Frækorn - 15.07.1901, Blaðsíða 1

Frækorn - 15.07.1901, Blaðsíða 1
REYKJAVÍK 15. JÚLÍ. ! 14. TBL. 1901. Einu sinni dag hvern. Ekki trúar- efldum hetjum ætla eg að kenna ráð, eða þeim, sem offra drottni öllu sínu, lífi’ og dáð, ekki liinum eðallyndu, er í háska sýna þor og um heiminn fúsir feta frelsarans í kærleiksspor. Nei, eg að eins til þín tala, trúarveiki bróðir minn! sem að með mér sækist eftir að sjá og nálgast drottin þinn. Þér eg ræð af heilum huga: himnaföður mildan bið, að þú getir eiuu sinni uppfyllt dag hyern lögmálið. þú munt finna þrekið vaxa og þína sálarró á uý, ef þú dag hvern góðverk gjörir glaður Jesú nafni í; Þessi yrkja þá mun verða þér að nauðsyn smátt og smátt, og hið minna annað meira af sér leiða góðrerk brátt. Til þess ótal tækifæri og tilefni’ að finna er; hvar sem helzt þú hvörmum rennir, heilög mannást bendir þér á þurfamann, sem þarfnast gjafa, þú skalt eitthvað gleðja hann; á hinn sjúka’ og hugarhrellda, hugga reyndu aumingjann. Til hins rægða’ og syndaseka segðu eitthvert hlýlegt orð; bros þitt getur barnið huggað, er heiskum tárum vætir storð; ef þú heyrir hallmælt öðrum, hógvær taktu svari hans; í hættu ef þú finnur flugu, feril greiddu aumingjans. A hjartalag þitt herrann lítur, hann sér að eins vilja þinn, og sérhvert góðverk, sem þú gjörir, signa lætur anda sinn. Byrja það, og brátt þú finnur, að blessun guðs í laun þú fær, og þú dag hvern feti færist föðurlandi þinu nær. Ur dönsku. þýtt af Guðm. Guðmundssyni. Kristur og Lögmálið. Eftir C. H. Spurgeon. „Sannlega segi eg yður: þangað til himinn og jörð forgengur, mun ekki hinn minnsti bókstafur eða titiil lög- málsins líða undir lok, unz því öllu er fullnægt". Matt. 5, 18. Menn hafa gjört sig seka í mörg- um og stórum villum viðvíkjandi lög- málinu. Fyrir nokkru voru þeir menn alt í kring um oss, sem full- yrtu, að lögmálið væri alveg upphaf-

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.