Alþýðublaðið - 15.05.1963, Síða 11
KRTAPAÐI
Framh. af 10 síðu
útu, en þá jafnar Þróttur aftur.
Bar það mark að, með þeim hætti,
að Bjarni Felixsson, sem lék mið-
framvörð, hugðist „hreinsa frá”
með langspyrnu en knötturinn
small á framstormandi Þróttara,
Jens Karlssyni og hrökk síðan af
honum og yfir Gísla og inn. Slysa-
leg tilviljun, sem sannar að oft
verður lítið gagn að því högginu,
sem hátt er reitt. Og fyrri hnlf-
leiknum lauk með jafntefli, 2:2.
í þessum hálfleik átti KR meira
í leiknum og sýndi yfirleitt betra
„spil” og hafði forystuna, þó að
Þrótti tækist að jafna í lokin.
SÍÐARI HÁLFLEIKUR 2:1.
í ÞESSUM hálfleik var það hins-
, vegar Þróttur, sem jók á alla
spennu og barðist af síauknum
krafti allt til loka, sigraði með
2:1 og tryggði sér með því bæði
stigin í leiknum.
I Á 11. mínútu tóku Þróttarar
íæknifræðingafélag Islands
Aðalfundur félagsms verður haldiim fimmtu
daginn 16. þ. m. kl. 20,30 í Klúbbnum, ítalska
salnum.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Stjórnin.
Tilboð óskast
í smíði á bökkum og öðrum áhöldum úr alum-
inium fyrir sláturhús.
Teikninga og útboðslýsingar má vitja á Teikni
stofu SÍS, Hringbraut 119.
Teiknistofa SÍS.
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í löggiltum iðngreinum fara fram um Iand allt
í maí- og júní-mánuði 1963.
Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að sækja um próftöku
fyrir þá nemendur sína, sem lokið hafa námstíma og burt-
fararprófi frá iðnskóla. Ennfremur má sækja um próftöku
fyrir þá nemendur, sem eiga skemmra en tvo mánuði eftir
af námstíma, þegar sveinspróf fer fram, enda sé burtfarar-
prófi frá iðnskóla lokið.
Umsóknir um próftöku sendist formanni viðkomandi próf-
nefndar ásamt venjulegum gögnum og prófgjaldi.
Skrifstofa iðnfræðsluráðs veitir upplýsingar um formenn
prófnefnda.
Reykjavík, 13. maí 1963.
Iðnfræðsluráð.
RÚMAR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 1963
Sími 24204
& co. P.O. EOX 1SM - REYKJAVlK
forystuna, með því að Jens Karls-
son, sendi knöttinn inn af 25
metra færi og viðstöðulausu skoti,
úr sendingu frá Axel Axelssyni.
Og aftur nokkrum mínútum síðar
átti Jens annað skot, sem Gísli
bjargaði mjög vel í horn.
Á 20. mín hafði Sigþóri nær tek-
ist að jafna fyrir KR, en mark-
vörður Þróttar sló yfir. En fimm
mínútum síðar jafnar Jón Sig-
urðsson, og rétt á eftir ver mark-
vörður Þróttar fast skot úr íyrir-
sendingu. Aðeins mínútu síðar
var KR-markið í bráðri hættu
eftir langskot Hauks, en boltinn
smaug yfir þverslá. Loks er 10
mínútur voru eftir af leiknum,
tryggði Þróttur sér sigurinn með
ágætu skoti Ólafs framvarðar.
Réði Gísli ekki við skotið en bolt-
inn þaut í netið. Þær mínútur sem
eftir voru, var barist af miklum
móði, og gerðu KR-ingar harða
hríð að vöm Þróttar og márki, en
fengu ekki jafnað og leiknum
lauk, svo sem fyrr segir með tapi
þeirra og þrem mörkum gegn fjór-
um. Fjörugasti og mest spenn-
andi leik Reykjavíkurmótsins, til
þessa, var lokið. Þróttur stóð með
„pálmann í höndunum” og sjö
stig eftir þá leiki, sem hann hefur
þegar leikið. Hann á Val eftir, sem
á hagkvæmari taflstöðu, átta stig,
nægir því jafntefli til sigurs, auk
þess sterkustu vöm Reykjavíkur-
félaganna, eins og er. Hversu um
lokabaráttuna fer skal engu spáð,
en fullyrða má sjálfsagt, að hvor-
ugur mun sig spara, er á hólminn
kemur.
Steinn Guðmundsson dæmdi
leikinn, er þetta eldskírn hans sem
dómara og fyrsti meiri háttar leik-
ur. Tókst honum dómarastörfin all
vel, miðað við aðstæður.
ÞRÓTTUR hefur sýnt það, með
leik sínum í Reykjavíkurmótinu
að sigrar hans era engin tilviljun.
