Alþýðublaðið - 28.04.1963, Side 16
HWtWWWWWWWWmWVmVMMWWWM/WMMWWWW»>MWMMWWtWWMMMWIWW
GRJOT hrundi úr Olafsvíkur-
euni síðastliöinn sunnudag og'
lenti á jeppabifreið, sem var á
leið frá Sandi til Ólafsvíkur.
Bifreiðinni ók Jóhannes Jóns-
son frá Ólafsvík, en með hon-
um í bílnum var faðir hans.
j j Þá feðga sakaði ekki, en grjót-
| ið lenti framan á vélarhúsi jepp
ans, reif upp vélarhúsið og ann
að brettið og sneri bílnum við
á veginum. Mikil mildi var, að
þcir skyldu ekki vera komnir
nokkrum sentimetrum íengra,
því að þá liefði grjótið fariö inn
í bílinn.
Ólafsvíkurenni hefur alltaf
þótt glæfralegt og um það hef-
ur þetta verið kveðið:
Illfær leið með „Ennis“-björgum,
ótal hættur steðja að mörgum.
Þeim er sína leið hér leggja, /
langt er ei milli brims og eggja.
(Guðm. Ágústsson).
Myndin er tekin við Ólafs-
víkurenni. (Ljósm.: G. Á.),
BÆTT ÚR BRÝNNI ÞÖRF:
i. mai
kaffíð
KONUR í fulltrúaráði Al-
þýðuflokksfélags Ileykjavík-
ur gangast fyrir veizlukaffi
í Iðnó 1. maí. Þetta 1. maí-
kaffi hefur verið mjög vin-
sælt og fjölsótt, og náð að
setja drjúgan svip á daginn.
Að þessu sinni verður
meiri undirbúningur að kaffi
veitingunum en nokkru
sinni fyrr. Því er heitið á
gott flokksfólk, að styðja
þetta málefni vel. Konur, er
vilja baka kökur, eða gefa
aðrar veitingap, láti vita nú
um helgina í eftirtalda síma:
15216 Guðbjörg Brynjólfsd.
13989 Rmilía Samúelsd.
12930 Soffía Ingvarsdóttir.
NÚ UM þessar mundir munu vera
komnir 60 bátar á síldveiðar, en
eins og kunnugt er, hefur verið
síldveiði dágóð að undanförnu
rúmar 30 mílur norðvestur af
Akranesi. Sæmilegt veður var á
miðunum í gær, en ekki var um
mikinn afla að ræða. Var vitað
um afla 33 báta, sem samtals fengu
12.650 tunnur síldar. Er síldin feit
og falleg, en ekki er mikið áf henni
á miðunum. Fengu 27 bátar engan
afla svo teljandi sé.
Til Reykjavíkur komu 28 bátar
með samtals 11.100 tunnur síldar.
Lögðu þeir allir afla sinn upp hjá
fiskvinnslustöðinni að Kletti, og
var þar komin löndunarbið í gær,
þannig, að bílar þurftu að bíða
stundarkorn með aflann eftir að
honum var skipað upp. Þessir bát-
ar komu með afla til Reykjavík,ur
í gærmorgun:
Reynir VE 400 tunnur, Runólf-
ur 200, Hringver 300, Kópur 300,
Sæúlfur 500, Hafrún 600, Sæfari
550, Akraborg 700, Ólafur Magn-
ússon 1100, Jón á Stapa 250, Víðir
SU 500, Guðmundur Þórðarson
500, Jón Oddsson 450, Gullfaxi
300, Sólrún 300, Sigurpóll 300, Jón
as Jónsson 100, Stapafell 150, Bára
150, Margrét 250, Steingrímur
trölli 350, Víðir II 550, Ófeigur II
1100, Strákur 200, Sigurður Bjarna
son 300, Leifur Eiríksson 200, Hall
dór Jónsson 400 og Helgi Flóvents
son 100 tunnur.
, Akranesbátar lögðu upp síldar-
afla sinn á Akranesi í gærmorgun.
Voru þeir allir með frekar rýran
BELGRAD (NTB-Reuter) — Júgó
slavar hafa lagt til, að Júgóslav-
ar, sem heimsækja Noreg, Svíþjóð,
Danmörk og ísland, og Norður-
landabúar, sem heimsækja Júgó-
slavíu, verði undanþegnir skyldu
til þess að sækja um vegabréfs-
áritanir.
Formælandi stjórnarinnar skýrði
frá þessu á blaðamannafundi á
föstudag. Rikisstjórnir Norður-
landa fjalla nú um málið.
afla, eða sem hér segir: Höfrungur
II 600 tunnur, Höfrungur 400,
Skírnir 300, Haraldur 150, Sigur-
fari 100 tunnur.
WMÍWyWWWMWWMtW
ÍGÍFURLEG aðsóku hefur !>
verið að leikriti Þjóðleikhúss j;
ins, Dýrin í Hálsaskógi. Var j J
leikritið sýnt tvisvar fyrsta J!
sumardag og seldust þá upp J!
allir miðar á tveim tfmum. í'! >
dag verður lelkritið sýnt í ;;
síðasta slnn, og seldust allir ;;
miðar á þá sýningu á þrem ;!
stundarf jórðungum. Vegna !!
