Alþýðublaðið - 30.04.1963, Síða 16
jslendingar þekkja ekkert
réttlæti í þessum málum",
sagbi einn hásetinn á Milwood
BLAÐAMAÐUR og ljósmynd-
ari Alþýðublaðsins fóru í gær-
kveldi með lóðsbátnum um
borð í skozka landhelgisbrjót-
inn Milwood frá Aberdeen. Tor-
arinn kom á ytri höfnina rétt
um klukkan tíu og var varð-
skipið Óðinn skammt á undan.
Þegar siglt var framhjá Ing-
óífsgárði mátti sjá hundruð
Reykvíkinga bíða þar eftir
komu skipanna. Á Faxagarði
var einnig fólk og fjöldi bif-
reiða.
Togarinn Milwood A-472 er
þriggja ára gamalt skip, byggt
árið 1960 og er 250 lestir að
stærð.
Fyrst hittum við að máli Le-
on Carlsson, II. stýrimann á
Óðni og skýrði hann svo frá,
að um borð væru 7 skipverjar
af Óðni en fimm af áhöfn tog-
arans, tveir hásetar og þrír
vélamenn. Leon var fyrirliði
L þeirra varðskipsmanna um borð
'tt í togaranum. Varðskipsinenn
JOHN STEPHENS
létu liið bezta af skiptum sín-
uni við þá menn af áhöfn tog-
arans, er þeir höfðu haft samán
við að sælda.
Á brúarvæng varð á vegi okk-
ar Jolm Stepcns, háseti á Mil--
wood, 26 ára gamall Aberdeen-
búi, kvæntur og tveggja barna
faðir. Kvaðst hann ekki fyrr
-hafa komið til Reykjavíkur, en
oft verið við veiðar hér við land.
Ekki kvaðst hann hrifinn af
þessu óvænta fríi, því fyrir sig
þýddi það aðeins tekjumissi.
Hann kvaðst ekkert vita um það
hvort þeir skipverjar yrðu látn-
ir bíða hér, eða fara flugleiðis
heim.
Aðspurður um árekstur skip
anna fullyrti John Stephens,
að Óðinn hefði sveigt í veg fyr-
ir þá og ætti alla sök á þvi. —
Varðandi það atferli skipstjóra
síns, að koma sér undan sagði
hann, að hann væri bara að
vernda sig, og hann hefði snú-
ið við vegna þess, að hann hefði
ROBERT DUFF
ekki viljað láta sökkva skipi
sínu undan sér. John Stephens
sagði að þeir væru búnir að
vera fimm daga á veiðum og
hefðn fengið 300 kassa. Hann
sagði, að þegar varðskipið liefði
komið að þeim, hefðu þeir ver-
ið að taka vörpuna inn, og
þurft að höggva á endavírana
til að komast sem skjótast af
stað.
Því næst ræddum við við Ro-
bert Duff, háseta, einnig frá
Aberdeen. Hann fullyrti sömu-
lelðis, að árekstur skipanna
hefði að öllu leyti verið sök Óð-
insmanna , þvi Óðinn hefði
beygt í veg fyrir togarann. Varð
andl þá hegðun skipstjóra síns,
að reyna að skjóta sér undan
réttlætinu, sagði Robert Duff,
að skipstjórinn hefði auðvltað
vfljað komast sem fyrst heim til
Aberdeen því hann hefði vitað,
að hér mundi ekki fjallað um
mál hans af óvilhöllum mönn-
um („ knew that he would not
get a fair trial”). Sagði hann,
að íslendingar þekktu ekkert
réttlæti (no justice at all) í
þessum málurn og hefði skip-
stjóri því gert réttast í því að
reyna að koma sér undan.
Robert kvaðst hafa verið hér
á íslands miðum með sama
skipstjóra vorið 1961, en á öðru
skipi. Þá hefði varðskipið Þór
(skipherra Þórarinn Björnsson)
tvisvar aðvarað þá um, að þeir
væru fyrir innan Iínu og síðan
rekið þá út fyrir ,og hefði skip-
herra varðskipsins þá látið þau
orð falla, að í næsta skipti
mundi hann beita skipstjórann
valdi („by force”). Nú væri
þetta næsta skipti korrtið og
lilyti skipherra þá að vera á-
nægður.
