Frækorn


Frækorn - 27.03.1907, Qupperneq 6

Frækorn - 27.03.1907, Qupperneq 6
90 FRÆKORN Guð er með oss. Hrind þú sorg, sem hjartað sker, hafðu sinnið káta. Drottinn með þér ætíð er; ekki skaltu gráta. Seinna lífið eilíft er, andans hrynur stofa. Drottinn með þér ætíð er, æ hann skaltu lofa. Ónáð lát ei auka þér áhyggjurnar þínar. Drottinn með þér ætíð er, ástin hans ei dvínar. Drotni einum dýrðin ber, drottinn sár vili græða. Drottinn með þér ætíð er, upp því lít til hæða. (Eliza H. Morton. — J. J. þýddi.) »Svartiskóli.« Eftirfylgjandi lýsing á víndrykkju- húsi er tekin úr trúarjátning Waldensa og Albigensa, sem út var gefin árið 1120: Víndrykkjuhúsið er staður sá, þar sem margar syndir koma í ljós. Pað er skólahús djöfulsins. Par framkvæm- ir hann þau furðuverk, sem þessum stað eru samboðin. í sannkristnum söfnuðum gjörir guð dásamleg undraverk: hann gefur blindum sýn, lætur halta ganga, mál- lausa mæla og daufa heyra. Pað, sem djöfullinn vinnur í vín- drykkjuhúsinu, er guðs verki gersam- lega gagnstætt. Þegar drykkjumaðurinn gengur inn á drykkjuhúsið, gengur hann upprétt- ur, sjón hans, heyrn og mál er í eðli- legu ástandi. En þegar hann kemur þaðan aftur, getur hann ekki stigið óskeift spor, hann sér naumast, hvort dagur er eða nótt, og honum vefst tunga um tönn. Það, sem fer fram í drykkjuhúsinu eða skóla djöfulsins, er: óhóf, blóts- yrði, meinsæri, lygar og guðlastanir ásamt ýmsu óþokkaæði og ódreng- skap, einnig deilur og sundurlyndi, morð og illkvitni. (Úr ensku. J. J.) „Þann dag og tíma veit enginn fyrir“. »Lögberg« birti 3. jan. þ. á. heil- miklnn spádóm um — heimsenda. — Hann eigi að koma urn lok 1908, en fyrir þann tíma eiga alls konar skelf- ingar að dynja á, meðal annars eigi »New York stærsta borg heimsins* að eyðileggjast«, o. fí., o. fl. íslenzku blöðin hér á landi hafa hingað til ekki skift sér af þessum ógn- ar-spám — sjálfsagt af þeirri ástæðu meðal annars, að menn eru vanir, að slíkir spádómar eru orðnir margir og allir reynst þvaður. Ótal sinnum hafa. þessir og hinir spáð, að heimsendir yrði þá og þegar, og margsinnis hef- ir verið sagt fyrir dagur og tími, þegar heimsendir ætti fram að koma. Eitt trúmálablað hér hefir samt ný- skeð hirt spádóminn og þykir hann merkilegur vegna þess, að — konu nokkra í Hafnarfirði hafi um aldamót- in síðustu dreymt draum á þá leið, að * Einkennilegur andi mun hafa veitt spá- manninum fræðsht þessa, sem gengur í berhögg við þann sannleika, sem allir ofurlítið mentað- ir menn þekkja, að Lundúnaborg, en ekki New York, sé mesta borg heimsins.

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.