Frækorn - 15.03.1905, Page 4

Frækorn - 15.03.1905, Page 4
44 FRÆKORN Hvernig verður vilji guðs fundinn? Biblíurannsókn % eftir C. Skovgaard-Petersen. Framh. ./ £íj. Til þess að finna guðs vilja, verðum vér sjálfir að lifa í guði. Retta kann nú mörgum að sýnast óþörf athugasemd, því fyrst það er lfíið í guði yfirleitt, sem veitir oss góða grein á guðs vilja, þá kann það að sýnast mótsögn, að sá maður grenslist eftir vilja guðs, sem ekki lifir í guði. Og svo er það í raun og veru. En það sýnir reynslan á öllum öldum fyr og síðar, þrátt fyrir alt, að það eru ekki hinir trúuðu einir, sem spyrja um guðs vilja, heldur og þeir, sem aðra guði hafa. Reir menn, sem ekki lifa í guði, geta líka æskt þess við og við að fá að vita, hvað guðs vilji er, eins og »til tryggingar sjálfum sér til handa«, þegar ráða skal úr miklum vanda, til þess að öðlast með hægu móti þá »góðu með- vitund«, að það sé æðri vilji, sem þeir fara eftir. Reir fara líkt að og Akas Júdakonungur. Hann lét gjöra altari í líkingu við heiðið musteri (í Damaskus) í musteri drottins. Að þessu altari færði hann svo fórnir að öllum jafnaði. En hið eiginlega altari drottins setti hann til hliðar, sér í af- kyma, og sagði um leið: »Að þessu altari ætla eg að spyrja drottin* (2. Kon. 16, 10—15). Hversdaglega virti hann guð ísraelsmanna að engu, en hafði þó altari drottins í vitum sínum, til vonar og vara, til að spyrja þar, þegar svo bæri undir, og í harðbakka slægist. Þetta er ótvírætt dæmi. Reir, sem ekki standa í neinu lifssambandi við guð, verða að öllu að hafa sömu ráð og heiðingjar, til að komast eftir guðs vilja, því að sá, sem ekki hefir guðs anda, getur heldur ekki gengið á guðs vegumen; — Ouð hefir harðlega bannað, að nokkur grenslaðist eftir vilja sínum, að hœtti heiðingja. »Enginn á að finnast hjá þér, sem láti son sinn eða dóttur vaða bál, enginn, sem fer með spádóma eða er dagveljari eða tekur mark á fugla- kvaki, eða galdramaður eða særinga- maður eða spásagnarmaður eða tákna- þýðari eða nokkur, sem leitar frétta af framliðnum, því að hver, sem slíkt aðhefst, er drotni andstyggilegur og fyrir slíkar svívirðingar rak drottinn þessar heiðnu þjóðir í burtu frá aug- liti sínu« (5. Mós. 18, 10—12). Vér megum því ekki fara að eins og konungur einn í Babel: A vega- mótunum, þar sem hinir tveir vegir byrja, nemur Babels-konungur staðar til að Iáta spáfyrir sér; hann hristir örvarnar, spyr húsgoðin, skoðar lifrina« (Es. 21, 21). Rað er augljóst, hvernig á þessu banni stendur. Algjörlega andlaus leit eftir vilja guðs er ekki til annars en að efla manninn í guðlausu líferni og breiða yfir sjálfviljann, því — Annaðhvort kemur maður fram sjálfs síns vilja, með því að þýða táknið eftir eigin geðþótta, eins og Cesar á her- förum til Afríku. Hann datt, er hann' sté á land í Afríku. Retta þótti öllum ills viti, en Cesar gjörði gott úr þess- ari tilviljun, með því að hafa hendur fyrir sér, kalla upp og segja »Nú hef eg þig, AfrikaN (Svetonius). F.ða menn búa svo undir fyrir fram, að þeir fái það tákn út, sem þeir vilja,

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.