Alþýðublaðið - 28.04.1963, Síða 8
i
AS ofan em svipmyndir úr kvik myndinni.
JÓN S. JÓNSSON:
' SÍÐLA í septembermánuði
1957 hófust í Winter Garden
Theater í New York sýningar á
söngleik, sem ólíkur var öllu
öðru er sést hafði á leiksviði í
þessari stórborg. Söngleikurinn
„West Side Story”. Hann var
hafinn til skýjanna af gagnrýn-
endum, en margir hverjir álitu
hann marka tímampt í þessu stað
bundna bandaríska listformi.
,.West Side Story” er að mörgu
leyti , frábrugðinn öðrum söng-
leikjum, sem á ensku eru nefndir
„Musical Comedy.” Þróunarsaga
bandaríska söngleiksins er meir
en aldar gömul, en það var fyrst
á seinasta tug 19. aldar, að farið
var að nota nafnið „Musieal Co-
medy,” og þá til aðgreiningar frá
óperum og óperettum. „West
Side Story” er fyrsta „Musical
Drema” sem skrifað er vestra.
Efni leiksins er í aðalatriðum hin
ódauðlega ástarsaga um Rómeó
og Júlíu, færð í nútíma búning,
leiksviðið er nialbikuð stræti og
múrsteins kumbaldar fátækra-
hverfis í stórborg. Höfundar
: þessa verks eru allir þekktir leik-
| húsmenn vestra. Arthur Laurent
! heitir höfundur bókarinnar. Með-
■ al fyrri verka hans eru: „Fædd
í gær,” „The Snake Pit,” og
„Anastasia.” Dansamir, sem eru
| veigamikill þáttur söngleiksins,
! eru samdir af Jerome Robbins.
Hann er upphafsmaður að nýrri
tegund af ballet í Bandaríkjunum
sem nefnist ýmist „Modern Bal-
let’ eða „Juan Ballet.” Robbins
hefur .stjórnað mörgum ballet
flokkum í Bandaríkjunum og
víðar, en árið 1958 stofnaði hann
sinn eigin flokk: „Ballets U. S.
A.” Flokkur þessi, sem ferðast
hefur víða um heim, dansaði hér
í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum
árum. Höfundur tónlistarinnar er
Leonard Bernstein. Hann er lík-
lega einn fjölþættasti persónu-
leiki á sviði tónlistarinnar í
Bandaríkjunum í dag. Á okkar
tímum sérhæfingar, hefur Bem-
slein algjörlega neitað að tileinka
ein'nverri einni listgrein eða starfi
hæfileika sína. Hann er tónskáld,
hljómsveitarstjóri, konsertpían-
isti og afbragðs fyrirlesari. Með-
al Verka hans, sem tónskálds era,
tvær sinfóníur, ópera, mörg kam-
mer verk og þrír söngleikir fyrir
utan „West Side Story”. Fyrsta
sigur sinn sem hljómsveitarstjóri
vann hann kvöld eitt 1943, er
Bruno Walter ótti að stjóraa New
York Philharmonic hljómsveit-
inni, en varð ■ skyridilega veikur.
Bernstein var fenginn til að
hlaupa í skarðið og gerði það
með myndugleik að sögur segja.
Bernstein var fyrsti innfæddi
Bandaríkiamaðurinn er boðið var
að stjórna La Scala Óperunni í
Milanó, og er einnig sá. fyrsti inn-
fæddi sem skipaður hefur verið
í það starf, sem hann nú hefur,
tónlístarstjóri og hljómsveitar-
stjóri New York Philharmonic.
Júlíu og spurði hvort ekki væri
möguleiki á að bregða nýju ljósi
yfir þennan aldagamla ástarharm
leik. Robbins lagði sitt hárlitla
. höfuð í bleyti og kom upp með
hugmynd sem átti eftir að velt-
ast milli nokkurra manna í ára-
tug áður en hún kæmi fyrir al-
mennings sjónir á leiksviði, að
umskapa Rómeó og Júlíu sem
ísland hefur tæplega 5 íbúa á
hverja fermílu. Puerto Rico.Jaúar
eru af spönskum uppruna ea í
dag er þar allmikið af negrum og
múlöttum. Síðan 1898 hefur eýjan
að meira eða minna leyti‘"Verið
undir bandarískri stjórn. Fólks-
fjölgun eyjunnar er alvarlegt
vandamál og hafa tugþúsandir
flykkst til Bandaríkjanna og þá
aðallega til New York Puerto Ri-
co búar hafa lagt undir sig heil
hverfi í vesturhluta borgarinnar,
og ýmis illleysanleg vandamál hafa
þar skapast.
