Alþýðublaðið - 15.05.1963, Page 10
Knattspyrnu-
æfingar hjá FH
hefjast í kvöld
KNATTSPYRNUÆFINGAR
á vcgum FH í Hafnarfirffi
hefjast í kvöld. kl. 5,30 æfir
5. flokkur, kl. 6,30 4. flokk-
ur, kl. 7,30 3. flokkur og kl.
8,30 1. og 2. flokkur.
Mikll og vaxandi áhugi er
ná fyrir knattspyrnu í Hafn
arfirði og allir FH-ingar eru
hvattir til að fjölmenna á
áefingarnar og vera með frá
byrjun.
Rttstjéri: ÖRN EIÐSSON
2. markið
ÞAÐ var geysimikil barátta
í Ieik KR og Þróttar í fyrra-
kvöld. Áhorfendur voru
margir og skemmtu sér kon-
unglega. Á myndinni er
Þróttur að skora annað mark
sitt í leiknum, en Hreiðar og
Gísli reyna árangurslaust að
koma í veg fyrir það.
Ljósm. JY.
KR tapar fyrir Þrótti
i vorsins bezta leik
í KVÖLD kl. 8.30 leika Valur og
Ájpnann annan úrslitaleik sinn í 2.
deild íslandsmótsins í handknatt- ,
leik.
Fyrri leiknum lauk með allsögu-
legum hætti eins og kunnugt er.
Dómarinn sleit leiknum nokkru
fyrir leikslolc, þar sem þjálfari
Vals fór inn á völlinn og neitaði
'að víkja þaðan. Ármann hafði þá
tveim mörkum yfir Val. Dómstóll
HKRR úrskurðaði að annar leikur |
skyldi fara fram. Leikurinn f
kvöld er þó háður með þeim fyrir-
vara, að ef Ármann áfrýjar dómn-
um til HSÍ og vinnur málið, þá
skuli úrslit fyrri leiksins gilda og
Ármann sigra, hvernig sem leikur-
inn fer.
Margir búast við spennandi leik
1 kvöld og e. t. v. sögulegum, ekki
slður en þelm fyrrl.
Hér eru KR-lngar að taka horn í leiknum gegn Þrótti, en Guttormur grípur boltann.
Ármann-Valui
léika aftur
A MÁNUDAGSKVÖLDEÐ fengu
▼allsæknir áhorfendur vissu-1
lega að sjá f jörugan kappleik, þar I
sem sókn og vörn skiptust á í
fullri alvöru og hvergi gefið eftir,
þar til yfir lauk.
Það var elzta og yngsta knatt-
spyrnufélag borgarinnar, sem
þarna leiddu saman hesta sína, í
scinni umfcrð Reykjavíkurmóts-
ins, og það af þeirri einurð og með
þeim baráttuvilja, að seint mun
þelm úr minni líða, sem á horfðu.
Þarna áttust við annarsvegar „ung
lipgurinn” í sveit reykvískra
knattspyrnufélaga, Þróttur, og
hinsvegar „nestor” íslenzkrar
knattspyrnu, KR. Og leikar fóru
sv'o, eftir hina miklu baráttu, að
unglingurinn bar sigurorð af hin-
um aldna.
•Leikurinn var frá upphafi til
enda mjög spennandi. Sótt og var-
ið af miklum hraða og hörku og
skotin dundu á mörkunum á víxl
með þcim afleiðingum að knöttur-
inn Iá alls sjö sinnum inni. Fjór-
um sinnum hjá KR og þrisvar hjá
Þrótti. Tilþrifin voru slík á báða
bóga, að áhorfendur stóðu hvað
eftir annað á öndinni.
r GANGUR
*'•' LEIKSINS
ÞEGAR á fyrstu mínútum komust
Þróttarar f færi við KR-markið.
