Frækorn - 13.10.1904, Side 3
FRÆKORN.
163
þólska klerkavaldi; þegar bannfæring
páfans útilokaði hann »frá guði og
allri fre!sun«; þegarhannvar gefinn á
vald hins illa, þá var hann samt ör-
uggur og gat sungið:
»Vor guð er borg á bjargi traust.«
Og hver sá, sem hefir fengið þá
trú á drottin sjálfan og orð hans, sem
Lúther hafði, hann metur einskis
sleggjudóma ofstækismanna og fylgir
rólegur orðinu, sem er >andi og líf«.
Hann tilheyrir þeim flokki, sem drott-
inn talar um í Opinb. 14, 12: »Hér
eru þeir, sem varðveita boðorð guðs
og trúna á Jesúm.«
Er laugardagurinn hinn sjö-
undi dagur vikunnar?
Já, vitnar tímareikningurinn.
Já, segja flestir þeir, sem halda
sunnudaginn heilagan; því að hann
halda þeir einmitt sem fyrsta dag vik-
unnar; en allir skilja, að sé sunnu-
dagurinn fyrsti dagur vikunnar, þá er
líka laugardagurinn hinn sjöundi.
Samt sem áður virðast sumir verða
efablandnir, þegar kenningu biblíunn-
ar er haldið fram, jafn ómótmælanleg
og hún er um það, að hinn sjöundi,
en ekki hinn fyrsti dagur vikunnar er
hvíldardagur; þá segja sumir:
»En það er þó ekki svo auðvelt að
vita það með neinni vissu, hver dag-
urinn er hinn sjöundi, það getur ef
til vill eins vel verið sunnudagur eins
og laugardagur.«
Pað er við þá, sem þannig tala, að
vér hér viljum segja nokkur orð.
Enginn þarf að vera í óvissu út af
þessu máli. Bibiían sýnir mjög svo
greinilega, að laugardagurinn er hinn
sjöundi dagur vikunnar.
í 2. Mós. 31, 16 lesum vér:
ísraelsmenn skulu halda hvíldardaginn,
svo þeir gerí hvíldardaginn að eilífum
sáttmála fyrir sína eftirkomendur.*
Þegar hinn eih'fi guð sagði forðum
daga, að ísraels börn mundu halda
hvíldardaginn heilagan gegn um ald-
irnar, þá er það full trygging fyrir því,
að þeir hafa gert það.
Saga þeirra og vitnisburður sjálfra
þeirra sanna líka þetta. Feir hafa
haldið hvíldardaginn, að vísu ekki
eins og þeir ættu að halda hann, þeir
hafa ekki haldið hann af »lyst« oggleði,
(Es. 58, 13), en í hinu ytra hafa
þeir haldið fast við hann.
7 — 8 miljónir Gyðinga eru nú í
heiminum. Spyrðum vér þá um það,
hver dagur sé hvíldardagur, þá mundu
þeir ekki svara: »iJað vitum vér ekki;
þaðereftil vill laugardagur, en líka ef
til vill sunnudagur.« Nei, þeir mundu
svara afdráttarlaust, allir þessir vottar:
»Það er laugardagurinn, sá dagur og
enginn annar; vér höfum varðveitt
hann gegn um aldirnar; í sannleika:
hann er drottins heilagi hvíldardagur «
— Þurfum vér framar vitnannavið?
Drottinn, sem ekki getur logið, sagði
til forna, að ísraelsmenn, eða Gyð-
ingar, mundu framvegis halda hvíld-
ardaginn (hinn sjöunda dag) meðal
»eftirkomenda sinna«. Pau orð hafa
komið fram. Hver einasti Ísraelíti,
sem heldur!augardaginn,er lifandi vott-
ur þess, að sá dagur er »hvíldardag-
ur drottins«.
Lesari! Heldur þú hvíldardaginn
heilagan samkvæmt guðs orði? Ef
ekki, hví ekki?
£átið börnin koma fil Jesú !
»Bannið þeim ekki að koma«, segir
Jesús.
Berið þau í bæninni til drottins;
hann mun enn sem fyr leggja hendur
sínar yfir þau og veita þeim blessun
sína. En gleymið ekki, foreldrar, að
vera börnunum samferða til Jesú. Tal-
ið við börnin um frelsarann og elsku
hans til mannanna og biðjið með
börnunum til hans. »Þá munuð þið
geta vænst þess að fá börnin með
ykkur á drottins vegu, svo að þið á
síðan munuð geta sagt: »Sjá, hér
erum við og þau börn, sem drottinn
gaf okkur.«