Alþýðublaðið - 09.05.1963, Qupperneq 3
nnedy vonlitill
tilraunabann
- en fagnar fram-
för i Birmingham
Washington, 8. maí.
NTB-Reuter.
Kennedy forseti sagði í dag á
blaðamannafundi sínum, að hann
væri vondaufur um, að gerður yrði
samningur um bann við kjarn-
orkutilraunum á þessu ári. Heppn-
ist það ekki í ár, er það'eingöngu
vegna þess, að við fáum aldrei
slíkt bann og að nýjar tilraunir
verða gcrðar, til mikillar ógæfu
fyrir alla aðila, sagði forsetinn.
Forsetinn kvaðst fagna mjög
framförum þeim, sem orðið hefðu
í Birmingham, og tilraunum af
hálfu hvítra og þeldökkra íbúa
bæjarins til þess að binda endi á
hið alvarlega ástand í bænum.
Kennedy sagði, að undanfama
þrjá sólarhringa hefðu kaup-
sýslumenn í Birmingham brugðist
við ástandinu á jákvæðan hátt.
Gripið yrði til árangursríkra að-
gerða til þess að koma til móts
við réttmætar óskir negranna, og
vonandi batnaði ástandið.
Forsetinn sagði, að stjórnin í
Washington gæti ekki skorizt í
leikinn svo framarlega sem ekki
væri um lagabrot að ræða er
heyrðu undir dómsvald sambands
stjórnarinnar. Stjórnin gæti að-
eins stuðlað að friðsamlegum við-
ræðum. Hann neitaði því, að segja
nokkuð um aðferðir þær, sem
lögreglan hefur beitt gegn negr-
um, sem staðið hafa fyrir mótmæla
aðgerðum, en lagði áherzlu á, að
atburðimir yrðu að vera öllum
áminning um, að allt, sem kæmi
í veg fyrir jafnrétti, yrði að fjar-
lægja eins fljótt og hægt væri.
Ennfremur sagði Kennedy, að
ef árás yrði gerð á Mið-Austur-
löndum eða ef upp risi hætta á
árás mundu Bandaríkin reyna að
fá SÞ til að grípa til nauðsyn-
legra ráðstafana. Bandaríkin
mundu styðja öryggi ísraels og ná-
grannaríkja þess. USA vildi tak-
marka vigbúnaðarkapphlaupið í
þessum heimshluta og torvelda út-
breiðslu kommúnista. Pólitísk
breyting hefur átt sér stað, en
valdajafnvægið virðist ekki hafa
breyzt.
Forsetinn kvað aðgerðir Ame-
ríkubandalagsins í Haiti-málinu
réttar og styddu Bandaríkin þær
hei’s hugar.
Hann kvaðst vona, að Krústjov
stæði -við heit sín um sjálfstæði
og hlutleysi Laos þótt ekki benti
til þess að kommúnistar vildu
standa við loforð sín í reynd eins
og sæist af atburði þeim, er þyrl-
ur alþjóðlegu eftirlitsnefndarinn-
ar vom skotnar niður.
Kennedy kvaðst mundu ræða
við Lester-Pearson, forsætisráð-
herra Kanada, um helgina. Þeir
mundu ræða landvama- og verzl-
unarmál.
Um tilraunabannsviðræðumar
sagði Kennedy, að ekkert hefði
miðað áfram síðan Rússar buðust
til í desember að fallast á tvær
til þrjár eftirlitsferðir á staðn-
um árlega. Bandaríkin hafa sleg-
ið af sínum kröfum og sýnt mörg
merki um samkomulagsvilja, og
við höfum reynt að ná samkomu-
lagi um önnur atriði áður en við
snúum okkur aftur að eftirlits-
tnálinu. En það hefur ekki tjóað
og ég lít alls ekki björtum augum
á ástandið, sagði Kennedy.
Brottflutningur
frá Haiti hafinn
WASHINGTON og PORT au
PRINCE 8. maí (NTB-Reuter). í
dag var byrjað að flytja búrt
bandaríska borgara og fjölskyld-
ur þeirra frá Haiti-lýðveldinu.
