jó-
hönnu Fossberg, sími 12127.
Frú Jónínu Loftsdóttir, Miklu
braut 32, sími 12191. Frú Ástu
Jónsdóttur, Túngötu 43. sími
14192. Frú Soffíu Jónsdóttur,
Laugarásvegi 41, sími 33856.
Frú Jónu Þórðardóttur,
Hvassaleiti 37, sími 37925. í
Hafnarfirði hjá frú Rut Guð-
mundsdóttur, Austurgötu 10,
Sími 50582.
Laugarneskirkja’- Messa kl. 2
Barnaguðsþjónusta kl. 10.15 f.
h. Séra Magnús Runólfsson.
Neskirkja: Barnamessa kl. 10.30
Messa kl. 2. Séra Jón Tlioraren-
sen.
Langhollsprestakall: Barnaguðs
þjónusta kl. 10.30. Messa kl. 2.
Séra Árelíus Níelsson.
Hallgrímskirkja: Barnaguðsþjón
usta kl. 10. Messa kl. 11. Séra
Sigurjón Þ. Árnason. Síðdegis-
messa fellur niður.
Háteigssókn: Messa kl. 2 í há-
tíðasal Sjómannaskólans. Séra
Sigurður Haukur Guðjónsson
prédikar. Barnasamkoma kl.
10.30. Séra Jón Þorvarðarson.
Dómkirkjan: Kl. 11 messa. Séra
Hjalti Guðmundsson. Kl. 5
messa. Séra Óskar J. Þorláks-
son. Kl. 11 barnasamkoma í
Tjarnarbæ. Séra Óskar J. Þor-
láksson.
Kópavogskirkja: Messa kl. 2.
Barnasamkoma í félagsheimil-
inu kl. 10.30. Séra Gunnar Árna
son.
Aöventkirkjan: Kl. 5 flytur Jú-
líus Guðmundsson erindi sem
nefnist: „Lífið eftir þetta líf.“
Jón Jónsson og Garðar Cortes
syngja tvísöng.,
Fríkirkjan: Messa kl. 2. Séra
Þorsteinn Björnsson.
Háskólakapellan: Sunnudaga-
skóli er á vegum Guðfræðileild
arinnar kl. 2. Öll börn á aldr-
inum 4-12 ára eru hjartanlega
velkomin.
Kirkja Óháða safnaðarins Barna
samkoma kl. 10.30 árd. Messa
kl. 2 e.h. Séra Emil Björnsson.
Elliheimilið'- Messa kl. 10 árdeg
is. Ólafur Ólafssön kristniboði
prédikar.
I LÆKNAfft |
Kvöld- og næturvörður L. R. í
dag: Kvöldvakt kl. 18,00—00,30.
Á kvöldvakt: Halldór Arinbjarn
ar. Á næturvakt: Andrés Ás-
mundsson. Á morgun: Kvöld-
vakt: Björn Júlíusson. Nætur-
vakt: Sigmundur Magnússon.
Neyöarvaktin simi 11510 hvern
virkan dag nema laugardaga kl.
13.00—17.00.
Slysavarðstofan i Heilsuvemd-
arstöðinni er opin allan sólar-
ruigi — Næturlæknir kl.
18.00—08.00. _ Sími 15030.
ÞETTA er Poul Qrum,
sem hlótiö hefur titilinn
..höfundur ársins“ í Dan-
mörku. Hlaut hann þann
titil af bóksölum fyrir
bókina „Biðsalur'*.
SÖFN
Þjóðminjasafnið og Listasafn
ríkisins eru opin sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laig
ardaga kl. 13,30—16,00.
SAiyiKOMUR
Húnvetningafélagið: Húnvetn
ingar halda umræðufund í fél-
agsheimili sínu, Laufásveg 25,
19. þ. m., þriðjudag, kl. 20,30.
Fundarefni verður: 1) Bókaút-
gáfa. 2) Skemmtanastarf. Frum-
mælandi verður Steingrímur Da
víðsson, fyrrv. skólastjóri. Fjöl-
mennið á fundinn og takið þátt
L umræðunum. — Nefndin.
Mæðrafélagskonur. Þær, sem
hafa hug á að taka þátt í ensku-
aámskeiði félagsins, láti vita
sem fyrst. Upplýsingar í síma
24846.
Kvenstúdentafélag íslands.
Fundur verður haldinn í félags-
heimili prentara Hverfisgötu 21
þriðjudaginn 19. marz kl. 20.30
Til umræðu verður frumvarp
til laga um almannatryggingar
er nú liggur fyrir alþingi. Fram-
sögu hafa Jóhanna Egilsdóttir
og Sigríður J. Magnússon.