Það er ekki í verkahring list-
sköpunar að leysa þjóðfélagsleg
vandamál, og engin tilraun er
heldur gerð til þess í „West Side
Story”. Þar er einungis 'reynt að
vekja athygli umheimsins á
vandamálum. sem skapast geta í
„vesturhluta”. hvaðp. stórborgar
sem er.
í hugleiðingum sínum um sköp
unarsögu þessa söngleiks,; segir
Robbins: „Þetta er ekki ópera og
heldur ekki venjulegur söngleik-
ur. Verkið tekur til meðferðar líf
vandræða únglinga sem er likast
því að þeir búi í hraðsuðupotti.
Þeir lifa við eilífa spennu, eru
fullir af orku sem þeir hvorki
vita hvernig má beizla né hleypa
út. Aðeins 20 ,blokkum’ frá skrif-
stofu minni í New York fann ég
heim sem var mér áður ókunnur.
Strætin eru skuggalegri, öll
skilti eru á spönsku og fólkið lif-
ir lifi sínu á gangstéttunum. —
I Meðan verkið var að skapast í
huga mínum, fór ég á „umráða-
i „Musical Drama.” Vettvangur
j „West Side Story” er New York
í stað Verona. Árekstrar milli
Capulets og Mantagnes umskap-
ast í „landamærabaráttu” milli
nýinnfluttra Puerto Rico búa og
hinna innfæddu. Hin fræga „bal-
cony scene” er leikin í hruna-
stiga að húsabaki, og í stað Róm-
eó og Júlía, nefnast elskendurn-
ir Tony og Maria. Hann er af
pólskum ættum, en hún er frá
i Puerto Rico.
Puerto Rico er lítil eyja á
mörkum Atlantshafsins og Kar-
íbahafsins. Að stærð er eyjan
j tæplega einn tíundi af íslandi, en
fólksfjöldinn er u.þ.b. tvær og
! hálf milljón. Eyjan er eitt þétt-
býlasta land jarðarinnár. með
rúmlega 700 íbúa á fermíluna. Til
samanburðar má geta þess, að
Leonard Bernstcin
Jerome Robbins er leiklistar-
kénnari jafnframt því að vera
, balletdansari. Ungur leiknemi
Maria (Natalie Wóod) og Tony(Richard Beymer), sém fara með kom eitt sinn að máli við hann
aðalhlutverkin í kvikmyndinni. að lokinni æfingu á Rómeó og
Jerome Robbins
svæði” unglinganna, ræddi við
fyrirliða og félagsmenn og sótti
dansleiki þeirra. Eg öðlaðist
þarna þá hörmulegu vitneskju, að
þessir unglingar álitu sig fædda
inn í þá verstu veröld sem hugs-
azt gat, og að það sem mestu
máli skipti væri að lifa stutt en
vel.”
Þeir álíta það lífsnauðsyri að
bindast samtökum og „eighast”
hluta af ömurlegu stræti í sóðá-
legu fátækrahverfi. Einstakir eru
þeir ekkert, en sameinaðir í
„gang” fyllast þeir stórkostlegri
öryggistilfinningu. „Þetta er okk-
ar heimur! Haltu þér fyrir utan
hann. Við höfum svörin, við
þörfnumst þinna ekki — því fyrr
sem þú skilur það, því fyrr ,,fattr
arðu" fyrir okkur.”
„West Side Story” er „sterk”
nútíma saga og eins fersk og for-
síðufréttir morgundagsins.
Það tók Robbins sex ár að santí
færa Laurents og Bernstein um
ágæti hugmyndar sinnar og fá
þá til að skrifa söguna og semja
tónlistina. Enn átti eftir að líða
g 28. apríl 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