Alþýðublaðið - 11.05.1963, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 11.05.1963, Blaðsíða 3
200 þús. fóru FÖSTUDAGINN 10. maí var dregið' í 5. flokki Happdrættls Háskóla íslands. Dregnir voru 1050 vinningar að fjárhæð 1.960.- 000 krónur. Hæsti vinningurinn, 200 þús. kr. kom á heilmiða nr. 56 346, sem seldur var í umboðinu á Keflavíkurflugvelli. 100 þús. kr. komu á hálfmiða nr. 33 073, sem seldir vom í um- boði Arndisar Þorvaldsdóttur, Vesturgötu 10. 10 þús. kr. komu á eftirtalin númer: 2931 9291 11347 11480 12937 16364 18078 23063 23723 28034 31474 33110 35809 36678 36736 39114 41060 41726 45391 45504 45614 48695 49618 53525 55299 58274. Birt án ábirgðar. Larissa Golúbkína í kvikmyndinni „Húsara-saga“. iimisr OSLÓ, 10.5 (NTB). Sjávarútvegsmálanefnd norska Stór- þingsins leggur til að þingið samþykki tillögu ráðuneytisins um um að greiða fyrir fullri nýtingu síldveiða við ísland í sumar að slíkt þjóni hagsmunum síldarverksmiðja um vissra tegunda. fiskiskipa. Segir nefndin, að trygging á flutningskostnaði hafi verkað vel í fyrra og muni koma að haldi í ár. Er lagt til, að varið skuli til þessa 1.750.000 norskra króna, en þar af skuli 250.000 notaðar til flutnings á síld til frystihúsa. feHWmMWWWWWMWWW FENGU VERÐLAUN FYRIR BRÉF TIL SMITHS FIMM menntaskólanemar lilutu í gær verðlaun frá brezka sendi- ráðinu í Reykjavík fyrir skemmti- legar ritgerðir um Milwoodmálið. Fimmti-bekkur stærðfræðideild ar Menntaskólans í Reykjavík fókk á dögunum að glíma við það ritgerðarefni, að skrifa Smith skipstjóra á Milwood opið bréf, en Ottó Jónsson, kennari, átti uppástunguna að þessum bréfa- skriftum. Brezka sendiráðið frétti af ■ ■■■■! þessum ritgerðum og svo fór, að eftirtaldir fimm nemendur hlutu i verðlaun: Hlín Baldvinsdóttir, Ragnar Einarsson, Vilhjálmur Kjartans- son, Áskell Kjerúlf og Páll Stef- ánsson. Eiginkona fyrsta sendiráðsritara Mrs. Comfort, afhenti verðlaunin að viðstöddum rektor, Kristni Ármannssyni, Ottó Jónssyni kenn- ara og Donald Brander, sendi- kennara við Háskóla íslands. Asjkenazij til Moskvu ásamt Þóruhni London, 10. maí. (NTB-R). Rússneski píanóleikarinn Vladimir Asjkenazij hefur á- kveðið að fara í stutta heim sókn til Moskva, en eins og kunnugt er, ákvað hann í síðasta mánuði að sækja um dvalarleyfi í Bretlandi ásamt hinni íslenzku eigin- konu sinni, Þórunni Jóhanns dóttur. — Hann fer til Mos- kva í boði Fílharmoníuhljóm sveitarinnar þar, og leikur einleik á hljómleikum með henni. Þau hjónin fara á þriðjudaginn. MMM%MMMMMMWWMMMW Sovézk kvik- myndavika Sovézk kvikmyndavika verður haldin í Reykjavík í næstu viku, dagana 13.