SPAKfVlÆLIÐ
BETRI er dyggð en dýr ætt.
— ísl. málsháttur.
Opelverksmiðjurnar í Boch-
KANKVÍSUR
um tilkynntu í dag tilkomu nýrr
ar bifreiðar, Opel Kadett Stati-
on. Bifreið þessi, sem væntan-
£ega kemur á markaðinn hér í
maí, er með 4ra cylindra vél, 46
hestafla. Lengdin er 3.92 m.,
breidd 1.48, þyngd 720 kg., lijól-
harðar 600x12. Hámarkshraði er
120 km. Brennsla áætluð 7-8 lítr
ar á 100 km.
ÞaS er ólíkt aff elta rollur
upp um reginfjöll,
effa sitja viff gluggann og gægjast út
í glæstri bændahöll.
Og því er ég hættur aff hugsa um
heyskap nætur og daga.
Ég er bóndi, sem neitar aff basla í sveit.
Ég vil búa á Hótel Sögu.
- KANKVÍS.
Yfirmannaskipti
SKIPTI á yfirmönnum varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli fóru
fram í gærmorgun við hátíðlega
athöfn. Af störfum lét Robert
Moore, aðmíráll, en við tók Paul
Buie, flotaforingi.
Moore, aðmíráll og kona hans,
Joan, hafa dvalizt hér á landi í
nær tvö ár, og átt vinsældum að
fagna. Hafa þau til dæmis látiö
sér annt um málefni daufdumbra
barna, og í fyrradag sendu þau
Málleysingjaskólanum 35 þúsund
krónur að gjöf. Þá hafa þau veitt
litlu, blindu og daufdumhu telp-
unni frá Siglufirði, Sólveigu, ó-
métanlega aðstoð.
Hinn nýi yfirmaður varnarliðs-
ins er 54 ára að aldri. Hann kom
liingað til lands s.l. sunnudag, á-
samt konu sinni. Áður hefur Buie
komið liingað, en það var í fyrra
i með flugmóðurskipinu Wasp.
BUIE
MOORE
✓
Framh. af 1. síðu
og borgarlögma'ður, Tómas Jóns-1
son, sagði í rabbi við blaðið, þá
reyndist bærinn lélegur jarðeig-
andi, og lét gott heita, þótt nókkr-
ir kofar risu á braggarústum, þá
afsíðis í umdæmi hans.
Vegna þessa njóta þessi hús ekki
almennra lóðaréttinda. Þau eru
ekki tryggð, nema fáein hús, hjá
húsatryggingasjóði, — talin ófull-
gerð, í byggingu, og flestöll trygg-
ingafélög hafa ekki séð sér fært
af ýmsum ástæðum að veita þeim
vernd. Milli húsa þessarra liggja
traðir, mjóar, holóttar, skekktar,
og illfærar allan ársins hring. —
Þessar traðir eru leikvellir barn-
anna, húsagarðar fólksins.
Að vísu gerðu allnokkrir húsa-
eigendur samning við bæinn um
lóðaréttindi í 10 ár, en í sumar
I mun þessi samningur falla úr gildi,
og þá verður ekki séð hvað fram-
undan er fyrir fólkið. Þarna hefur
verið gert ráð fyrir að iðnaðar-
hverfi rísi einhvern tíma á næstu
árum, — en það hefur hvergi ver-
ið gert ráð fyrir dvalarstöðum fyr-
ir fólkið, sem nú býr þar við hin
verstu kjör. Þegar samningurinn
mun falla .úr gildi, geta ýtur kom-
ið og rutt aleigu fólksins, lekum
bárujárnshjöllum, klæddum með
trétexi, á brott, vegna þess að því
láðist fyrir 10 árum að sækja um
lóðarétt. Og fólkið mun engra bóta
geta krafizt.
Að vísu er það augljóst mál, að
bærinn mun aldrei fara svona að
ráði sínu, til þessa mun aldrei svo
hastarlega koma, en eigi að síður
er þetta réttindaleysi íslenzkra
borgara beizkur biti í munni.
Móðir mín
Guðrún Einarsdóttir
andaðist þann 15. þ. m. að heimili sínu, Austurgötu 5, Hafnarfirði.
Guðni Steingrímsson.
Móðir mín
Valgerður Jónsdóttir
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 19. marz kl. 1,30
e. h. — Blóm vinsamlega afþökkuð.
Fyrir hönd vandamanna
Elín Kristjánsdóttir.