Samtímis þessu samþykkti ráð
Ameríkubandalagsins (OAS) að
veita rannsóknarnefnd sinni um-
boð til þess að miðla málum í
deilu Haiti og Dóminikanska lýð-
veldisins.
í New York frestaði Öryggis-
ráðið fundi sínum um hálfa 'iö’-n
klukkustund — til kl. 20.30 eftir
ísl. tíma.
Flestir Bandaríkjamennirnir
urð’i við hvatningunni, en aftur
I GÆRDAG heimsótti
barnakór Laugalækjarskóla
Elliheimilið Grund og söng
þar fyrir vistfólkið. í kórn-
um eru um G0 stúlkur á aldr-
inum 10-12 ára.
Kórinn söng bæði innlend
og erlend lög fyrir fólkið,
að lokum söng kórinn „Ó
fögur er vor fósturjörð” og
tók þá gamla fólkið undir
sönginn.
Söngstjóri kórsins er
Gnðmundur Magnússon
skólastjóri.
Næstkomandi sunnudag
heldur kórinn söngskemmt-
un í Laugalækjarskóla fyr-
ir foreldra og aðra aðstand-
endur nemenda.
Leyniviðræður í Búdapest
VÍN, 8. maí.
NTB-Reuter.
Hafnar eru leyniviðræður í
Búdapest milli fulltrúa ungversku
stjórnarinnar og háttsettra full-
trúa Vatikansins í því skyni að
leysa Mindzenty-málið og önnur
vandamál, að því er haft var eftir
áreiðanlegum heimildum í Vín í
dag.
Forstöðumaður framkvæmda-
nefndar Vatikansins um sérstök
málefni, Agostino Casaroli, kom
að sögn sjónarvotta til Ungverja-
lands með ungverskum diplómata-
bil í gær. Austurriska landamæra
lögreglan hefur ekki viljað stað-
festa þetta.
Skömmu eftir komuna ræddi
Casaroli við leiðtoga ungversku
biskupanna, Endre Hamvas, og ung
verska kirkjumálaráðuneytið. —
Viðræðurnar héldu áfram í dag.
Heimildarmenn í Vín segja, að
viðræðurnar í Búdapest muni
ekki bera árangur fyrr en eftir
márgar vikur. Þeir segja, að Ca-
saroli eigi fyrst og fremst að eiga
könnunarviðræður með ungversku
stjórninni og kirkjunni til þess að
| komast að lausn, þannig, að Mind-
! zenty fái að fara úr landi.
Önnur mál, sem sennilega verða
| rædd, er vandamálið í sambandi
I við eftirmann Mindzentys og skip-
'xm nýrra biskupa.
á móti urðu aðeins nokkrir Bretar
við svipaðri áskorun brezku stjórn
arinnar.
★ Frétt frá Willemstad á Cur-
acco hermir að hollenzk yfirvöld
★ OAS-ráðið samþykkti áskorun
til deiluaðila u mað forðast sér-
| hverja valdbeitingu.
j ★ í New York kvað utanríkisráð
herra Haiti, Rene Chalmers, á-
standið á Haiti ekki eins alvarlegt
og menn skyldu ætla af fréttum
blaða og öðrum ummælum. í svip
inn væri um orðaskak að ræða af
hálfu Dóminíkanska lýsveldisins,
en það gæti þróazt í raunverulegt
stríð og því hefði málið verið borið
upp við Öryggisráðið.
hafi í morgun leyft flugvél frá
Haiti að hafa viðkomu þar. í flug
vélinni áttu að vera háttsettir menn
en ekki er vitað hvort Duvalier
forseti átti að vera með í flug-
vélinni. Leyfið var afturkallað
nokkrum klukkustundum siðar
Orðrómur hefur verið á sveimi
um að Duvalier forseti undirbúi
brottför úr landi sínu.
Kynþáttaviðræð-
ur f Birmingham
Birmingham, Alabama,
8. maí. NTB-Reuter.
