Alþýðublaðið - 28.04.1963, Page 1
44. árg. — Sunnudagur 28. apríl 1963 — 95. tbl.
VarSskip og landhelgisbrjótur rákust á:
FURDULEGUR
ELTINGALEIKUR
ER VARÐSKIPIÐ Óðinn var á
eftirlltsferð snemma í gærmorg-
iu í Meðallandstyipt, kom það að
litlum togara, sem var að veiðum
fyrir innan mörkin við Skaftár-
ósa. Var hann að taka inn trollið,
er varðskipið kom á vettvang. —
Hafði skipstjórinn engin umsvif,
lét höggva á vírana og sigldi til
hafs.
Togari þessi, sem er keldur lit-
ill, reyndist vera frá SkoUandi.
Varðskipið elti hann, og reyndi að
AFXI netabáta í Vestmannaeyjum
hefur verið sáralítlll að undan-
förnu. Eru margir bátar þegar
hættir á netum og farnir annað
hvort á síld eða línuveiðar, en þar
er þá sögu að segja, að veiðin
er ekki mikið betri. Aftur á móti
hafa netabátar, gerðir út frá R-
vík aflað ágætlega að undanförnu,
og í fyrradag fengu fimm bátar
þaðan yfir 20 tonn í róðri.
Voru það þessir bátar: Ásgeir
31 tonn, Skagfirðingur 20, Freyja
20, Hannes Lóðs 20 og Hafþór 25
tonn. — Akranessbátar hafa veitt
sæmilega í net að undanförnu. Er
afli netabáta þar heldur að glæð-
ast. Á föstudaginn komu 150 topn
af netafiski á land og lögðu þá 12
bátar upp. Anna var hæst með 39
tonn, og þar næst kom Sigrún með
27 tonn.
hafa samband við togaramenn í
gegnum senditækin, en enginn
svaraði. Er blaðið fór í prentun í
gær, sigldi Óðinn enn með togar-
anum, sem hvorki vildi stöðva eða
tala við varðskipsmenn.
Skömmu eftir að eltingaleikur-
inn hófst, sigldu skipin svo nálægt
hvort öðru, að árekstur varð. Bæði
skipin skemmdust nokkuð, en þó
ekki svo, að eltingaleikun.nn gæti
ekki haldið áfram. Varðskipsmenn
vildu ekki gera tUraun til að iara
um borð í togarann og ekki hafði
verið skotið nema aðvörunarskot-
um að honum, -
Brezka eftlrliteskipið Palliser
var látið vita um atburð þennan
og um klukkan fjögur í gær, var
það á leið á staðinn og átti að
reyna að fá skipstjórann til að
gefa sig með góðu.
KOSNINGABANDALAG kommúnista og svokallaðra Þjóðvarnarmamia
er ein mesta hrákasmíð, sem um getur í íslenzkri stjórnmálasögu.
A fundi Þjóðvarnarmanna, þar sem rótt áttu á fundarsetu um þrjá-
tíu manns, mætti ekki helmingur. Af þeim greiddu átta já-atkvæði með
bandalagi við kommúnista, en f jórir greiddu atkvæði á móti.
Þessir átta menn sömdu svo við kommúnista xun Gils og Berg, og
miðstjóm kommúnista samþykkti.
Flokksfélag kommúnista í Reykjavík felldi listann, en miðstjórnin lét
ákvörðun sína standa í trássi við vilja meirihluta flokksmanna sinna.
Málfundafélagi jafnaðarmanna, s em talið var að hefði myndað Alþýðu
bandalagið. en flestir hafa nú yfirgefið, hefur ekki þótt taka því að boða
til neiris firndar. Listinn í Reykjavík er því settur fram gegn vilja meiri-
hluta Félags Þjóðvamarmanna og gegn vilja meirihluta Sósíalistaflokksins.
Ekki hefur tekið betra við í Reykjaneskjördaémi. Attmenningarnir og
miðstjóm kommúnista samþykktu Gils Guðmundsson sem efsta mann á
listanum. En flokksfelögin í kjördæm inu hafa ekki samþykkt hann, mörg
hafa meira segja fellt hann. En hann er settur fram þrátt fyrir það.
Ekki er liðið sigurstranglegt, þegar lagt er af stað í krossferðina —
og þannig mun ferðin verða. ÖIIu ömurlegra ásigkomulag er varla hægt að
hugsa sér.
KLOFNINGSTILRAUN KOMMA 7. MAÍ:
íW? &ú ttmMS 2 •
GEYSIMIKIL sala er á plöt-
unni „ALL STAR FESTI-
VAL“, sem nú er seld til
hjálpar muðstöddu flAtta-
fólki um allan heim. Var sala
hafin á hljómplötunni í R-
vik í gær, og um hádegið
var upplagi'ö, sem til landsins
hafói komið, næstum á þrot-
um og búið' að panta mörg
hundruð eintök til viðbótar.
