Frækorn - 15.07.1901, Qupperneq 8
112
FRÆKORN.
bæri af „öllum íslenzkum kennimönn-
um að snilld og lærdómi". Honum
hefur fundizt, að hann þyrfti að gjalda
líku líkt. Hann sendir þess vegna í
„Yerði ljós“ öll lofsorðin aftur með
vottum. fessi persónulegi lofsöngur
ritstjóranna sín á milli á alls eigi við
í kirkjulegum t.ímaritum. Ritstjórar
kristilegra tímarita mega eigi segja
hver við annan: Hældu mér og eg
skal hæla þér. Þoir eiga að gefa
guði en eigi sjálfum sér dýrðina. —
Pessi galli á „Vei ði ljós„ lagast, þeg-
ar ritstjórinn nær meiri andlegum
þroska". — Þess biðjum vér í von
og trú.
T^riður.
Sorg og gleði, sæla’ og neyð,
sólskin, regn og blíða:
Meðan ævi skundum skeið
skulum vér það líða.
Þegar loks vort Jíflð þver
og lagt er hold í foldu:
Friður sannur fenginn er, —
friður býr í moldu.
____________(’72)
íœn.
Himneski faðir hjálpa mér
í hverri þraut og neyð,
í sæluvist hjá sjálfum þér
sál mína hóipna leið.
Wn - ’72).
Prestaköll til sölu. — A Englandi
er það enn siður að selja prestaköll, eins
og gjá má af þessari auglýsingu sem ný-
lega stóð í „Times“:
„Prestakall er til sölu í Oxfordshire;
það hefur i árlegum tekjum 519 pund
sterling (rúmar 9000 krónur); prestssetr-
ið er mjög gott, 40 mínútna vegur frá
járnbrautarstöðvum; í söfnuðinum eru eng-
ir villukennendur og ekkert vínveitinga-
hús. Laust nú þegar. Verð : 1000 guinas
(20,000 kr.)“
Enskt hlað gjörir þá athugasemd, að
prestakall, þar sem hvorki er við villukenn-
endur né vínveitingar að stríða, ættu að
geta gjört prestinn að fagnaðar-öldung.
jPT' NÆSTA BLAÐ „PRÆKORNA“
kemur ekki út fvr en 6. eða 8. ágúst,
af því útg. er á ferð erlendis.
I næsta blaði kemur mynd.
lítsölumenn, sem enn ekki hafa greit-t
andvirði blaðsins fyrir 1. ár., eru beðnir
um að láta það ekki dragast lengur.
Útg.
NÝ BÓK!
Einar Magnússon: Práhvarfið frá hin-
um sanna kristindómi og rétt afturhvarf.
64 bls. í kápu, 50 au.. Pæst hjá höf. og
í Pósthússtræti 16, Reykjavík.
FRÆKORN
koma út h. 1. og 15. í hverjum mánuði,
kosta hér á landi 1 kr. 50 au., í Vest-
urheimi 60 cents. Borgist fyrir 1. okt.
Ursögn ógild nema komin sé til útg. fyrir
1. okt. og úrsegjandi sé skuldlaus fyrir
blaðið.
Afgreiðsla blaðsins er í Pósthússtræti
16, Reykjavík.
ÖTa. OS ÁBYRG-ÐA.RM.: DA.VID 0STLTJND
ALD AB-PKBNTSMIÐ JA.