Jens Karlsson hefði átt að geta af-
greitt knöttinn í netið, en skeikaði
illilega. En nokkru síðar kom
fyrsta markskot leiksins, fallegt
og fast, var það frá Hauki, Þrótt-
ara, vinstrifótar hörkuspyma, af
allöngu færi. Stefndi boltinn með
hraða byssukúlunnar í annað horn
ið. Þá sýndi Gísli KR-markvörð-
ur, að hann er enginn aukvisi,
varði hann glæsilega með föstu
gripi. KR-ingar áttu nú „leikinn”
næstu mínútur og sóttu ákaft á
og á 12. mín, skall hurð sannar-
lega nærri hæium yið Þróttar-
markið, er Gunnar Guðmundsson
sendi fyrir og Ellert varpaði sér
nær flötum og skallaði eldsnöggt
að markinu, en Grétar varði 4
línu. Knötturinn hrökk frá og Jón
Sigurðsson sendi hann af bragði
á markið aftur, en nú varði Jón
miðvörður og spymti langt frá.
VORMÓT Í.R.
VORMÓT ÍR I frjálsíþróttum fer
fram á sunnudaginn eins og skýrt
hefnr verið frá. Þegar tilkynnt
var nm greinarnar, sem keppt
verður í á mótinu féll ein niður,
3000 m. hlaup. Þátttökutilkynn-
ingar þurfa að berast skrifstofu
Vallarstjóra, Melavellintun í síð-
asta lagi í kvöld.
Þama var tvívegis varið á Iínu svo
að segja á sama augnabliki.
Á 16. mínútu komst Hauk-
ur miðherji Þróttar innfyrir KR-
vörnina, en evðilagði gott tæki-
færi með handapatsfálmi í knött-
inn. Loks á 20. mín. kom fyrsta
markið. Sigþór afgreiddi boltann
í net Þróttar, með viðstöðulausu
hörkuskoti. Markvörðurinn hafði
að vísu hendur á knettinum, en
fékk ekki hamið hann fyrr en í
netinu. Var nú KR-vinum dlllað,
og hugsuðu sennilega um leið til
leiksins í fyrri umferðinni, þegar
Þróttur beið lægri hlut með ö:2.
En það átti eftir að sýna sig, að nú
var annar hugur f Þrótti en þá.
Og aðeins 9 mínútum síðar jafn-
aði Axel Axelsson metin, með
geysiföstu skoti frá vítateigi. Var
þetta snögg og viðstöðulaus af-
grelðsla. Smaug knötturinn inn
rétt við stöng. Stóðu nú leikar
jafnir, en aðeins i fáar mínútur,
að KR náði aftur forastunni, er
Jón Sigurðsson skoraði með
beinskeyttri lof+sendingu, úr
skalla frá Théódór Guðmunds-
syni, nýllða, sem átti góðan leik.
Var þessi afgreiðsla Jóns frábær-
lega vel framkvæmd. Hafði nú
KR forystuna allt að síðustu mín-
Framh. á 11. sfðn
Fréttir
frá
Körfu-
knattleikssambcmdi
SAMKVÆMT tilkynningu, sem
KKÍ hefur borist frá Suomen Xo-
ripalloliitto, þá verður næsta Po-
lar Cup háð í Helsinki dagana
20—22 mars 1964. Keppnin hefur
jafnframt verið viðurkennd sera
Norðurlandameistaramót 1 körfu-
knattleik.
Keppt er um Polar Cup bikarinn
til eignar og hlýlur hann sú þjóð,
er fyrst nær tíu stigum i keppn-
inni. Stigatalan er nú þannig:
Finnland 3 stig
Svíþjóð 2 stig
ísland 1 stig
Danmörk 0 stig . !
Dómara og þjálfara-
námskeið í Finnlandi.
Námskeið fyrir starfandi körfu-
knattleiksdómara, verður haldið á
finnska íþróttaskólanum í Vieru-
máki í ágústmánuði næstkomandi.
Einn íslenzkur dómari hefur rétt
til þátttöku.
Ennfremur verður haldið nám-
skeið fyrir körfuknattleiksþjálfara
á sama stað, dagana 7,—10 júlí n.k.
og getur einn islenzkur þjálfari
fengið aðgang að námskeiðinu.
Dómarar eða þjálfarar, sem hug
hafa á að sækja þessi námskeið,
eru beðnir hafa samband við
stjórn KKÍ, sem allra fyrst.
10 15- maí 1953 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