Alþýðublaðið - 21.03.1963, Side 1

Alþýðublaðið - 21.03.1963, Side 1
ÞESSI mynd er af líkani, sem sýnir, hvernig Kennara- skóli íslands á að líta út, fullbyggður. Aðeins liluti af þessum byggingnm hefur nú verið tekinn • í notkun, en ætlunin er að halda bygg- ingaframkvæmdnm úfram. AKURYRKJUSTÖRF eru hafin hér sunnanlands og mun sjald- gæft, ef ekki einsdæmi, að svo snemma sé sáð í íslenzkan akur. Byggi og höfrum hefur verið sáð í tilraunareiti á Skógarsandi uxid- ir Eyjafjöllum. Búnaðardeild Bá- skólans gerir þessa sáningatil- raun undir umsjón dr. Bjöms Sig- urbjörnssonar. Hér er um tilraun að ræða, sem enginn veit, hvemig tiltekst, en komtegundir þær, sem ræktaðar liafa verið hér á landi, þurfa í raun réttri lengri vaxtartima e» okkar skamma sumar. Er þvi mjög áríðandi, að sá eins sncmma og mögulegt er, liversu sem fer uta þetta jtnikla frávik, enda tæpast um vorsáningu að ræða. Blíðviðrið helzt hérlendis, og krókusar og önnur vorblóm eru farin að opna hikandi krónur stn- ar mót hinni hlýjú vorsól. Græn blöð og græn grasrót gleður augu hinna bjartsýnu, en er svartsýnis- mönnum þyrnir í augum, því að þeir óttast páskaliret og hörpu- kulda. Eldur í Hreða- j vatns- skálanum FRUM VARP: Gagngerar end- urbætur á kenn- aramenntun hér í GÆR var lagt fram á Alþingi stjómarfrumvarp um Kennara- skóla íslands. Hefnr þetta frum- varp verið nokkur ár í undirbún- ingi og er þar gert ráð fyrir al- gerri nýskipan Kennaraskólans og gagngerri endurbót á kennara- menntuninni í landinu. M. a. er gert ráð fyrir því í frnmvarpinu, að Kennaraskólinn fái heimild til þess að brautskrá stúdenta. Frumvarpið er svo vel undirbú- ið að telja má fullvíst, að það verði að lögum á þessu þingi. Er hér um hið mikilvægasta mál að ræða fyrir kennarastéttina og stórvægilegt framfaraspor í ís- lenzkum fræðslumálum. í upphafi greinargerðar með frumvarpinu segir svo: Meginbreytingamar, sem felast í þessu fmmvarpi frá gildandi á- kvæðum um Kennaraskóla íslands, eru: 1) að veita skólunum réttindi til að brautskrá stúdenta, 2) að koma á fót framhaldsdeild við skólann, 3) að stofna undirbúningsdeild fyrir sérkennara, 4) aukin æfingakennsla og 5) nokkurt kjörfrelsi um náms- frelsi. Frumvarp þetta er til orðið á þann veg, sem nú verður sagt í fáum dráttum. Hinn 29. febr. 1960 skipaði menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason, sjö manna-nefnd til að endurskoða gildandi löggjöf um Kennaraskóla íslands- og semja frumvarp til laga um skólann. í jriefndinni áttu sæti: Freysteinn Gunnarsson, skólastjóri, formað- ur, Ágúst Sigurðsson, kennari, dr. Broddi Jóhannesson, kennari, Guð- jón Jónsson, kennari, Gunnar Guðmundsson, yfirkennari, Helgi Framh. á 14. síðu Borgamesi í gær. Eldnr kom upp í Hreðavatns- skála I kvöld nm kl. 6. Kom eld- urinn upp á efri hæð hússins í starfsmannahcrbcrgjum og wð* miklar skemmdir af eldi, vatni ag reyk. Niðri í aðalsal skálans er *ú verið að gera miklar endnrbætur. Tókst að forða Því, að eldurian kæmist þangað. — Slökkviliðið í Borgarnesi fór á vettvang, en búið var að ráða niðurlögum cldsins, er það kom á vettvang. Höfðu bændur ! í nágrenni Hreðavatnsskála bmgð | ið skjótt við til aðstoðar og efatn- ig nemcndor úr Samvinnnskólan- i um í Bifröst. — Leopold Jóhannes 1 son hefur nú með höndum rekstUr i Ilrcðavatnsskála. Sauðburður hafinn á Svalbarðsströnd SAUÐBURÐUR er hafinn á Sval- barðsströnd. 27 ær eru bornar á Gantsstöðum, þar af em 20 tví- lembdar, og ekkert lamb hefur farizt. Blaðið átti í gær tal við annan bóndann á Gautsstöðum, Frið- björn Olgeirsson, en þar er tví- býli. Friðbjöm á um 60 kindur og er tæpur helmingur þeirra borinn, en rúmlega 30 ær munu eignast marzlömb hjá Friðbirni í ár. Hann sagði, að þetta Iiefði gengið svona til nokkra undanfarna vetur, — en aðstaða til að taka á móti lömb unum, þótt um vetur væri, væri prýðileg, raflýst, nýbyggð fjár- hús og annað eftir því. Veturinn hefur verið með ein- dæmum góður, sagði Friðbjörn, en Svarðstrendingar beita ekki lengur fé sínu á vetrum heldur gefa inni, svo að blíðan hefur þannig ekki orðið þeim sérstök lyftistöng. Friðbjörn hefur mikið kúabú, eða 36 gripi í fjósi, þar a±’ nú 26 mjólkandi. Hrossunum er hann aftur á móti búinn að farga, nú er það vélaaflið, — segir hann. Annars staðar á Svalbarðs- ströndinni er sauðburður ekki' Framh. á 14. siðu NÝTT .

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.