þessarar miklu aðsóknar hef ! >
ur nú verið ákveðið að end- <;
ursýna leikritið næsta haust, ;;
en nú verður að hætta við j!
sýningar vegna óperunnar. ■ i!
WWMVWWWWWWMWW
37 nýir
félagar
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Reykja
víkur hélt fund í Iðnó á föstudags-
kvöld og hafði hann með nokkru
nýju sniði. Auk venjulegra fund-
arstarfa, þar á meðal inntöku 37
nýrra félaga, drukku fundarmenn
kaffi saman og Iiorfðu á mjög at-
hyglisverða, íslenzka kvikmynd,
sein Loftleiðir hafa látíð gera. í
staðinn fyrir venjuleg ræðuhöld
var pólitískur spurningatími og
stjórnaði 'honum Arnbjörn Krist-
insson, en spurðir voru Gylfi Þ.
. Gíslason, Eggert G. Þorsteinsson
og Benedikt Gröndal. Spurðu bæðl
stjórnandi og fundarmenn og kom
margt fróðlegt fram úr stjórnmála-
heiminum, stjórnmálastarfinu og
varðandi viffhorf jafnaðarmanna
til, næsta kjörtímabils, hvort sem
þeir yerða í stjórn eða utan stjórn-
ar.
Fundurinn var vel sóttur og
tókst ágætlega.
ÍB]£SHO)
44. árg. — Sunnudagur 28. apríl 1863 — 85. tbi.
. MRAÐFRYSTISTÖÐ Vestmanna-
eyja, sem er eign Einars Sigurðs-
lionar útgerðarmanns I Reykjavík,
ttefur sótt um leyfi til byggingar-
♦wefndar Vestmannaeyjabæjar um
tjyggingu á síldarverksmiðju við
fefcimjölsverksmiðju fyrirtækis-
4os- staðnum. Er áætlað að af-
lcósfr l ennar verði um 2000 tunuur
á sóiarbring. Einnig er í ráði að
■> 4feisa síldarþró, sem taka á 30—40
þúsund mál síldar, og svo lýsis-
geymi fyrir 400 tonn lýsis. Er ætl-
unin að hefja framkvæmdir hið
allra fyrsta, eða í maí, og standa
vonir til, að hægt verði að taka
verksmiðjuna í notkun fyrir haust-
ið, ef allt gengur samkvæmt áætl-
un.
Blaðið ræddi í gær við Ólaf
Gunnarsson, framkvæmdastjóra
Hraðfrystistöðvarinnar, og sagði
fCOSNiNGAR Á
ÍTALIU í DAG
RÓI<, 27. apríl. — 34,1 milljón
aKkvæöisbærra ítala ganga að kjör
• toorðinu á morgun og fréttamenn
kelja litlar líkur til þess að stór-
vægilegar breytingar verði í kosn-
éngunum, en það hefur a. m. k.
yerið talið öruggt að Kristil. demó
tu-ataflokkurinn, sem liefur farið
«neð völdin frá stríðslokum, verð-
-«r að hcyja harða baráttu, ef hann
á ekki að tapa þingsætum.
Kosið er um 631 fulltrúa' til
þjóðþingsins.
í baráttunni milli tveggja
stærstu flokkanna hefur aðaírit-
ari Kristilega demókrataflokkslns,
Aldó More, oft haldið því frám,
að Öll atbvæðit sem greidd jVðu
smáflokkunum, mundu leiða* til
Framhald á 3. síðu. ’
hann, að þegar væri starfandi á
vegum Hraðfrystistöðvarinnar
fiskimjölsverksmiðja, og gilti hún
sem tveir þriðju hlutar fullkom-
innar síldarverksmiðju. Hefði ver-
ið sótt um leyfi til að byggja það
sem á vantaði, hús yfir síldarsjóð-
ara, skilvindur, og síldai-pressur
og fleiri tæki, sem nauðsynleg eru
til verkunar á feitum fiski.
Ætlunin er að reisa hina nýju
verksmiðju norðan við sjálfa Hrað
frystistöðina, og mun hún ganga
út að höfninni, þannig, að bátar
munu geta lagzt beint upp að síld-
arpöllunum til löndunar.
Ein síldarverksmlðja er starf-
andi nú í Vestmannaeyjum, en af-
köst hennar eru takmörkuð og
hvergi nærri fullnægjandi. Mun
því hin nýja verksmiðja bæta úr
brýnni þörf. Hafa bátar, sem feng-
ið hafa síld í svokallaðri BUGT,
orðið að sigla 20 tíma til löndunar
í Reykjavík til þessa, í stað þess
að stíma aðeins í 8 tíma til Vest-
mannaeyja. Hafa, eins og mönn-
um er kunnugt hlotizt af þessu
stórslys, þegar hlaðin skip hafa
lagt i tvísýnu með afla fyrir Reykja
nes, í stað þess að geta siglt með
hann til Vestmannaeyja.