Alþýðublaðið - 15.05.1963, Qupperneq 3
AFBRAGÐSVERTfÐ f
VESTMANNAEYJUM
VETRAVETIÐINNI í Vestmanua-
eyjum er lokið'. Er þessi vertið
ein sú bezta þar í fjölda ára, bæði
hvað snertir aflabrögð A)g happa-
sæld skipa. Ekki liggja fyrir enn
neinar ákveðnar tölur um afla skip
anna, né heildarafia Eyjabáta, en
þær munu verða til um 20. þ. m.
Þó hefur blaö'ið fengið 'áfla 16
hæstu báta á þessari vertíð. Þess-
ir 16 bátar öfluðu allir yfir 700
tonn á vertiðinni. Gæftir á vcrtíð-
inni voru sæmilegar og afli bát-
anna jafn.
Aflahæstur að þessu sinni varð
Stígandi VE 77, en skipsijóri á
honum er Helgi Bergvinsson. fítíg
andi er 70 tonna stálbátur, ný-
legur og búinn fullkomnam veið-
arfærum. Þetta er í annað r.kiptið,
sem Stígandi er hæstur á vetrar-
vertíð, í fyrra varð hann einnig
hæstur. Þetta er fimmta árið, sem
Helgi er skipstjóri á Stígandj, og
hefur báturinn í öll skiptin verið
einn af fimm aflahæstu. ,
Afli 16 hæstu báta var sem hér
segir: Stígandi, 1004 tonn; Bjórg
SU, 953; Gullver, 838; Eyjaberg,
825; Snæfugl, 818; Rán, 803; ís-
JT
Aflakóngurinn í brúnni
leifur III., 801; Dalaröst, 775; Kap,
1772; Lundi, 751; Einir, 732; Björg
INK, 727; Ófeigur III., 719; GIó-
|faxi, 709; ísleifur II., 706 og Sæ-
^björg, 701 tonn.
SÆMILEG síldveiði hefur verið
undanfarna tvo sólarhringa. Ilafa
Kynþátta
bardagar
í Prag
VÍN, 14. maí (NTB-Reuter).
TIL harðra götubardaga kom
með afrískum stúdentum og
tékkneskum ungmennum í
Prag s.I. iaugardag, að sögn
ferðamanna, sem komu í dag
frá Prag til Vínar.
Margir Afríkumenn voru
illa leiknir eftir átök við lióp
ungmenna. Bardaginn stóð í
um stundarf jórðung. Lögregl
an skarst þá í leikinn.
Seinna kom til nýrra átaka
með þrem ungum Tékkósló-
vökum og tveim Afríkumönn
um fyrir utan Hotel Ambassa
dor í Prag. Ókunnur afrískur
stjórnarerindreki stöðvaði bif
reið sína til þess að bera sátt
arorð á milli. En áður en lög
reglan skakkaði leikinn höfðu
hjólbarðarnir verið eyðilagð
ir. Að sögn sjónarvotta tók
lögreglan þremenningana ó-
mjúkum tökum.
á báti sínum, Stíganda.
samtals 19 bátar fengíð afla, llt
frá 200 tunnum upp í 2000 tunnur.
Aflahæstu bátar voru SigurpáU,
2000 tunnur; Víðir II., 1100 og Jón
Garðar, 1100 tunur. Þeir eru aliir
í eigu Guðmundar Jónssonar, út-
gerðarmann^ á Rafnkelsstöðu,m
Hefur Sigurpáll verið einkar afJa
hár á síldinni að undanförnu, ver
ið með alltaf 200—600 tunnur,
þefjlr aðrir bátar fengir enjgin
köst. Síldin veiðist á mörgum stöð
um og er hvergi mikið af henni.
Helztu sta'ðir eru út af Herdísar-
vík, á Hraunsvíkinni, út af Jökli
og norðvestur af Akranesi. Margir
bátar héldu suður með landi í gær
og lóðuðu sunnar en áður, enda
var veður ágætt á miðunum í uótt.
