Frækorn - 31.12.1902, Síða 2
178
FRÆKORN.
safninu í Lundúnum, —heldur nota Egiptar þær
til eldsneytis og til áburðar á jarðir sínar, og
líkklæðin, sem þær hafa verið sveipaðar með,
eru tekin, og heilir skipsfarmar af þeim sendir
til Evrópu og Ameriku, til pippírsgjörðar.
Vísindainenn liafa rannsakað þessi lík, og er
það mjög einkennilegt, að þau eru flest af
ungum svarthærðum og hárprúðum mönnum,
Og tennur þeirra.alveg óskemmdar og líkamirn-
ir í góðu ásigkomulagi, eins og dauða þeirra
hefði borið snögglega að. Þar eð það var hér,
sem Móses gjörði kraftaverk sín, og þetta var
greftrunarstaður alls Egyptalands, álíta menn,
að hér muni vera að ræða um fórnir þær, sem
féllu fyrir reiði guðs, þegar hann sendi engil
sinn um landið, ti! að deyða alla frumburði,
von og blóm hverrar fjölskyldu. Og það er
án efa þessi plága, sem Hóseas á við, þegar
hann segir: „Egyptaland skal safna þeiin, og
Móf (Nof) ska! jarða þá.“ Hós. 9, 6.
Hugsið til þess, þegar sá dagur rennur upp,
þá er allir hinir dauðu, allt í frá Adam og til
þeirra, er síðast deyja, fyrir endurkomu frels-
arans, eiga að vakna til lífs aftur; — engum
verður gieymt og enginn eftir skilinn. Hvílík-
ur sægur vetður þá á jörðunni! Margir álíta,
að varla verði rúm fyrir alla.
En það er samt sem áður engin ástæða til
að óttast það; því að allir núiifandi íbúar jarð-
arinnar gætu -- ef þeir stæðu þétt saman -
hæglega staðið á jafnstóru svæði og minsta
amtið í Noregi (Jarlsbergs og Lárvíkur), sem er
2318 fcrhyrnings kílcm.* Og alit þetttasaman-
safh af mönnum - fjóríán hundr. millj. —
mundi naumast sjást á hnettinum.
Myndin sem hér er sýnd, er tekin eftir ljós-
mynd af múmíu Ramsesar II., sem fannst í
grafhveifingu í fjallshlíðinni við Diex - el - Ba-
*) Ef talið væri, að 4 metin gæíustaðiðá 9 ferhyrnings-
fetum, þá mundi t. d. í Danmörkn-sem er eitt af minnstu
löndum jarðarinnar-rúmast meiren 150,000,000,000 manna
eða um 100 sinmim fleiri en allir menn, sem nú lifa á
jörðunni. Ritstj.
hari á Egyptalandi. Það er greinilega sannað,
að hann var sá konungur, sem kúgaði ísraels-
inenn, rétt áður en þeir fóru burt úr Egypta-
laudi, kringum 1500 f. Kr.*"*Að þetta er hið
smurða lík Ramsesar II., sést með Ijósum
merkjum á sjálfri líkkistunni. Hér um bil 40
múmiur fundust á sama stað.
Ritgerðin um múmiur hér að framan er
þýdd lir norska tímaritinu „Herold", af Theó-
dóri Árnasyni, 13 ára að aldri. Þýðingin er f
alla staði nákvæm og góð. Mun það sjald-
gæft að sjá siíkt, og því getum vér þess
um leið og vér tökum ritgerðina upp í blaðið.
Ef til vill gætu fleiri af hinum yngri lesend-
um blaðs vors sent því einhverja ritgerð eða
þýðingu.
Ritstj. „Frækorna" spyr ekki eftir aldri og áliti
höfunda, heldur að eins eftir því, hvort þeir
komi með eitthvað, sem er verulega gott, fræð-
andi og skemmtilegt. Ritstj.
<o® ©'■OO
Vonirnar
—o —
Þeir inenn eru til, sem lítilsvirða trú og krist-
indóm, afneita guðdómi frelsarans — og guð
sjáifum, en virða þó meðbr.æður sína og vilja
ekki vísvitandi gjöra á hluta þeirra.
Þessir hinir sömu menn gæta ekki þess, að
tim leið og þeir lítilsvirða alla trú og kristin-
dóm, særa þeir hinar viðkvæmustu tilfinning-
ar fjölda margra meðbræðra sinna - máske
sinna nánustu vina og vandamanna, og fótum
troða jjað, sun þeim er dýrmætast.
Þeir gæta þess ekki, að með því að afneila
guðdómi írelsarans og vinna_ýað útbreiðslu
þeirrar skoðunar, að liann haíi ekki verið sá er
hann sagðist vera, slíta þeir hjartans helgustu
bönd og leitast við að slökkva það Ijós, sem
lýst hefur og lýsa mun um ókomnar aldir
ótölulegum fjölda einstaklinga, allt í frá vögg-
unni til hliða himinsins.
Þeir leitast við að telja mönnum trú um, að