Frækorn - 15.03.1905, Síða 8

Frækorn - 15.03.1905, Síða 8
48 FRÆKORN ar hann brennur. Eg trúi því, að eg sé í sama hlutfalli við þá spámenn, sem eg hefi öðlast viðurkenninguna frá, eins og Jónas við Niniveborgar- menn, en að eg einnig eins og Jónas hafi skyldur gagnvart öðrum Ninive- borgarmönnum, sem eg á að kunn- gjöra sannteikann. Eg trúi því, að líf mitt hafi aðeins þýðingu, að svo miklu leyti, sem eg lifi í því ljósi, sem er í mér, og set það ekki undir mæliker, heldur held því hátt, svo allir geti séð það. Og þessi trú gefur mér nýja krafta til þess að breyta eftir kenningu Krists og sigra allar þær hindranir, sem hingað til hafa verið á vegi mínum. Pað, sem áður fjarlægði mig kenn- ingu Krists og hindraði mig frá því að sjá, að hún væri sönn og fram- kvæmanleg, net'nilega möguleikinn til þess að komast hjá að þola þján- ingar og ef til vill dauðann af þeim mönnum, sem hvorki viðurkenna kenn- ingu Krists né breyta eftir henni,ein- mitt það staðfesti sannleika kenning- arinnnar í huga mínum og dróg mig að honum. Kristur hefir sagt: :>þegar þérgöíg- ið mannsins son, munuð þér allir koma til mín«, og eg fann, að eg drógst að honum með ómótstæði- legu afli. Hann hefir auk þess sagt: »Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa«, og eg fann, að eg var fullkomlega frjáls. Ef óvinir ráðast á mig, eða mér er veitt árás af vondum mönnum og eg ver mig ekki — þannig hugsaði eg áður — taka þeir alt, sem eg á og drepa ef til vill bæði mig og mína nánustu; og þessi hugsun skelfdi rnig. — Nú þar á móti, virðist mér alt, sem áður skelfdi mig, gleðiefni og staðfesting sannleikans. Nú veit eg, að óvinirnir og hinir svo kölluðu glæpamenn og ræningj- ar eru líka menn og manna synir eins og eg, að þeir einnig elska hið góða og hafa óbeit á hinu illa, að dauðinn einnig stendur fyrir dyrum þeirra, að þeir eins og eg sækjast | eftir frelsi, og að þeir einungis geta fundið það í keningu Krists. Alt hið illa, sem þeir vilja gjöra mér, mun snúast að þeim sjálfum, og þess vegna hljóta þeir að gera mér gott. Og ef nú svo væri, að þeir ekki þektu sannleikann, og héldu, að hið illa væri gott, þá hefir sann- leikurinnn verið opinberaður mér, til þess að eg skyldi kunngjöra þeim hann, sem ekki þekkja hann. En eg get ekki kunngjört hann á annan hátt en með því að halda mér frá því að taka þátt í öllu, sem illt er, og pré- dika sannleikann með verkum mín- um. Ovinurinn kemur: Rjóðverjar, Tyrk- ir eða villimenn, og ef þér ekki búist til varnar, munu þeir drepa yður aila! — Pað er ekki satt. Ef kristilegur félagsskapur væri og meðlimirnir gerðu öðrum aldrei neinn óskunda, heldur útbýttu öðrum afganginum af vinnu- ! arði sínum, þá mundi enginn óvinur, | hvorki Rjóðverjar, Tyrkir eða villi- menn drepa eöa ráðast á slíka menn. Peir myndu einungis taka það, semslík- ir kristnir mennaf eiginhvötum mundu gefa þeim, af því þeir ekki gjöra grein- armun á Rússum, þjóðverjum, Tyrkj- um eða villimönnum. — En þegar kristnir menn eru í ókristilegu félagi sem láta hart mæta hörðu og espa kristna menn til ófriðar, gefst kristn- um manni einmitt tækifæri til þessað hjálpa mönnum, sem ekki þekkja sann- | leikann. Kristinn maður á að bera j sannleikanum vitni, þeim, sem ekki þekkja "hann. En það eru aðeins verkin, sem geta borið sannleikanum vitni. Pess vegna á kristinn maður að neita sér um að heyja ófrið, en þar á móti gjöra öllum gott undantekn- ingarlaust, hinum svo kölluðu óvin- um engu síður en löndum sínum. En þegar nú ekki er um óvini að ræða, heldur hrakmenni af manns eig- in þjóð, sem ráðast á kristinn mann, ræna hann, veita honum atlögu og j drepa hann og hans nánustu, ef hann [ ekki ver sig?

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.