Afli einstakra báta var sem hér
segir: Jón á Stapa, 900 tunnur;
Stapafell, 150; Skarðsvík, 700; Jök
ull, 150; Höfrungur, 6Ó0; Sæúlfur,
160; Sólrún, 250; Strákur, 550;
Sæþór, 300; Fiskaskagi, 950; Stein
grímur Trölli, 450; Akraborg, 850;
GuðmundurÞórðarson, 700; Pét-
ur Sigurðsson, 300; Sigurpáll, 2000;
Jón Garðar, 1100; Víðir II., 1100;
Árni Þorkelsson, 150 og Arnkell,
200 tunnur.
Bandaríkjamenn
Eéfu undan síga
WASHINGTON, 14. 5. (NTB-Reut-
er). — Bandariska flugmálastjórn
in lét í dag undan í hinnl alþjóð
legu deilu um flugfargjöld yfir
Atlantshaf. Undanslátturinn var
gerður að ráði utanríkisráðuneyt-
ísins. í kvöld voru birt bréf, scm
farið hafa milli flugmálastjórnar-
innar og utanríkisráðuneytisins og
sést af þeim, að flugmálastjórnin
hefur tilkynnt Pan American. að
hún muni breyta fyrri tilskipun
sinni til félagsins um að fram-
kvæma ekki hækkun þá á verði,
þem IATA hafði einróma sam-
þykkt að framkvæma frá og með
sl. sunnudegi.
Alan Boyd, flugmálastjóri, hafði
snúið sér til Rusks, utanríkisráð-
lierra og spurt hann um skoðun
hans, og hafði rá'ðherrann látið
í ljós það álit, að ef flugmála-
stjórnin gæti ekki ákveðið far-
gjöldin, ætti hún að gefa flug-
félögunum, Pan American og
Trans World Airlineg leyfi til að
framkvæma hækkunina.
Fyrr í dag hafði verið tilkynnt
í Hvíta húsinu, að Kennedy, for-
seti, mundi í dag leggja fyrir þing
ið frumvarp að lagabreytingu, er
veitti flugmálastjórninni ieyfi Til
að útkljá fargjaldamálið og gera
gagnráðstafanir gegn erlendum
flugfélögum, ef önnur lönd hæfu
afskipti af amerískum flugfélög-
um, sem ekki færu eftir fargjalda
ákvörðunum IATA.
Þessa lagabreytingu átti að gera
sem allra fyrst. Sagt var, að þessi
ráðstöfun forsetans stæði í beinu
sambandi við fargjaldadeiluna,
þó að hún geti ekki haft ábrif á
hina ákveðnu hækkun.
Geimferð Coopers
frestað til í dag
CAPE CANAVERAL, 14. maí
(NTB-Reuter).
FRESTA varð í dag hinni miklu
geimkönnun Bandaríkjamanna, er
Leroy Gordon Cooper majór skyldi
skotið út í geiminn og fara 22
hringi umhverfis jörðu. Atburðir
þessir voru mjög dramatískir. Á
síðustu stundu uppgötvaðist alvar-
leg bilun í radarstöð þeirri á Ber-
mudaeyjum, er fylgjast skyldi með
fyrsta áfanga flugsins. Var Cooper
þá búinn að vera 4 tíma og 55 mín-
útur í geimfarinu „Faith 7“. Til-
kynnt hefur verið, að ný tilraun
verði gerð á morgun, og er gert
ráð fyrir, að hún verði kl. 13 eftir
Tilkynningin um frestunina kom
aðeins nokkrum mínútum áður en
fiauginni skyldi skotið. Fyrr í dag
hafði talningunni undir skotið ver-
ið frestað í tvo tíma, vegna þess
að tæknimönnum tókst ekki að
koma af stað dieselvél þeirri, sem
nauðsynleg er til þess að hægt sé
að koma sjálfu geimfarinu af stað.
Rétt áður en tilrauninni var frest
að tilkynnti Cooper innan úr geim
fgrinu, að sér liði aldeilis prýði-
'ega, þrátt fyrir hina löngu bið.
íslenzkum tíma.
GUÐMUNDUR
ÓLAFSSON
Guðmundur Olafsson, slíó-
kaupmaður, Garðastræti 13,
varð biráðkvaddur í fyrra-
kvöld, 66 ára að aldri. Ilann
var staddur á Melaveilinum,
sem áhorfandi að knatt-
spyrnukappleik, er hann fékk
aðsvif og lézt á leið í sjúkra-
hús. Guðmundur var þekkt-
ur maður innan íþróttahreyf-
ingarinnar og mun hans get
ið nánar síðar hér í blaðinu.
