Frækorn


Frækorn - 27.03.1907, Blaðsíða 11

Frækorn - 27.03.1907, Blaðsíða 11
FRÆKORN 05 s?Lumdaqiasið, Margir hafa líkiega heyrt getið um áhald, sem nefnt var stundaglas. Rað var dálítið glerhylki með sandi í, og haft til þess að mæla tímann, og af því var nafnið dregið. Æfinni má vel líkja við stundaglas. — Lífið samstendur af smákornum einum, sem eru hin margvíslegu störf daglega lífsins, orð vor og gjörðir, þau mynda heildina — lífið. Dygðirnar og góðverkin eru gull- korn; en syndir vorar og yfirsjónir, — syndsamleg orð og verk, eru svört sandkorn. Kærleiksrík orð og atlot, umburð- arlyndi, blíðlyndi við alla í daglegri umgengni. — Petta eru eigi neinir stórviðburðir, ekki nein afreksverk sem mikið á ber, en þetta marga smáa megnar þó að gjöra líf sjálfra vor og bræðra vorra indælt, og þessa jörð að sælustað. — Petta eru smá gljá- andi gullkorn í stundaglasi voru. Rau eru dýrmætur gjaldeyrir, dýrmætari en sjálft gullið. Kappkostum því, kæru kristnu vinir, í hvaða stöðu sem vér erum, hátt eða lágt settir, að láta sem allra flest gullkorn renna eftir stundaglasinu — stundaglasi lífs vors. Gætum þess jafnan, að vér fáum aldr- ei aftur tækit'ærin, sem liðin eru. Tím- inn líður hjá, og flytur með sér störf vor, orð og gjörðir; mörg eða fá gull- korn, alt eftir því sem breytni vor hefir verið. Lítum vér að kvöldi yfir störf dags- ins og athugum, hvernig honum var varið, og finnum, að það var mið- ur en skyldi, og vér mundum vilja óska, að gullkornin, sem hinn liðni dagur flutti með sér, væru fleiri en þau eru — kappkostum þá að verja hin- um komandi degi betur, og svo hverj- umaföðrum, þá munu gullkorn dygða og góðverka, sem hinir líðandi dagar færa með sér, verða æ fleiri og fleiri. Biðjum guð þess, að hann hjálpi oss til að verja tímanum vel, hinum ókomnu ævidögum, sjálfum oss og meðbræðrum vorum til sannarlegra heilla, og honum til dýrðar. B. E. %£ppskeran. Rað var seint í janúarmánuði 1884 í borginni Cleveland í Ameríku. Rað var liðið að lágnætti og kalt veður úti. Fannkoma mikil hafði verið daginn áður, og var snjór yfir a t, og var þvi líkast sem hvít, glitrandi ábreiða lægi yfir jörðinni. í flestum skrauthýsum við helztu stræti borgarinnar var búið að slökkva fyrir góðri stundu. En í einu af skraut- legustu húsunum logaði enn þá gas- Ijós í forstofunni, og frá herbergi einu á öðru lofti barst glampi af skær- um arineldi. Fyrir framan arininn sat kona rúm- lega þrítug aðaldri, og reyndi aðstytta sér stundir með lestri. Hún var skarp- leg á svip og tíguleg, og var auðséð á augum hennar, er hún við og við leit af bókinni að hún hafði göf- uga, góða sál að geyma. Þessi kona var frú Kinnear, eigin- kona Kinnears verksmiðjueiganda; var hún að bíða heimkomu manns síns, sem var á áríðandi verzlunarfundi uppi í Bankastrætinu. Var ekki laust við, að hún væri óróleg með sjálfri sér, ai því manni hennar varð svo síðkvæmt, því hann var annars mesti reglumað- ur, og kom aldrei seint heim á kvöld- in; en hún reyndi að láta það ekki

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.