Frækorn - 18.01.1905, Side 2
2
FRÆKORN
himneska föðurs — þá munu hinir ver-
aldlegu hlutirnir ekki draga huga þinn
frá drotni þínum.--------Náð guðs er
heitið fyrir notkun meðala; vertu því
nákvæmur og kostgæfin að færa þér
þau í nyt. Bið guð daglega að auka
þér þekkinguna á sjálfum þér, ogjesú
Kristi, í verkum hans. Bið hann að
auka þér þekkinguna á fyrirgefandi
náð og ávaxtarsamri trú, bið um skiln-
ing á sameiningu föðursins, sonarins
og hins heilaga anda; bið um sanna
helgun hjartans og lífernisins; bið
um þrótt og þrek að veita mótstöðu
hinum andlegu óvinum, og náð til
að standa stöðugur, undir merkjum
drottins, alt til enda. Bið um eflingu
guðs ríkis. Bið fyrir vinum og ætt-
ingjum. Bið um blessun í þínum
tímanlegu störfum. Bið um auðmjúkt
og kristilegt hugarfar bæði í með-
læti sem mótlæti.
Kæri vinur, verið’getur, að þetta ný-
byrjaða ár verði hið síðasta ár þitt
hér á jörðunni. Ertu öruggur og ró-
legur með ástand þitt? Trúir þú í
sannleika á Jesúm? Sé svo, getur þú
með djörfung og hugprýði tekið
hverju, sem að höndum ber, — en ef
ekki, er þér hin ægilegasta hætta búin!
Notaðu náðarstundina, og kom til
frelsara þíns —kom til hans án tafar.
Keppstu að komast inn um hið rétta
hlið, og lát ekki hugfallast á stundum
erfiðleikanna,unz þú hefir fengið vitnis-
burð heil. anda i hjarta þitt um að
þú sért guðs elskulegt barn.
Byrja nú þannig hið nýja náðarár,
og muntu, ef þú lifir næstu áramót,
glögglega finna, að þú ert umvafinn
guðs miskunanda náð og kærleika.
C. H. v. Bogaizsky. (/. J. þýddi.)
Hvernig verður vilji guðs
fundinn ?
Biblíurannsókn
eftir
C. Skovgaard-Petersen.
Höf. að „Þýðing trúarinnar" og fleirum ritum.
Formáli höf.
Það er von mín, að þessi litla biblíu-
rannsókn, sem mér hefir veriðtil and-
legs unaðar og blessunar, megi líka
verða til hjálpar einum eða öðrum,
sem les hana.
Eg veit það víst, að margir trúaðir
menn bera svipað andvarp í hjarta
sínu og Susanne V. Klettenberg:
»Sál mín hefir einungis fálmhorn en
engin augu. Æ! eg vildi eg fengi
einhverntíma augu og mætti sjá!«
Eg veit það af eigin reynslu, að hjá
þeim, sem vill þjóna drotni, brýst oft
samskonar andvarp fram eftir því, að
hann fái glöggvar að sjá og þekkja
vilja guðs. Já, eg hugsa yfirleitt, að
það séu ekki margir trúaðir menn,
sem ekki hafi einhverntímaátt í þungu
sálarstríði, til að geta staðist þessa
spurningu: Hvað er nú guðs vilji í
þessu efni?
Vér finnum til þess, að það er áríð-
andi og er erfitt þó um leið, að vita
þaðTvíst í lífsins ringulreið, hvarvegir
guðs vilja liggja. En af því það er
bæði áríðandi og erfitt, þá hlýtur það
að verða oss hvöt til að rannsaka,
hvað guðs orð kennir oss í því efni.
Eitthvað í þá átt hefi eg verið að
reyna hér. Guð gefi þá sem flestum
lund og stillingu til að ígrunda það
líka sjálfir, hvað guðsorð kennir um
þetta efni. Eg ræð hverjum einstökum
manni til að leita uppi hina tilfærðu
ritningarstaði, að svo miklu leyti sem
þeir eru ekki teknir upp hér, —velta