Frækorn - 24.12.1907, Page 4
FRÆKORN
392
Nytsöm mentun.
Guðrækin móðir segir svo frá:
Ef þér óskið, að börn yðar upp-
fræðist í drotni, þá byrjið að uppfræða
þau strax, er skilningur þeirra leyfir.
Látið þau læra utanbókar vers úr
biblíunni bæði kvöld og morgun. Til
að byrja með valdi eg vers úr 119.
Davíds sálmi fyrir mín börn. Arang-
urinn verður sá, að börnin fara brátt
að skilja, að svo segir drottinn. Gæt
þess, að þú verður sjálfur að elska
guð og hans boð. Minstu þess, að
hann neyðir engan. Nú, fyrir bænina |
skalt þú öðlast, heyra orðið og skilja,
fyrir anda guðs skilja, að guð gefur
oss alt til sannarlegs lífs og sælu.
Mættum vér í auðmýkt beygja hjörtu |
vor fyrirhonum.
Eg má játa það, að eg get ekki j
þakkað guði, eins og eg vildi, fyrir {
hans náð við oss í þau sex ár sem s
börnin mín hafa lært tvö vers utan- I
bókar áhverjum degi.
Rekking á guðs orði er nytsamasta
mentun, því guðrækni er til allra !
hluta nytsamleg og hefir fyrirheit bæði
fyrir þetta líf og hið tilkomandi. 1.
Tím. 4, 8. F. M.
Hvort velur þú heldur?
Mennirnir vilja koma sínum lögum að
til þess að burtrýma lögmáli guðs. Reir
reyna að þröngva samvizkufrelsi annara,
og vegna áhugans til að koma lögum
sínum í íramkvæmd munu þeir undiroka
meðbræður sína.
Mótþróinn gegn guðs lögmáli, sem
byrjaði á himnum, mun haldast við alt
til heimsenda. Hver einasti maður mun
verða reyndur. Hlýðni eða óhlýðni er
spurningin, sem allur heimurinn verður
að taka ákvörðun um.
Hver einstakur maður mun verða kall-
aður til þess að velja milli guðs lögmáls
og mannlegra skipana. Par verður línan
dregin. P& verða einungis tveir flokkar
af mönnum. Hugsunarháttur hvers manns
verður fullþroskaður, og allir munu sýna,
hvort þeir hafa valið að hlýða eða þrjósk-
ast. F*á mun endirinn koma.
Beztu vinagjafir.
Sú bók, sem segir frá því, að guð
varð maður, er hin næst stærsta gjöf, sem
guð hefir veitt mönnunum — Jesús
sjálfur er hin stærsta gjöf — bækur, sem
lýsa göfugu, kærleiksríku, kristilegu lífi,
eru hinar beztu vinagjafir. »Sú þjóð, sem
es mikiði, segir rithöfundur einn, »mun
lbrátt verða hugsandi þjóð, og hugsandi
þjóð er voldug þjóð.»
»Sumar bækur má bragða,« segir Bac-
on, »öðrum má renna niður, en ein-
ungis fáar má tyggja og melta.« Annar
rithöfundur segir: »Til eru margar
silfurbækur en fáar gullbækur, en eg á
eina bók, sem er meira verð en allar
aðrar, biblíuna og hún er full af verð-
bréfum. E. S.
------------------
— Tími vor er dýrmætur; vér höfum
aðeins fáa, mjög fáa náðardaga ólifaða,
sem oss eru get'nir til undirbúnings fyr-
ir hið eilífa líf. Vér höfum engan tíma
svo mikið sem að ráðgera ónytsöm
fyrirtæki.
— Sérhver gjöf, sem vér hljótum, ætti
að gjöra hjörtu vor viðkvæmari gagn-
vart sorg og neyð annara.
— Ohamingja er hamingja og mót-
læti meðlæti, ef það leiðir oss nær hinu
himneska takmarki.
■*»