Frækorn


Frækorn - 27.03.1907, Page 14

Frækorn - 27.03.1907, Page 14
98 FRÆKORN þá upphæð í verksmiðjuna, til að geta aukið starfsmagnið. Á þenna hátt geta þeir orðið meðeigendur vorir næsta ár. Með þessu fyrirkomulagi mundi hver einstakur hafa áhuga á starfinu, því við ætlumst til að allir fái svo hátt kaup, að þeir geti lagt nokkuð af mörkum af daglaunum sínum. Hver einstakur vinnumaður í verksmiðjunni yrði þá meðstarfandi, og eignin væri hans eins og vor, og sé þaðvandað- ur maður, mundi hann bera umhyggju fyrir framgangi starfsins, í stað þess, sem margir daglaunamenn gjöra nú, reyna að vekja óánægju og leitast við að koma verkföllum af stað«. »Eg mundi verða afarglöð, ef þessu gæti orðið framgengt. — En mundu samt eítir því, að það litla, sem þú getur komið til vegar, verður hvern- ig sem fer ekki nema eins og dropi í hafinu. Pað mun ekki einn þúsund- asti af vinnuveitendum fylgja dæm þínu. Rú veizt hve alment það er meðal manna að líta eingöngu á sinn eigin hag. Heimurinn verður jafnt eftir sem áður fullur af fátækum heimilislausum mönnum«. »Eg er ekki í minsta efa um að þetta fyrirtæki hepnist, Anna. Skrifarinn okkar, Donglas, er sá duglegasti í fé- laginu, að formanninum undanskildum, og þar að auki mjög aðgætinn og því engu síður t'ær um að líta eftir hinu smæsta sem hinu stærsta. En við ætlum ekki heldur að byrja á þessu til að auðga okkur; tilgangur okkar er eingöngu sá, að hjálpaöðrum sem ekki eru eins vel staddir og við. Ekki einn einasta dollar af hreinum ágóða ætlum við að láta renna í okkar sjóð. Við ætlum að hjálpa bræðrum okkar vegna Krists. Hljótum við þá ekki að öðlast blessun í ríkulegum mæli? Mun hann jafnvel ekki líta á starf vort, eins og það væri gjört fyrir hann?« (Framh.) Til þeirra, sem efast. Rótt þú, sem þetta lest, sért ekki trúaður á biblíuna, heldur blátt áfram véfengir orð hennar og mátt guðs, þá getur þú þó eigi með heilbrigðri skyn- semi neitað, að engin bók er til, sem geymir betra siðalögmál en hún, á hvaða veg sem skoðað er, og hvern- ig sem þú hártogar það og snýrð út úr, þá getur þú þó ekki á nokkurn hátt hrakið eitt orð, sem í henni stend- ur. F»ú getur ekki einu sinni með heil- brigðri skynsemi sannfært sjálfan þig um að hún sé röng. Lítum vér aftur í tímann, þá sést það en þá betur, að orð guðs og fyr- irheit hafa kraft, og að guð er ekki vanmáttugur. Hinn mikli spekingur Sókrates, sem var fæddur í Aþenuborg á Grikklandi, löngu fyrir Krists burð, þegar orð guðs og fyrirheit voru engum kunn nema hinni útvöldu þjóð, ísraelsmönn- um, geymdi í hjarta sínu fullvissu um, að einhver vera væri til, sem stjórn- aði og ríkti, vera með ótakmörkuðum krafti. Þetta innrætti hann æskulýðn- um en var að síðustu til dauða dæmd- urfyrir þessa skoðun sína, álitinn villu- trúarmaður. Hélt hann þá sína heims- frægu varnarræðu, sem styrkti enn bet- ur þessa skoðun hans. Drakk hann eitur með mestu rósemi, og dó þann- ig fyrir skoðun sína. Petta sýnir, að jafnvel á meðal heið- ingja finnast þeir, sem nærri því ó- sjálfrátt leiðast til að trúa á guð og lifa honum samkvæmt því Ijósi, sem þeir hafa.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.