Foringjar negra í Birmingrham
í Alamaba kváðust í dag mundu
hætta fjöldagönsTim og fund-
um í einn sólarhring meðan
báðir aðilar revndu að finna
lausn á kynþáttaástandinu í hæn-
um.
Við höfnm trú á að fyrir hendi
séu möguleikar til einlægra við-
ræðna sagði einn af foringjum
negranna.
Negraþingmaðurinn Adam Clay-
ton Powell sagði á hlaðamanna-
fundi í Washington í dag, að Ro-
bert Kennedv d-’msmálaráðherra
hefði t.iáð honum, að eitthvað
stórvægilegt mundi gerast í Birm
ingham í kvöld áður en Kennedy
forseti héldi blaðamannafund sinn
kl. 20 (eftir ísl. tíma).
Powell sagði, að framvindan,
sem Kennedy hefði talað um, —
snerti meira en ..táknrænar” til-
slakanir fyrir kröfum negranna.
Formælandi dómsmálaráðuneyt
isins gat ekki staðfest að Robert
Kennedy hefði rætt ástandið við
Powell.
Powell sagði, að grípa yrði til
lögfræðilegra aðgerða gegn yfir-
völdunum í Birmingham, sem not
uðu háþrýsti-brurlaslöngur og
hunda gegn negrum, sem standa
fyrir mótmælaaðgerðum.
Fyrr um daginn sagði Powell í
sjónvarpsviðtali, að vonir um
nokkum veginn friðsamlega lausn
á kj'nþáttaóeirðunum í Birming-
ham hefðu brugðist vegna ákvörð
unar Géorge Wallace fylkisstjóra
um að senda fylkislögregluna til
borgarinnar.
George Edwards, þingmaður úr
flokki demókrata frá Alabama, fór
| þess á leit við Kennedy forseta
I og dómsmálaráðherrann í dag, að
] þeir neittu áhrifum sínum til þess
! að telja alla kvnþáttaæsinga-
menn eins og Martin Luther King
og samstarfsmenn hans til þess að
fara frá Alabama.
Rúmlega 500 menn úr fylkislög-
reglunni komu til Birmingham í
dag — vopnaðir sjálfvirkum
byssum, táragassprengjum og
haglabyssum. 250 þeirra var
skipað að fara til bæjarins á
þriðjudag er hundruð negra höfðu
grýtt lögreglumenn úr bænum og
slökkviliðsmenn.
Yfirvöldin í Birmingham hafa
byrjað að láta lausa nokkra af um
1000 unglingum sem handteknir
voru í óeirðunum í síðustu viku.
1400 fullorðnir negrar munu verða
látnir lausir gegn tryggingu.
Nasser fer
heimleiðis
Algeirsborg, 8. maí.
NTB-AFP.
Gamal Abdel Nasser, forseti
Arabiska sambandslýðveldlsins, fór
frá Algeirsborg í dag á snckkju
sinni til Kairó, en ekki til Júgó-
slavíu eins og áður hafði verið til-
kynnt. Nasscr verður í opinberri
heimsókn í Júgóslavíu 12.-16. maí.
Þúsundir Serkja með Ben Bella
forsætisráðherra í broddi fylkingar
kvöddu Nasser á hafnarbakkanum.
í sameiginlcgri tilkynningu, sem
gefin var út eftir brottförina, segj
ast leiðtogarnir staðráðnir í að
berjast gegn heimsvaldastefnji,
afturhaldi og tækifærisstefnu.
Vientiane, 8. maí.
Fylgifiskar kommúnista í Laos-
stjórn höfnuðu í dag boði hins
hlutlausa forsætisráðherra, Souv-
anna Phouma, um að sitja ráðu-
neytisfund í Luang Prabang á
fimmtudag.
í útvarpssendingu frá Khang
Khay, aðalstöðvum Neo Lao Hak-
sat-flokksins, sem fylgir kommún-
istum að málum, sagði, að flokk-
urinn mundi ekki senda fulltrúa á
ráðuneytisfundinn.
Laosstjórn hefur ekki mætt til
fundar síðan deilan reis upp 1.
apríl.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 9. maí 1963 3