Alþýðublaðið - 07.04.1963, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 07.04.1963, Blaðsíða 8
i í i t í WAP f£N<jl ÉCf M\\<LA KAOPHÆ.KKUN £F ÉG HÓTAÐ/ AD SEGJA UPP? BREZKA stjórnin hefur að lok- um undiiTitað dauðadóminn, sem um langt skeið hefur hvílt yfir ríkjasambandi Norður-Rhodesíu, Suður-Rhodesíu og Nyasalands. N- Rhodésíu var nýlega heimilað að segja sig úr lögum við rikjasam- bandlð og Nyasalandi hafði áður verið veittur saihi réttur. Ríkjasambandinu var ekki spáð langlífi, þegar brezka stjómin knúði fram stofnun þess fyrir tíu árum þrátt fyrir mótmæli stjórn- arandstöðunnar í Bretlandi og fulltrúa meirihluta innfæddra manna í hinum þrem ríkjum sam- bandsins. Síðan Nyasaland og N,- Rhodesía fengu sjálfsstjórn, hefur verið ókleift að halda lífinu í ríkja- sambandinu. Stjórrtimar í N-Rhodesíu og Ny- asalandi, sem styðjast við meiri- hluta íbúanna, gerðu það að aðal- kröfu sinni, að ríkjasambandið yrði leyst upp. Mörg vandamál munu rísa upp þegar 'sambandsstjórnin verður lögð niðúr .eins og nú er fyrirhug- að að gera. Alls starfa 35 þús. menn í þjónustu sambandsstjóm- arinnar. Skipta verður 30 miUj- arða (ísl.) króna tekjum hennar milli rikjanna þriggja í samband- inu, svo og útgjöldum og vinnu við rafmagn og vatn, sem hvort tveggja fæst frá Karibaorkuver- inu i ánni Zambezt á landamær- um Norður- og Suður-Rhodesíu. Auk þess hefur sambandsstjórn- in sinn eigin her, flugher og lög- reglu. Heraflann skipa að miklu leyti hvítir menn, ákveðnir menn, sem hafa öllu að tapa, og liðsfor- ingjarnir eru eingöngu hvítir. Ó- líklegt er talið, að brezka stjórnin geti koníið því til leiðar, að her- aflanum verði skipt milli hinna þriggja ríkja sambandsins. Talið er, að þessi herafli verði ekki lagður niður og stjómin í Suður- Rhodesíu fái umráð yyfir honum. Hve erfið vandamálin reynast við að leysa rikjasambandið upp er fyrst og fremst komið undir vilja brezku stjómarinnar til þess að notfæra sér þau völd, sem hún ÓLAFUR BJÖRNSSON: WINSTON FIELD — krefst sjálfstæöis. enn hefur í ríkjasambandinu, en einnig er það komið undir þyí, að hve miklu leyti Welensky, sem hef- ur eins og fyrr segir umráð yfir sínum eigin hersveitum, þorir að setja sig upp á móti stjórninni í London. í efnahagslegu tilliti hafa rök- semdir fylgismanna ríkjasam- bandsins verið sannfærandi í orði en ekki á borði. Ríkjasambandið hefur örvað efnahagsþróunina, en afrískir íbúar sambandsins hafa að litlu leyti notið góðs af henni. Hún SIGQA VIGGA OG TILVERAN h n Vi b n þ 1> Þ hi ai it á- s1 Þ ti u K Vi ei ri n sl b. ai g. R ir ai u ú zi sr ú b n h H v F K v H u ii s h t: a d h s s n e ENN eru hafnar á Alþingi, og þá um leið víðar, umræður um drag- nótaveiðar, og þá að vanda í þeim tilgangi að banna þessar veiðar. Af blaðaskrifum má sjá að vitn- að er til ummæla sjómanna um skaðsemi dragnótar. Þetta kann að vera rétt í einstökum tilfellum, en aimennt talað eru sjómenn ekki á þessari skoðun, og allra sízt þeir, sem þessar veiðar hafa stundað. Yfirleitt munu sjómenn vera þeirr ar skoðunar, að net séu hættuleg- asta veiðarfæri, sem við höfum þótt staðreynd sé, að þau verðum við að nota til þess að fá afla. Hóf- RÚSSNESKUR ' skurðlæknir gerði nýlega mikinn hjartaskurð á sjúklingi einum. í nítján mínútur var