Liðið í heild hefur hert sóknina
jafnt og þétt, með þeim árangri
að það hefur vissulega möguleika
á að standa yfir höfuðsvörðum
allra 1. deildarliðanna, hér í borg.
En það er rétt að minna á að
Þróttur leikur í II. deild. Þjálf-
ari Þróttar er Simonyi Gabor. hinn
ungverski. Þó hann sé fyrst og
fremst kunnur hér á landi sem
frjálsíþróttaþjálfari, er hann stór-
velmenntaður alhliða íþróttaþjálf-
ari. Til hans má m. a. og kannske
fyrst og fremst rekja þær ótví-
ræðu framfarir, sem orðið hafa
hjá Þrótti sem knattspymufélagi.
í liði Þróttar era svo sem að
líkum lætur margir snjallir liðs-
menn, meðal þeirra má nefna
Axel Axelsson, sem er nú einn
okkar snjöllustu útherja, mjög
leikinn og fljótur svo af ber. Inn-
herjinn Jens Karlsson hörkuskot-
harður og vinnusamur miög.
Miðframvörðurinn Jón Björgvins-
son sérlega duglegur og ósérhlif-
inn og markvörðurinn Guttormur,
sem hefur átt ágæta leiki það sem
af er. En liðið í heild er furðu vel
samstætt og leikglatt. Skotharka
framherjanna er ótvíræð og eng-
inn minnimáttarkennd gagnvart
því að skjóta til marksins, þó af
alllöngu færi sé. Fyrir þessum
nýja vaxtarbroddi reykviskrar
knattspymu hafa „gömlu félögin
mátt láta í minni pokann, hvert af
öðru, eða slefa jafntefli. Hvort
II. deildarlið Þróttar verður
Reykjavíkurmeistari innan skamms
eður ei^stendur og fellur með Val,
"sem á við hann úrslita leikinn. í
því sambandi er rétt að minna á að
í fyrri umferðinni varð jafntefli
milli þessara aðila, en jafntefli
nægir Val að vísu til endanlegs
sigurs. EB
Kosningaskrifstofur
Reykjavfk
Kosningaskrifstofan er í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, símar 15020, 16724.
Opin kl. 10—22 (kl. 10—10).
I
Vesturfand
Aðalskrifstofan er í Félagsheimili Alþýðu-
fiokksins, Vesturgötu 53, Akranesi, sími 716.
Skrifstofan er opin kl. 10—19 (kl. 10—7).
NorðvesturSand
Aðalskrifstofan er í Borgarkaffi, Siglufirði,
sími 302. Skrifstofan er opin kl. 17—19 (kL
5—7).
Norðausturland
Aðalskrifstofan er að Sírandgötu 9, Akureyri,
sími 1399. Skrifstofan er opin kl. 10—22 (kL
10—10).
SuSuriand
Aðalskrifstofan fyrir Suðurlandsundirlendíð
er að Grænuvöllum 2, Selfossi, sími 273.
Skrifstofan er opin kl. 20—22 (kl. 8—10). —
Skrifstofa flokksins í Vestmannaeyjum er að
Drekastíg 24, sími 490 og er opin kl. 20—22
(kl. 8—10).
Reykjanes
Aðalskrifstofa kjördæmisins er í Alþýðuhus-
inu, Hafnarfirði, sími .50499. Skrifstofan er
opin kl. 14—19 og 20—22 (kl. 2—7 og 8—10).’^
Svæðisskrifstofan fyrir Keflavík og Suðurnes
er að Hringbraut 99, Keflavík, sími 1940
(92-1940). Opin kl. 17—22 (kl. 5—10). .
I Kópavogi er flokksskrifstofan í Alþýðuhús-
inu, Auðbrekku 50, sími 38130.
Opin kl. 14—19 (2—7) og 20—22 (kl. 8—10).
Aðalskrifstofur
flokksins eru í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu
símar 15020, 16724, opnar kl. 10—22.
Flokksmenn eru beðnir að hafa samhand við
starfsfólk þeirra um allt er lýtur að kosning-
unum.
Fiokksfólk um land allt er beðið að hafa sem
bezt samband við flokksskrifstofur sínar og
veita þeim allt það lið sem unnt er.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
Kosntng- utan kjörstaða er hafin. Kosið' er hjá hreppstjór-
um, sýslumönnum, bæjarfógetum og borgarfógetanum í
Reykjavík. en kjörstaður hans er í Melaskólanum og er op-
inn kl. 10—12, 2—6 og 8—10. Kjósendum ber að Itjósa
þar sem lögheimili þeirra var 1. des. 1962.
Þeir, sem ekki geta kosið þar á kjördegi, verða að kjósa
utankjörstaðakosningu fyrir þann tíma. Kjósendur, sem
staddir eru erlendis, geta kosið á skrifstofum íslenzkra
sendiÆlltrúa.
Listi Alþýðuflokksins er A-LISTI
ALÞÝÐUBLAÐIO — 15. maí 1963