Alþýðublaðið - 05.05.1963, Blaðsíða 2
^QÖSOÖÖBSÍKÖ)
BOTMtJórsr: Giált J. Astþórsson (áb) og Benedlkt Gröndal,—ABstotJarrltstJórl
BJÖrgviu GuCmundsson - Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Simar:
14 900 - 14 302 — 14 P03. Auglýsingasími: 14 906 — Aðsetur: AlþýSuhúsið.
~ Pren -smiíja AiþíðublaSsms, Hverfisgötu 8-10 — Askriftargjald kr. 63.00
i mánuði. t latna&öiu kr. 4 00 eint. Utgefandi: Alþýðuflokkurinn
Flótti stjómarandstöðunnat
AÐEINS rúmur mánuður er nú til þingkosn-
inga.og má greinilega sjá þess merki í blöðum
stjórnmálaflokkanna, Kosningabaráttan er hafin.
Hið eðlilega væri, að kosningarnar snérust fyrst og'
fremst um ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum%svo og önnur þau mál, er ríkisstjóm-
in hefur komið fram á váldatímabili sínu. Það eru
verk ríkisstjórnarinnar, sem nú eiga að leggjast
undir dóm þjóðarinnar og á grundvelli þeirra á
þjóðin að kveða upp úrskurð sinn um það, hvort
hún vill fela stjórnarflokkunum landsstjórnina á-
fram eða ekkii.
Greinilegt er, að stjórnarandstaðan kærir sig
ekki um það, að kosningabaráttan snúist um verk
ríkisstjórnarinnar. Undanfarna daga hafa málgögn
Framsóknarmanna og kommúnista t. d. lítið sem
ekkert minnzt á efnahagsmáhn. Nei, það eru önnur
mál, sem Tíminn og Þjóðviljinn vilja láta kosning-
ernar snúast um. Það eru Efnahagsbandalagsmál-
ið og landhelgismálið. En hvað er það í sambandi
við þessi tvö mál, sem stjómarandstaðan vill að
kosningabaráttan snúist um? Það er ekki það, sem
Eríkisstjómin hefur gert í þessum málum, heldur
hitt sem stjómarandstaðan segir, að stjórn-
arflokkarnir ætli að gera! Tíminn og'
Þjóðviljinn segir, að . stjómarflokkarnir
setli að innlima íslands í Efnahagsbandalag-
ið eftir kosningar. Og sömu blöð segja einnig, að
ríkisstjómin ætli að framlengja undanþágur fyrir
brezka togara tiil veiða í fiskveiðilandhelginni,
haldi stjórnarflokkamir meirihluta sínum. Stjórn-
arandstaðan veit, að þetta er ósatt. En svo slæmur
er málstaður Framsóknarmanna og kommúnista,
að þetta er hið eina er þeir geta nú lagt áherzlu á
í kosningabaráttunni.
Hvers vegna ræðir stjórnarandstaðan ekki
meira um sjálf verk ríkisstjómarinnar? Svarið er
einfalt. Ríkisstjónin hefur unnið stórvirki í efna-
hagsmálunum. Hún hefur komið efnahagslífinu á
réttan kjöl með ráðstöfunum sínum. Gjaldeyris-
staðan hefur stórbatnað og sparif jármyndun hefur
áukizt mjög mikið. Þegar vinstri stjómin fór frá
var þjóðarbúskapurinn kominn á heljarþröm og
lánstraust þjóðarinnar erlendis var þrotið. Nú hef
ur álit þjóðarinnar ytra verið reist við.
Með iviðreisn efnahagslífsins hefur verið
skapaður grundvöllur nýrra framfara
næstu árin. En jafnframt iviðreisninni hefur ríkis-
stjórnin komið fram mörgum merkum. umbótamál
um á sviði tryggingamála, húsnæðismála, menning
armála o. fl. Þessi mál vill stjómarandstaðan ekki
ræða. Hún er á flótta frá þessum málum. Þess
vegna grípur hún til þess ráðs að búa til sögur um
það, að stjórnin ætli að svíkja þjóðina síðar.
9Vá hitaveitulán
horgarstjórnar Reykjavíkur
Borgarstjóm Reykjavikur býður hér með út 20 milljón króna skulda
bréfalán, sem Reykjavíkurborg tekur vegna aukningar hitaveitu í borg-
inni, skv. ályktunum borgarstjómar 7. des. 1961 og 21. júní 1962.
Höfuðstóll lánsins er kr. 20 millj. og em gefin út skuldabréf sem hér
segir:
Litra A 1- 200 hvert að fjárhæð kr. 50.000.00 kr. 10.000.000.00
— B 1-1500 — — — — 5.000.00 — 7.500.000.00
— C 1-2500 — — — — 1.000.00 — 2.500.000.00
Vektir af láninu er 9 V2 % á ári og greiðast þeir árlega, í fyrsta
sinn 30. apríl 1964.
Lánið er lafborgunarlaust fyrstu 5 árin, 1963 — 1968, en endur-
greiðist síðan að fullu með nafniverði 30. apríl 1968.
Greiðslustaður vaxta og skuldabréfa er hjá borgargjaldkeranum
í Reykjavík.
Lánið er tryggt með eignum Reykjavíkurborgar.
Skuldabréfin verða til sölu hjá eftirtöldum bönkum og spari-
sjóðum í Reykjavík frá oig með mánudeginum 6. þ. m.:
Landsbanka Sslands,
Ötvegsbanka fslands,
Búnaðarbanka íslands,
Iðnaðarbanka íslands h.f.
Verzlunarbanka íslands h.f.
Sparisjoði Reykjavíkur og nágrennis
og Samvinnusparisjóðnuni.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 4. maí 1963.
Geir Hallgrímsson.
Dregið
Hafnarfjörður og nágrenni:
I DAS
i gær
í gær var dregið í 1. flokki liapp
drætis D.A.S. um 150 vinninga
og féllu vinningar þannig:
4ra herbergja íbúð, Ljósheimum
22, 2. h. (A), tilbúin undir tréverk
kom á nr. 20713. Umboð Eskifjörð-
ur. 2ja herbergja íbúð Ljósheimum
22 1. h. (D), tilbúin undir tréverk
kom á númer 22051. Umboð llafn-
arfjörður. 2ja herbergja íbúð Ljós
heimum 22, 3. h. (E), tilbúin undir
tréverk kom á númer 3655. Umbpð
Akureyri.
OPEL Cadett fólksbifreið kom
á nr. 3889. Aðalumboð. TAUNUS
1M Cardinal fólksbifrcið kom ó
nr. 21142. Umboð Hreyfill. VOLKS
WAGEN fólksbifreið kom á nr.
19142. Aðalumboð. NSU-PRINZ
fóiksbifreið kom á nr. 40430. Að-
alumboð.
Ný sending:
Dragtir-Pils
Kápur-Kjólar
Einnig alls konar sport-
Idæðnaður kvenna í fjöl-
breyttu úrvali. Verzlið þar
sem vöruvalið er mest.
VERZLUNIN SIGRUN
Strandgötu 31. Sími 50038.
2 5. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