Frækorn - 15.02.1905, Qupperneq 11

Frækorn - 15.02.1905, Qupperneq 11
FRÆKORN 31 eg nú veit, að eg með því að reiðast kom mér í óeðlilegt og sjálfum mér skaðlegt og óheilsusamlegt ástand, þá veit eg einnig hvaða freistingar það voru, sem tældu mig í það. Það var freistingin til þess.að aðgreina mig frá öðrum mönnum; um leið og eg áleit nokkra þeirra jafnborna mér,(jafn- inga mína), en aðrir virtust mér (lítil- fjörlegir) auðvirðilegir (»Raka«) heimsk- ar eða ómentaðar verur. Eg sé nú, að einmitt það að greina mig þannig frá mönnunum var aðalorsökin til fjandskapar míns gegn þeim. Með því að líta aftur á mitt fyrra líf, sé eg nú, að eg| aldrei gaf hinum óvinveittu (fjandsamlegu) tilfinningum mínum lausan tauminn gagnvart mér meiri mönnum og að eg aldrei móðgaði þá; en aftur á móti vakti hin lítilfjör- legasta móðgunarathöfn frá þeim, sem eg ætlaði að væri minni háttar en eg, gremju mína og því meir sem eg þótt- ist taka slíkum manni fram, því fljót- ar móðgaði eg hann, já, stundum kom helber ímyndun um að annar eins maður ”væri minni háttar en eg, því til leiðar, að eg móðgaði hann. En nú sé eg, að einungis sá er hátt yfir alla aðra hafinn, sem lítillækkar sig fyrir þeim og þjónar þeim. Eg skil nú, að það, sem er göfgað með- al mannanna, er guði andstyggilegt, og hvers vegna svo er komist að orði: »Vei hinum ríku og mikilsmetnu«, og: »Sælir eru hinir fátæku og fyrirlitnu.« Nú fyrst skil eg það og trúi því, og þessi trú hefir algjörlega breytt skoð- un minni viðvíkjandi því, hvað er gott og mikilsvert í lífinu eða ilt og auð- virðilegt. Alt það, sem mér áður virt- ist ilt og lítilfjörlegt, svo sem t. d. hið óbrotna alþýðulíf, þekking, fátækt, menningarskortur, umgengni við ó- breytta menn og sparsemi í lifnaðar- hætti og klæðum, lízt mér nú gott og göfugt. Og enda þótt eg nú þegar alt þetta er mér kunnugt orðið reið- ist bróður mínum í vangeymni (að- gæzluleysi) og móðgi hann (misbjóði), þá get eg þó ekki fr?ma', þegar geð mitt er í jafnvægi, hortið til þeirra freistinga sem tæla mig til þess að þykjast meðbræðrum mínum fremri og með því svifta mig hinni sönnu hamingju, nefnil. lífinu í kærleikanum og samlyndi við náungann. Eg get ekki lengur (tekið hlutdeild í því) átt þátt í því, sem í veraldlegu tilliti hreykir mér uppyfir meðbræður mína og greinir mig frá þeim; eg get ekki eins og áður, tekið tillit til stöðu minn- ar eða annara, nafns eða (titils) nafn- bóta að undantekinni sæmdinni, sem er oss öllum sameiginleg, að vera maður; eg get ekki sókst eftir heiðri og frægð eða leitast víð að öðlast þekkingu, sem greinir mig frá öðrum mönnum; eg get ekki stilt mig um að leitast við að losna við þau auð- æfi, sem greina mig frá öðrum, og í öllum lifnaðarhætti mínum, með tilliti til fæðu, klæðnaðar og ytri háttprýðis- venju, get eg ekki látið hjá líða að leita þess, sem sameinar mig við meg- inþorra manna, í stað þess að sækj- ast eftir því, sem greinir okkur. Kristur hefir kent mér, að önnur freistingin, sem eyðileggur hamingju mína, sé holdsfýsnin (óhreinlífisgirnd- in) til annarar konu en þeirrar, sem eg hefi fest mér. Eg get ekki látið líða hjá að trúa því og get þess vegna ekki eins og áður skoðað lostagirnd- ina sem einn af hinum eðlilegu og göfugu eiginleikum mannsins; egget ekki afsakað mig með því að dást að fegurðinni né heldur með ástar- hug eða yfirsjónum konu minnar; eg get ekki lokað augunum fyrir því að holdsfýsnin er óeðlilegt sjúkdóms- stand og að mér ber að nota sér- hvert ráð til þess að losna við hið illa. Eg skil nú orð Krists: í upphafi skapaði guð karlmann og kvennmann til þess að þau skyldu vera eitt. Og þess vegna skal maðurinn ekki sund- urskilja það, sem guð hefir samtengt. Eg skil nú, að einkvæni er hið eðlilega lögmál mannkynsins og ber því ekki að hagga. Eg skil nú full- komlega, að sá, sem skilur við konu sína, þ. e. þá konu, sem hann hefir

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.