Frækorn - 15.07.1901, Side 1
REYKJAVÍK 15. JÚLÍ. ! 14. TBL.
1901.
Einu sinni dag hvern.
Ekki trúar- efldum hetjum
ætla eg að kenna ráð,
eða þeim, sem offra drottni
öllu sínu, lífi’ og dáð,
ekki liinum eðallyndu,
er í háska sýna þor
og um heiminn fúsir feta
frelsarans í kærleiksspor.
Nei, eg að eins til þín tala,
trúarveiki bróðir minn!
sem að með mér sækist eftir
að sjá og nálgast drottin þinn.
Þér eg ræð af heilum huga:
himnaföður mildan bið,
að þú getir eiuu sinni
uppfyllt dag hyern lögmálið.
þú munt finna þrekið vaxa
og þína sálarró á uý,
ef þú dag hvern góðverk gjörir
glaður Jesú nafni í;
Þessi yrkja þá mun verða
þér að nauðsyn smátt og smátt,
og hið minna annað meira
af sér leiða góðrerk brátt.
Til þess ótal tækifæri
og tilefni’ að finna er;
hvar sem helzt þú hvörmum rennir,
heilög mannást bendir þér
á þurfamann, sem þarfnast gjafa,
þú skalt eitthvað gleðja hann;
á hinn sjúka’ og hugarhrellda,
hugga reyndu aumingjann.
Til hins rægða’ og syndaseka
segðu eitthvert hlýlegt orð;
bros þitt getur barnið huggað,
er heiskum tárum vætir storð;
ef þú heyrir hallmælt öðrum,
hógvær taktu svari hans;
í hættu ef þú finnur flugu,
feril greiddu aumingjans.
A hjartalag þitt herrann lítur,
hann sér að eins vilja þinn,
og sérhvert góðverk, sem þú gjörir,
signa lætur anda sinn.
Byrja það, og brátt þú finnur,
að blessun guðs í laun þú fær,
og þú dag hvern feti færist
föðurlandi þinu nær.
Ur dönsku. þýtt af
Guðm. Guðmundssyni.
Kristur og Lögmálið.
Eftir C. H. Spurgeon.
„Sannlega segi eg yður: þangað til
himinn og jörð forgengur, mun ekki
hinn minnsti bókstafur eða titiil lög-
málsins líða undir lok, unz því öllu
er fullnægt". Matt. 5, 18.
Menn hafa gjört sig seka í mörg-
um og stórum villum viðvíkjandi lög-
málinu. Fyrir nokkru voru þeir
menn alt í kring um oss, sem full-
yrtu, að lögmálið væri alveg upphaf-