blóðrásin til heilans stöðvuð, en á meöan fékk heilinn blóð frá sérstöku tæki, sem smíðað hefur verið í þessu augnamiði. Uppskurð urinn var gerður til að fjarlægja meðfæddan hjartakvilla. Þetta mun vera í annað skipti, sem þessi læknir framkvæmir slíkan uppskurð. leg takmörkun á þeim veiðum mun þó vera skynsamleg cins og öllum stórvirkum veiðarfærum, þar á meðal dragnótinni og botnvörp- unni. Settar reglur á síðan að sjá um, að haldnar séu betur en gert hefur verið. Svo virðist, þegar menn tala um að friða fiskstofninn, vilji þeir gjarnan gleyma, að við lifum á því að drepa fisk — og það, sem alira mest. Að þessu athuguðu ætti það að vera helzta rannsóknarefnið, hvern ig er hagkvæmast að veiða fiskinn, hvaða veiðarfæri skilar mestum afla, miðað við tilkostnað og gæði og þá líka í hvaða veiðarfæri hent ugast er að veiða hverju sinni, til þess að nýta vinnuaflið og vinnslu stöðvarnar í landi. Með þetta í huga, er dragnótin eitt allra hagkvæmasta veiðarfæri, sem við eigum völ á. Það ber því að nota hana eins mikið og frek- ast verður við komið. Takmörkun hennar ætti fyrst og fremst að bein ast að möskvastærð, en hún hefur nú þegar verið aukin mikið frá því, sem áður var. Eitt af því versta við dragnót- ina telja þeir, sem á móti henni eru, vera það, að hún spilli botn- gróðri, og þá er oft sérstaklega talað um Faxaflóa. Þessu vil ég svara því: í fyrsta lagi er ekki hægt að veiða með dragnót á stærra svæði en sem svarar um 5% af Faxaflóa.' Þannig er hann nú friðaður. í öðru lagi er það svo, að geri vestanstorm og sjó, rótast sandurinn meira og minna til í öldur og hryggi. Enda mun sú raunin, að á sand- og leirbotni þeim, sem dragnótin er mest dreg in á, er alls enginn gróður og hefur aldrei verið. Allar helztu fiskveiðiþjóðir veiða fyrst og fremst með botnvörpu og dragnót, af því þetta eru hagkvæm ustu veiðarfæri, sem til eru. Vafa laust er þessu eins farið hér við land. Við eigum því að stórauka notkun þessara veiðarfæra. Ef menn óttast að gengið sé of ná- lægt stofninum, má takmarka veið arnar. Ekki með því að taka upp óheppilegri veiðarfæri, heldur með því að friða viss svæði alveg eða á vissum tímum, svo og með möskvastærðinni. En að sjálfsögðu á þetta að fara eftir mati fiski- fræðinga, en ekki þingmanna á atkvæðaveiðum. Fiskveiðar verða okkar lifibrauð í næstu framtíð. Þess vegna þurf- um við að skipuleggja þær sem allra bezt. Eitt helzta vandamál fiskveiðanna er veiðarfærakostn- aðurinn. Hver bátur þarf, eins og nú háttar, að eiga mörg og dýr veiðarfæri, sem flest eru notuð stuttan tíma hverju sinni. Nú virð ist þó hilla undir, að stærri skipin fari að stunda nótaveiðar allt ár- ið. Eins þyrfti að stefna að því, að minni skipin gætu komizt af með sem allra fæst veiðarfæri og þá helzt ekki fleiri en eitt til tvö. Margt mun órannsakað á því sviði hvað hægt er að gera til verndar fiskstofninum og sýnist þar sitt hverjum. Því er jafnvel haldið fram, að svartfuglinn einn drepi meira af fiski en allur flot- inn. Rannsókn á þessu og mörgu fieiru er löngu tímabær. En síð- ust allra friðunar- og verndarráð- stafana hlýtur það að verða, að við hættum að veiða fiskinn. Kort: Ríkjasamband Mið-Afríku: ? og Nyasaland. 0 3 31. marz 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.