Eins og kunnugt er, flytur
platan söng margra v insæl-
ustu söngvara í lieiminum í
dag. Hún er mjög skemmti-
leg og girnileg eign, auk þess,
sem allir ættu að sjá sóma
sinn í því að styrkja göfugt
málefni. „All Star Fesíiv»l“
fæst í öllum hljóðfæraverzl-
unum. Hún er hæggeng, 12
laga og kostar aðeins 250 lr.\
eða 20% minna en aðrar á-
líka plötur.
KOMMUNISTAR skrifuðu for-
mönnum allra 39 verkalýðsfciag-
anna í Reykjavík og boðuðu pá
til fundar um hátíðahöldiu 1. maí,
enda þótt þeim væri kuunugt um
það, að stjórn Fulltrúaráðs verka-
Iýðsfélaganna væri að undirbúa
hátíðahöldin. Þannig reyndu komm
únistar að kljúfa verkaiýðssam-
tökin í Reykjavík í sambandi vð
undirbúning hátíðahaldanna. Ea
klofningstilraunf g hlaut litlar uni-
irtektir. — Aðeins þau félög, er
kommúnistar stjórna, tóku boói au.
Blaðinu barst í gær eftíl-farmdi
frá Óskari Hallgrímssyni, forrn.
Fulltrúaráðsins:
Kommúnistar hafa orðið þess
greinilega varir undanfarna daga,
að tilraun þeirra til þess að sundra
verkfólkinu 1. maí, er almennt
fordæmd. — í vonbrigðum sínum
dunda þeir við að útbúa alls konar
kynjasögur. Þannig heldur Þjóð-
viljinn í gær því frain, að fulltrúa
ráðið hafi neitað „1.»maí-nefnd
verkalýðsfélaganna“ úm kröfu-
göngugögn. Hér er eins og vænta
má um algjöra skröksögu að ræða.
í fyrsta lagi er engin 1. maí-öefnd
verkalýðsf^laganna til, þar sem
engin slík nefnd hefur verið kos-
in. í stað nefndarkosningar ákvað
aðalfundur fulltrúaráðsins að fela
si(jórninni al|aiv undirbúning 1,
mai að þessu sinni. í annan stað
hefur fulltrúaráðinu ekkert erindi
borizt um afnot af eignum full-
trúaráðsins.
Hins vegar talaði Eðvarð Sig-
urðsson við mig í síma og spurði
hvort „við“ gætum fengið lánað-
ar þær kröfur, sem fulltrúaráðið
ekki notaði sjálft. Aðspurður um
hverjir þessir „við“ væru, gaf hann
engin svör. Síðan, er ég hafði flutt
stjóm fulltrúaráðsins bo'ð Eðvarðs,
óskaði stjórnin eftir formlegri
beiðni, þar sem staðfest væri
hverjir stæðu að þessari ósk. Var
þeim tilmælum komið á framfæi'i
við Eðvarð Sigurðsson af framkv.
stjóra fulltrúaráðsins, Þorsteini
Péturssyni. Einhverra hluta vegna
hafa samherjar Eðvarðs í sundr-
ungariðjunni ekki kosið að koma
fram í dagsljó.^ið. — Að minnsía
kosti hefur fulltrúaráðinu engin
formleg beiðni borizt, og stjórn-
in því hvorki getað samþykkt hana
né hafnað.
Á hitt skal ekki dregin dul, að
min persónulega skoðun, sem ég
lét í ljós við E. S í fyrrgreindu
símtali, er sú, að það sé hámark
ósvífninnar, þegar þeir menn, sem
lýsa því yfir sem ásetningi sínum
að hafa að engu löglegar og lýð-
ræðislegar ákvarðanir Fulltrúa-
ráðsins, fara á sama tíma fram á
að fá afhentar eignir þess sama
Fulltrúaráðs.
Kommúnistar eiga að vonum
erfitt með að sætta sig við það að
Framhald á 3. síðu.
íháldslistinn
ekki birtur
í Vesturlandi
VESTUKLAND, blað íhalds-
ins á Vestfjörðmn er enn
ekki farið að birta fram-
boðslista Sjálfstæðisflokka-
ins í Vestfjarðakjördæmi. Er
ástæðan sú, að Matthías
Bjarnason, sem varð undir í
viðureigninni við Þorvald
Garðar, ræður algertega yfir
blaðinu. En Þorvaldur
hreppti annað sæti á listan-
um eftir hörð átök við Matt-
hías 'sem lyktaði þannig, að
Þort aldur hlaut eins atkvæð
is meirihluta. Er mikil ólga
á ísafirði út af úrslitunum.
Högni Torfason fyn-um
fréttamaður útvarpsins ''var
ráðinn ritstjóri við' Vestur-
land og erindreki Sjálfstæð-
isflokksins, en hann liefur
ekki fengið að koma nærri
blaðinu ennþá. Sjálfstssðis-
flokkurinn á einnig húreign-
ir á ísafirði og stóð til að
Högni fengi þar íbúð en ekki
liefur það heldur orðið þar
eð' Matthías Bjarnason ræð-
ur yfir þeim eignum og hef-
ur ekki „meðtekið” Högna.