Alþýðublaðið - 07.04.1963, Page 15

Alþýðublaðið - 07.04.1963, Page 15
„Eininitt það já! Þú færð nú að sofa á miklu öruggari stað en þessum. Komdu. Farðu hægt og haltu höndunum uppi." Ég gekk í áttina til hans. ,,Stoppaðu!“ Hann starði á skrifborðið. „Hefur þú verið að reyna að brjóta þetta upp?“ „Nei . . Svei mér þá . . .“ „Upp að veggnum! Fljótur!“ Ég gekk- uþp að veggnum. „Snú Ég sneri un- ' eegnum. Það var í langt augna3'' Eina hljóðið í eyrum mínum vai 1? legt, tætandi hljóð af byssuskoti. Hljóðið, sem var gífurlegt í litlu herberginu, varð til þess að ég hrökk í kút. Ég leit yfir ixl mér og hélt, að vörðurinn hefði rekizt á Rimu og drepið hana. Hann stóð í keng við skrif- borgið. Fallega lögregluhúfan lians var dottin á gólfið og leiddi 1 ljós sköllóttan blett í hnakk- anum. Hann hélt hönzkunum um magann og byssan hans lá á gólf inu. Farm mini r' í honum tók að leka —o hevrðist annar skothvellur. Ég sá leitrið af skotinu koma handan skrif- borðsins. Varðmaðurinn gaf frá sér hálf kæft óp: sams konar hljóð og box ari gefur frá sér, þegar andstæð ingurinn hefur hitt með verulega góðu höggi. Svo seig hann hægt saman og féll endilangur á gólf ið. Ég stóð þarna og starði með hendurnar enn upp í loftið, svo illa á mig kominn, að ég hefði gatað kastað upp. Rima rétti úr sér bak við borð- ið. í hendinni hafði liún litla skammbyssu. sem rauk úr. Hún horfði kæruleysislega á varð- manninn. Hún hafði ekki einu sinni fölnað. „Það eru engir peningar", sagði hún grimmdárlega. „Skúff an cr tóm.“ Ég heyrði varla hvað hún sagði. Ég starði á varðmanninn, horfði á þunnan blóstrauminn renna úr honum út á fágað park ettgólfið. ,,Hypjum okkur héðan.“ Æsingin í rödd honnar vakti mig til meðvitundar. „Þú drapst hann!!“ „Nú, hann hefði drepið mig, ekki satt?“ Hún starði kuldalega á mig. „Komdu, fíflið þitt Ein hver hlýtur að hafa heyrt skot- in!“ Hún lagði af stað yfir gólfið, en ég greip í handlegg hennar og snarsneri henni við. „Hvar fékkstu þessa byssu?" Hún sleít sig lausa. „Ó, komdu! Þeir verða komn- ir eftir augnablik!" Kærulaus, skínandi aúgun i henni skelfdu mig. Svo heyrði ég, einhvers staðar úti í myrkrinu, að sírena byrj- aði að veina. Ég stirðnaði upp. „Komdu! Komdu!“ Hún hljóp út í myrkrið, og ég á eftir henni. Ljós voru tekin að kvikna út um allt hverfið. Menn hrópuðu. Ég fann hönd hennar á liand- legg mér, er hún ýtti mér niður dimmt sund. Við hlupum í blindni á meðan sírenurnar vældu í myrkrinu. „Hingaðí11 Hún dró mig inn í dimmt dyra skot. Augnablik myndaði vasa- ljósiB hcnnar smáljóspoll, síðan slökkti hún á því. Hún dró mig niður á bak við stóran kassa. Við hcyrðum þung skref hlaupa framhjá. Við heyrðum menn kall ast á. Einhver tók að blása í sker andi flautii, sem olli því, að taug ar mínar tóku að titra. „Komdu!“ Hefði hún ekki kornið til, hefði ég aldrei komizt burtu. Hún virtist finna það á sér, þegar við vorum að lenda í hættunni og hvenær óhætt var að halda áfram. Sem við hlupum framhjá hin um endalausu húsum og risa- stéiru kvikmyndatökuhúsúm, urðu hljóðin í flautunum og rödd unum daufari, og loks stönzuðuin við móð og másandi í skugga af húsi til að hlusta. Það ríkti þögn núna að und- anskilinni veinandi sírenunni. „Við verðum að komast út, áð ur en löggan kemur“, sagði Rima. „Þú drapst hann!“ „Ó, haltu kjafti! Við komumst yfir vegginn fyrir endanum á þessu sundi.“ Ég gekk með henni, þar til við komum að tíu feta háum veggnum. Við stönzuðum við hann og horfðum upp eftir hon um. „Hljápaðu mér upp.“ Ég lét hana stíga í lófa mína og ýtti henni upp. Hún settist klofvega á veginn, liallaði sér síðan fram og gæðist niður í myrkrið. „Það er allt í lagi. Kemstu upp?