Báðir þessir hásetar, sem við
ræddum við báru varðskips-
mönnum þeim, er um borð hjá
þeim voru, hið bezta orð í hví-
vetna.
Álþýðuflokks-
félag Kópavogs
ALÞYÐUFLOKKSFÉLAG
Kópavogs heldur skemmti-
fund í félagsheimilinu Auð-
brekku 50 í kvöld kl. 20,30.
1. Kvikmyndasýning.
2. Stutt ávörp flytja:
Emil Jónsson, ráðherra.
Guðm. í. Guðmundsson
ráðherra.
Ólafur Ólafsson Iæknir.
3. Dans.
Fjölmennið.
NEFNDIN.
♦WVWWWWVWVmWMW
44. árg. — ÞriSjudagur 30. apríl 1883 — 88. tbl.
KEFLAVÍK, NJARÐVÍK, REYKJAVÍK,
VESTMANNAEYJAR, AKRANES.
SILDVEIÐIN þessa dagana er
sáralítil. Eru 70 bátar á síldveiðum
nú, og eftir því, sem einn heim-
ildarmaður blaðsins úti á iandi
segir um ástandið, þá snúast þelr
eins og liundur í bandi hver um
annan á miðunum og fæstir ,á
köst. Þá sjaldan, sem eitthvað v iið
ist, geta þeir vart komið því á
land, því allstaðar er verið að verka
fisk.
Eftir því, sem blaðið bezt veit,
fengu þessir bátar afla í gær: —
Steingrímur Trölli: 835 tunnur,
Kópur 600, Ófeigur II. 400, Höfr-
ungur II. 400, Stapafell 2Q0 Guð-
mun'dur Þórð f’son 500, Sæfari
300, Akraborg 300, Ólafur Tvlagn-
ússon 150, Garðar 450 og Gullfaxi
450 tunnur.
Gæftir hafa verið sæmilegar.
Flestir bátarnir eru á miðunum út
af Akranesi, en í gær köstuðu
nokkrir bátar á svokölluðum „For
um“, þriggja tima siglíngu frá
Reyk.javík.
Hæstur síldarbáta frá því síldln.
kom við Akranes, er nú Kópur
fró Keflavík með 4000 tunnur, sem
er ágætur afli á ekki lengri tíraa.
Hefur hann fengið góð köst frá
því síldin kom, — fékk t. il gitd
fyrstur báta við Akranes.
Veiði netabáta í Vestmannacvj-
um hefur verið sáralítil að und-
anförnu og sömu sögu er að segja
um línubáta. Afli netabáta í K -fla
vik hefur aftiir á móti verið dá-
góður upp á síðkastlð. í gær fékk
t. d. Ingiber Ólafsson 20 tonn.
í gær fóru á síldveiðar frá Kefla
vík og Njarðvíkum þessir bátar:
Jónas Jónasson, Sigurkarfi, Vonin,
Árni Þorkelsson og Gunnólfur. —.
Ekki var vitað til þess að neinn
þeirra hefði fengið afla í gær.
awwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwv
VEIZLUKAF
ÉIÐNÓ 1. MAÍ
FULLTRÚARÁÐ Kvenfélags
Alþýðuflokksins gengst fyrir
veizlukaffi í Iðnó 1. maí.
Þetta kaffi er orðinn fastur
liður í hátéðahöldunum 1.
maí, mjög vinsælt og frægt
fyrir það, live allar veiting-
ar eru rausnarlegar. — Má
segja, að borðin svigni undan
kræsingunum. Húsið er opn-
að kl. 2,30 svo að það passar
vel fyrir þá, sem sækja úti
fundinn á Lækjantórgi að
fara beint yfir í Iðnó og fá
sér kaffi, þegar fundinum er
lokið.
*^wwwwwwwwwwó»wwwwwwwwwwww%wwwwwwww
UM BORÐI
MILWOOD
ÞESSI MYND er tekin
skömmu efiir <að Mihvood
kom hér á ytri höfnina. Sá
á hvíta samfestningnum er
fyrsti vélstjóri togarans, í lúg
unni er Leon Carlsson, II.
stýrimaöur á Óöni, cn hann
sighli togaranum til Reykja-
víkur. Tollvörður snýr baki
í myndavélina. Myndin er 'ek
in í klefa skipstjórans á Mil-
wood.