Breiðablik - 01.01.1913, Page 1

Breiðablik - 01.01.1913, Page 1
BREIÐABLIK. Mánaðarrit til stuðning's íslenzkri menning. FRIÐRIK J. BERGMANN RITSTJÓRI VII. Ár. WINNIPEG, JAN. 1913. Nr. 8. Síra Lárus Thorarensen. i. Við blæmjúkan blíðstrengja hreim í blómfögrum, sólhýrum dölum þú undir þér brosandi, einn: Þú áttir þinn hugsjóna heim svo hátt ofar mannglaumsins sölum, — varst sælastur einmana, einn! Það gall ekkert hjáróma hljóð í hljómanna draumlöndum þínum, né truflandi, þreytandi þys. Og nóttinni lastu þín Ijóð, er lukti’ hún þig brúðfaðmi sínum, við blikandi stjarnanna blys. Þú gazt engan sorgbitinn séð, þú sazt um í kyrþey að bæta hvers aumingja einstæðings böl; þá svall þér í sorgmóði geð, ef sástu’ einhvern fátækan græta, — hver smælingjans kvöl varð þín kvöl. — Eg man, hvað þinn hugur var hýr og heiðríkur, víðsýnn og fagur, hve viðkvæm, en létt var þín lund; — þín minning í brjósti mér býr sem brosandi miðsumar dagur, þótt stutt yrði samverustund.

x

Breiðablik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.