“ Ég gekk aftur á bak, hljóp síðan til og stökk upp. Ég greip í brúnina, náði taki og hékk augnablik, en dró mig síðan upp. Við veltum okkur bæði yfir vegg inn og létum okkur detta niður á malarveginn, sem lá meðfram kvikmyndaverinu. Við gengum hratt upp á aðal götuna. Meðfram henni stóðu bíl ar í röðum, eign fólks, sem var að skemmta sér í næturklúbb handan götunnar. „Það ætti að koma strætis- vagn eftir svo fimm mínútur”, sagði Rima.' Ég lieyrði vælandi lögreglubíl nálgast. Rima greip í handlegginn á mér og ýtti mér að Ford Skylin er bíl. „Inn með þig, fljótur". Ég renndi mér inn \ bílinn og hún kom á eftir mér. Hún hafði rétt aðeins tíma til að loka dyrunum áður en tveir lögreglubílar komu æðandi fram hjá og stefndú að aðalhliði kvik myndaversins. „Við bíðum hér“, sagði Rima. „Það koma fleiri. Þeir mega ekki sjá okkur á götunni." Ég sá, að þetta var skynsam legt, þó að mig dauðlangaði til að hlaupa. „Larry", sagði Rima með við bjóði í röddinni. „Ég hefði svo sem mátt vita, að þetta væri vit leysa hjá honum. Þeir hljóta að leggja peningana í bankann eða Éetja þá í peningaskáp, þegar þeir loka skrifstofunni.“ „Gerirðu þér ljóst, að þú lief ur drepið mann?“ sagði ég. ,Þeir geta sent þig í gasklefann. Snar vitlausa tíkin þín! Það vildi ég, að ég hefði aldrei hitt þig.“ „Það var sjálfsvöm", sagði hún reiðilega. „Ég varð að gera það!“ „Það var það ekki! Þú skauzt hann með köldu blóði. Þú skauzt hann tvisvar". „Það hefði verið heimskulegt af mér að leyfa honum að skjóta mig, ekki satt? Hann var með byssu í hendinni. Það var sjálfs vörn“ „Það var morð!“ „Ó, haltu þér saman“. „Ég er búinn að fá nóg af þér. Ég vil aldrei framar sjá þig!“ „Þú ert bleyða! Þig langaði eins mikið í peninga eins og mig. Þig langaði til að hafa pen inga upp úr mér Nú þegar illa er farið . . .“ „Kallarðu það að fara illa að drepa mann?“ „Æ, góði þegirðu". Ég sat kyrr og hélt fast um stýrishjólið. Ég var ofsahræddur. Ég sagði við sjálfan mig, að ég hlyti að hafa verið brjálaður að hafa bundið trúss við liana. Ef ég kæmist burtu, skyldi ég fara heim og hefja nám að nýju. Ég skyldi aldrei framar gera neitt illt af mér, svo lengi sem ég lifði. Við heyrðum vælið í fleiri sí renum. Annar lögreglubíll, full ur af óeinkennisklæddum lög- reglumönnum, fór fr'amhjá og nokkrum sekúndum á eftir hon um kom sjúkrabíll. „Þá er skrúðangan búin“, sagðl Rima. „Komum.“ Hún fór út úr bílnum og ég á eftir henni. Við gengum hratt að strætis- vagnastöðinni. Eftir tvær eða þrjár mínútur kom vagninn. Við settumst aftast. Enginn skipti sér neitt af okkur. Rima reykti og horfði út um glugg- ann. Þegar við komum niður að algötuna niður að höfninni, byrj aði hún að hnerra. FIMMTI KAFLI I. Skömmu eftir klukkan sjo næsta morgun vaknaði ég af eirð arlausum svefni, starði upp í loftið og hugsaði til atburða, kvöldsins áður. Mér leið iUa. Ég hafði aðeins fengið tveggja til þriggja tíma svefn. Mestalla nóttina hafði ég verið að hugsg um varðmanninn og hvernig Rima hefði skotið hann. i Hún hafði farið inn í herberg ið sitt, þegar við komum heim, og ég hafði heyrt hana hnerra í klukkutíma, þar til mér fannst sem hljóðið mundi gera mig vit- lausan. Svo heyrði ég hana faríi út, og ég gat mér þess tU að húfi væri farin til að leita að ein'i hverju fífli til að kaupa handá sér skammt. Ég var sofnaður, þegar húií kom aftur. Ég varð var við, áð dyrnar hjá henni voru opnaðar, en ég var svo þreyttur, að ég sneri mér á hina hliðina og sofn aði aftur. Þar sem ég lá nú í rúminu og horfði á sólarljósið koma inni með vindutjaldinu, velti ég þyí fyrir mér, hvað bezt væri fyrjg mig að gera. Ég varð að komasis burtu úr borginni. Ég þorði ekk& að vera þar lengur. Ég færi tijl Rustys fengi lánað fyrir fargjalfl inu hjá honum og færi burttíf strax fyrir hádegið. GRANNARNIR 5400 kr. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. apríl 1963 |,5 :|

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.