Alþýðublaðið - 21.03.1963, Síða 16

Alþýðublaðið - 21.03.1963, Síða 16
I GÆR var lagt frani á AI- þingi frumvarp um endurskipu- lagningu Kennaraskóla íslands. Alþýðublaðið sneri sér til dr. Brodda Jóhannessonar, skólastj. kennaraskólans, og spurð'i hann nokkurra spurninga þessu lút- andi. — Hljóta stúdentar úr Kenn- araskólanum sömu réttindi og stúdentar frá verzlunarskólan- um og mcnntaskólunum? — Gera má ráð fyrir, að þeir fái sömu réttindi og stúdentar úr máladeildum menntaskól- anna og verzlunarskólans. Ann ars er gert ráð fyrir annarri framlialdsdeild við skólann, sem ætluð er kennurum, sein æskja framlialdsnáms, og yrði þe:m þá gefinn kostur á nokkru kjör- frelsi í vali námsgreina. Gert er ráð fyrir, að kennarar gæfu komið úr starfi í þessa deild, og myndi það nám, að mínu á- íiti, verða sízt ómerkara en stú- dentsnámið, þegar fram líða stundir. — Verður um að ræða sömu deildaskiptingu í kennaraskólan um og í menntaskólunum? —Xei, hjá okkur eiga að vísu einnig að vera tvær deildir, er annars vegar mála- og félags- fræðideild, hins vegar náttúru- fræðideild. — Hvað er gert ráð fyrir, að nám til stúdentsprófs verði langt í Kennaraskólanum? — Fimm ár eftir landspróf eða hliðstætt próf, þar sem gerðar eru svipaðar kröfur og til Iandsprófs. — Bætist þannig aðeins eitt ár við námið fyrir stúdentspróf eftir hið almenna kennarapróf? — Já, kennaraprófið verður éftir sem áður í gildi, — en hafi nemandi náð því og tilskyldri lágmarkseinkunn á hann að geta valið um eins vetrar fram haldsnám undir stúdentspróf í annarri livorri deildanna, — eða sérnáms eftir frjálsu vali til þess að fullkomna sig í kennslu greinum sínum, — en það nám mun þó ekki veita nein sérstök réttindi. — Er búizt við, að innan tíð- ar verði þess krafizt, að stúdent ar sitji tvö ár í kennaraskólan- um til að fá kennarapróf? — Um það hefur ekki veriff rætt, en að því hlýtur að draga. — Teljið þér, að þessar breyt ingar verði til bóta? — Vafalaust verða þær á margan hátt mjög hagstæðar fyrir skólann. H. 44. árg. — Fimmtudagur 21. marz 1863 — 67. tbl. Listi Alþýðuflokksins í Suðurlandskjördæmi . SKfÐAFARGJÖLD F.f. MEÐ 25% AFSLÆTTI HÉR birtist framboðslisti Alþýðu- flokksins í Suðurlandskjördæmi við alþingiskosningarnar sumarið 1963: 1. Unnar Stefánsson, viðskipta- fræðingur, Hveragerði. 2. Magnús H. Magnússon, sím- stjóri, Vestmannaeyjum. 3. Vigfús Jónsson, oddviti, Eyrar bakka. 4. Þorvaldur Sæmundsson, skóla stjóri, Vestmannaeyjum. 5. Sr. Sigurður Einarsson, skáld í Holti. 6. Gunnar Markússon, skóla- stjóri, Þorlákshöfn. 7. Edda Jónsdóttir, húsfru, Sel- fossi. 8. Erlendur Gíslason, bóndi, Dalsmynni. 9. Eggert Sigurláksson, húsgagna bólstrari, Vestmannaeyjum. 10. Helgi Sigurðsson, skipstjóri, Stokkseyri. 11. Guðmundur Jónsson, skósmið- ur, Selfossi. 12. Elías Sigfússon, verkamaður, Vestmannaeyjum. ÆLUGFELAG Islands hefur á- Ikveðið að taka upp sérstök skíða- ^argjöld á flugleiðinni frá Reykja vík. til Akureyrar, ísafjarðar og Egil í.staða. Er þetta gert- með til- áliti til ferða skíðamanna norður 'íg vestur, þar sem lítið er um fikíðasnjó hér á Suðurlandi, og páskarnir framundan. Á Akureyri verður til dæmis sérstök páska- vika í skíðaskálanum í Hlíðar- Irjalli, og er búi'st við miklum Hjölda fólks þangað. ■'Þessi sérstöku fargjöld gilda til Akureyrar og ísafjarðar á tíma- tsilinu 1. apríl til 1. júní, en til Egilsstaða frá 1. til 20. apríl, og er þá miðað við Landsmót skíða- manna, sem fyrirhugað er að halda í Neskaupstað á þessu tíma- bili. Skíðafargjöldin eru 25% lægri ©n venjuleg fargjöld, og er þá átt við einmiðagjald. Byggingu skíðaskálans í Hlíðar- fjalli hjá Akureyri er nú að mestu