BÆNADAGURINN
BISKUPINN yfir íslandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, hefur sent
prestum landsins eftirfarandi
bréf:
MEÐ VÍSUN til-bréfs míns frá
20. marz þ. á. vil ég hér með til-
kynna yður, kæri sóknarprestur,
að ég hef ákveðið, að hinn al-
menni bænadagur, 5. sd. e. páska,
verði að þessu sinni sérstaklega
helgaður böli þeirra, sem búa við
skort.
Mannleg þjáning er margvísleg,
nær og fjær, en sú staðreynd, að
stór hluti mannkyns sveltur hálfu
og heilu hungri á vorum tímum,
má ekki fara framhjá samvizku
þeirra, er njóta nægta eða jafnvel
ofgnótta. VU ég því mælast til
þess, að vér samstillum hugi vora
á þessum bænadegi í bæn fyrir
því, að þjóðir heims sameini kraft-
ana betur en orðið er til sóknar
gegn hungrinu. Er eðlilegt, að vér
íslendingar minnumst þess, í því
sambandi, að skammt er um lið-
ið síðan sultur var í landi hér og
þjóð vor átti við örbirgð að stríða.
Nú er um skipt í því efni og
skyldum vér þakka það og meta
við gjafarann allra góðra hluta og
eigi gleyma þeim börnum hans,
sem enn bera tilfinnanlega skarð-
an hlut frá sameiginlegu borði
jarðar. „Berið hver annars byrð-
ar”. Það er lögmál Krists. Biðj-
um þess, að lög hans og andi nái
■ dýpri tökum á hugsun og gjörð-
|um manna hér í voru landi og
hvarvetna.
Sigurpáll og Víðir II. eru
nú í landi vegna verkfaUsins
í Sandgerði. Var Sigurpáll
stöðvaður, þegar bann kom
að landi um 2 leytið í fyrri-
nótt, en Víðir í gærmoigun
um kl. 10. Jón Garðar er
enn úti og er að reyna að
fylla sig. Ekki er vitað hve-
nær hann kemur að landi.
Ekkert bendir til þess að
lausn deilunnar sé á næsta
leiti.
IMMMUMHHHUMUMMttMi
Það var tilkynnt í London í
dag, að brezka stjórnin heíði sent
Rusk, utanríkisráðherra, kröftug-
ar orðsendingar út af málinu.
Eins og áður er getið, stendur
deilan út af 5% lækkun á afslætti
af miðum fram og aftur. Hins j
vegar verða miðar aðra leiðina á-
fram á sama verði. Flest evrópsku
flugfélögin settu hækkunina í
framkvæmd sl. sunnudag. Þegar
amerísku flugfélögin fengu ckki
að hækka, þar eð bandaríska flug-
málastjórnin taldi hækkunina ekki
vera til hagsbóta fyrir almenning,
fengu þau betri samkeppnisaö-
stöðu. Brezka stjórnin mun hafa
hótað að gera upptækar amerísk-
ar flugvélar, ef þær héldu áfram -
að fljúga til brezkra flugvalla á
fargjöldum, sem brezka stjórnin
viðurkenndi ekki.
mm
RAGNAR JÓHANNESSON
RAGNAR JÓHANNESSON, fyrrver-
andi skólastjóri, varð 50 ára í gær. —-
Hann varð stúdent frá Menntaskólan-
um á Akureyri 1934, og kandidat í nor-
rænum fræðum frá Háskóla íslands
1939. Hann stundaði blaðamennsku í
mörg ár, og var m. a. blaðamaður við
úlþýðublaðið. Þá var hann erindreki
fyrir Alþýðuflokkinn 1940—’41, og varð
skólastjóri gagnfræðaskólans á Akra-
nesi 1947. Hann hefur þýtt fjölda bóka,
og ritað bækur og þætti. Þá liefur hann
gegnt mörgum trúnaðarstörfum. — Alþýðublaðið flytur honum
sínar beztu kveðjur, og hamingjuóskir á afmælisdaginn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 15. maí 1963 3