-19. maí. Verða sýndar alls tólf kikmyndir í sjö kvikmynda húsum. Af þessu tilefni koma hingað þrír gestir frá Sovétríkj- unum og ern þeir leikkonan Lar- issa Golúbkína og Ieikstjórarnir Eldar Rjazanov og Júlí Karasik. Kvikmyndavikan verður opnuð með sýningu í Háskólabíói á mánudagskvöldið 13. maí kl. 9 sd. Myndin, sem sýnd verður við 3pnunina, er gaman og söngva- mynd, er nefnist „Húsara-saga”, en í henni leikur Larissa Golúb- kína eitt aðalhlutverkið og Rjaz- anov stjórnar henni. Blaðamönn- um var í gær sýndur kafli úr þess ari mynd og nokkrum öðrum af myndum þeim, sem á hátíðinni verða sýndar. Eru þær margar for- vitnilegar, t. d. virðist „Húsara- saga” vera skemmtileg. Athyglisverðastar mun mörgum finnast ballettmyndin Svanavatn- ið, tekin á sýningu í Bolshoileik- húsinu í Moskva, ballettmyndin „Litli hesturinn Hnúfubakur” þar sem Bolshoidansarar eru enn að verki, og óperumyndin „Evgen Onegin,” sem líka er tekin í Bol- shoi. — Kvikmyndasýning Varðbergs í dag VEGNA mikillar aðsóknar að kvikmyndasýningu Varðbergs í Nýja Bíó sl. laugardag verður sýningin endurtekin í dag kl. 3. Sýndar verða m. a. myndir frá Berlínarmúrnum og uppreisninni í Austur-Berlín. Organleikarinn Biggs leikur T ónlistarféla Organleikarinn E. Power Biggrs frá Bandaríkjunum er væntanlcg- ur hingað til hljómleikalialds í þriðja sinn á morgun og man hann ha'jla tvenna tónleika í Dóm- kirkjunni á vegum Tónlistarfélags- ins á þriðjudag og miðvikudag. Auk þess mun hann leika á Akra- nesi, Akureyri og í Vestmanna- eyjum. Óþarft er að kynna E. Powir Biggs í löngu máli fyrir tónlistar- unnendum. Hann hefur verið iiér tvívegis áður, bæði árið 1954 og 1955, og hélt þá tónleika við mik- inn orðstýr bæði í Reykjav'.k og víðar. Margir merkustu túnlistar- gagnrýnenidur vestan hafs telja Biggs fremstan í flokki merkuslu núlifandi organleikara i Bandaríkj unum. Einnig má geta þess að á tón- listarhátið þeirri, sem efnt var til við opnun hins nýja tónUstarsalar í Lincoln Center í New York, kom E. Power Biggs þrív.egis fram sem einleikari. Á fyrstu tónleikunum sem Fílharmpníuhljómsveitin í N. Y. hélt í hinum nýju salarkynn- um sínum, lék Biggs „Festliches Præludium” eftir Richard Strauss en Leonard Bemstein stjórn^ði hljómsveitinni, en á þessari sömu hátíð lék hann einnig með :>in- fóníuhljómsveit í Fíladelfíu unt'.r stjórn Eugene Ormandys m.a. j orgelhlutverkið í sinfóníu Saint- j Saens fyrir hljómsveit og orgel. Þótti þetta sem von var mikill 'heiður og viðurkenning fyrir hinn ágæta listamann. E. Power Biggs hefur um ára- bil verið fastráðinn einleikari hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Boston, en auk þess er hann kunnur um öll Badarikin og víðar fyrir tón- leika þá og tónlistarþætti, sem hann hefur annast í mörg ár £ útvarpi og sjónvarpi á vegum Col ombia Broadcasting Service. Eins og fyrr getur mun E. Pow er Biggs halda tvenna tónieika fyr ir styrktarmeðlimi Tónlistarféiags ins í Dómkirkjunni, n.k. þriðja- dag og miðvikudag, 14. og 15. maí og hefjast þeir kl. 9 síðdegis báða dagana. Á efnisskránni eru ein- ungis verk eftif Jóhann Seb. Bach Síðan heldur hann organt'itileiiia í kirkjunni á Akranesi n.k. féstu- dag 17. maí kl. 9 e.h., á Akurcyri sunnudaginn 19. maí og að .íkini um í Vestmannaeyjum þriðjul ig- inn 21. maí. E. Power Biggs ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 11. maí 1963 %

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.