iokið. Byggingin er hin glæsileg- asta og má fremur nefna hana hótel en skála. í kjallara eru 5 i'istiherbergi, gufuböð og steypi- höð og rúmgóð snyrtiherbergi fyr ir fkíðafólk. Þá eru þar einnig I geymslur og kæliklefar. Á miðhæð eru tveir veitingasalir, sem rúma j 100 manns, lesstofa, eldhús, 6krif- stofa og snyrting. í rishæð eru 6 gistiherbergi, 2ja og 3ja manna. Þar eru einnig 4 liíil herbergi með fjórum rúmum hvert, og svefnpokarými fyrir 40—50 manns. Skálinn stendur í 500 m. hæð yfir sjávarmáli og þar eru skíðabrekk- ur fyrir alla. Eins og fyrr segir, verður sér- stök dagskrá í skálanum um pásk- ana, og vel til hennar vandað. — Flugfélag íslands mun selja í einu lagi, ferðir frá Reykjavík og viku dvöl í skálanum. — Verð þessara ferða er í fernu lagi: 1) 2ja og 3ja manna gistiher- bex-gi, ferðir, fæði og kennsla kostar 2500 krónur. 2) Gisting í 4ra manna herbergj um (svefnpokar), fæði, ferðir cg kennslá, 2300 krónur. 3) Svefnpokarými, ferðir, fæði og kennsla, 2100 kr. 4) Fæði og húsnæði, en ekkl ferðir, 1350 krónur. í skálanum verða einnig seldar lausar máltíðir og kaffi. í sambandi við skíðaferðimar til ísafjarðar, má geta þess, að í í einu bezta skíðalandi, sem kostur er á hér, Seljalandsdal, eiga ís- firðingar mjög glæsilegan skála. Hann er aðeins 4 km. frá ísafirði, og er þar rúm fyrir 28 gesti í her- bergjum, og einnig gott svefn- pokarými. í skálanum er matsalur, böð, rúmgóð snyrtiherbergi og sængur. Einnig vei-ður hægt að fá herbergi í kaupstaðnum. Er ekki að efa, að skíðamenn munu notfæra sér þessar ferðir félagsins, þar sem svo lítið er um skíðasnjó hér á Suðui-landi. Sig/f í strand BÁTURINN MÁNI HU 5 strandaði skammt undan bænum Skeggstöðum á Skaga um klukkan 20 í gærkvöldi. Dimmviðri var. og rann bát- urinn upp á flúð. Bátar frá Höfðakaupstað komu til að veita bátnum aðstoð sína og tókst fljótt og vel að koma Mána aftur á flot. Skipstjóri á bátnum er Gunnar Sveinsson. Ekki hef- ur verið rannsakað til fulls, hvort báturinn hcfur skemmst að einhverju ráði, en vitað er, að hann lekur ékki. SPILAKVOLD verður í Iðnó annað kvöld kl. 8,30 stund- víslega. Sigurður Ingimund- arson alþingismaður flytur ávarp. Flokksfólk er hvatt til þess að fjölmenna og taka t með sér gesti. LÉZT Á SLYSA- VARÐSTOFUNNl VEGNA fyrirspurna, sem Al- þýðublaðinu hafa borizt um mann nokkurn, sem fannst ósjálfbjarga í Kleppsholti síðast liðinn laugar- dag, og lézt á slysavarðstöfunni þá um kvöldið, hefur blaðið súnið sér til fuUtrúa lögreglustjóra, og feng ið eftirfarandi upplýsingar. Maður þessi fannst, eins og fyrr segir, í Kleppsholti, og var hann þá drukkinn. Lögreglan flutti hann í fangageymsluna við Síðumúla. — Maðurinn var blautur og illa til reika og var færður úr utanyfir- flíkum og vafinn inn í teppi. Hann sofnaði síðan og virtist líða vel. Þegar leið á kvöldið, var því veitt eftirtekt, að maðurinn var eitthvað veikur. Var hann þá fluttixr á slysavarðstofuna, þar eem hann lézt skömmu síðar, og mun bana- meinið hafa verið heilablóðfall. — Var þetta ungur maður, sem hafði verið nokkuð óreglusamur, og leg- ið í influenzu nokkru áður en þetta var. MAGNUS H. MAGNUSSON MILANO: — Comet-flugvél Saud, konungs í Saudi-Arabíu fórst í Ölpunum, nálægt landamærum Ítalíu, á miðvikudag. 19 menn vora í vélinni og fórust þeir allir. Flug vélin hafði flutt Saud, konung, frá Genf til Nice og fór aðra ferð til j þess að flytja annað fólk ú'r fylgd | arliði hans, en rakst þá a háan fjallstind, sem er í 10 þús. feta hæð. HLERAÐ Blaðið hefuv hlerað AÐ Ragnhildur Helgadóttir muni ekki gefa kost á sér til framboðs við Alþingis- kosningarnar í vor.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.