Alþýðublaðið - 21.05.1963, Blaðsíða 10
Iþróttafréttir í
stuttu máli
RHstjóri: ÖRN EIÐSSON
Hið sigursæla lið Vals, sem
vann Reykjavíkurmeistaratit-
ilinn í knattspyrnu 1963. —
Fremri röð frá vinstri: Ormar
Skeggjason, fyrirliði, Arni
Njálsson, Björgvin Hermanns-
son, Þorsteinn Friðþjófsson, El-
ías Hergeirsson. Aftari röð frá
vinstri: Bergsveinn Alfonsson,
Björn Júlíusson, Hans Guð-
mundsson, Steingrimur Dag-
bjartsson, Bergsteinn Magnús-
son,r Hermann Gunnarsson,
Geir Guðmundsson, þjálfari og
Ægir Ferdinandsson form.
Knattspyrnudeildar Vals. Á
myndina vantar tvo menn, sem
léku með í mótinu, þá Matthi-
as Hjartarson og Guðmimd
Ögmundsson.
Ljósm. J. Vilberg,
Uní helgina setti Tamara Press,
nýtt rússneskt met í kringlukasti
kvenna, hún kastaði 59,29 m.
' Svíinn Haglund hefur sett
Norðurlandamet í kringlukasti, —
hann kastaði 56,26 m. Gamla met-
ið átti Finninn Repo, 56,03 m.
Jazy setti franskt met í 1000 m.
lilaupi um helgina, 2,19,1 mín.
JÚGÓSLAVÍA
VANN USA
Um þessar mundir stendur yfir
heimsmeistarakeppni í körfu-
knattleik í Rio de Janeiro í Brazi-
líu. Mótið átti upphaflega að fara
fram í Manila á Filippseyjum, en
þar sem júgóslavneska liðið fékk
ekki vegabréfsáritun þangað, var
hætt við að halda mótið þar.
Litlar fréttir hafa borizt af mót
inu, en þau óvæntu úrslit urðu í
leik USA og Júgóslavíu, að þeir
sfðarnefndu sigruðu með 75:73!
Við munum skýra nánar frá mót-
ihu síðar.
Reykjavíkurmót
I. fl. í knattspyrnu
Keppni í Reykjavíkurmóti 1. fl.
hófst 27. apríl sl. og stendur enn
yfir. Þegar hafa farið fram 8 leik-
ir, en 2 eru eftir. Úrslit þeirra
leikja, sem þegar hafa farið fram
eru þessi:
Fram-Víkingur 4:0
KR-Þróttur 5:2
KR-Valur 2:0
Þróttur-Fram 0:2
Víkingur-KR 0:5
Valur-Þróttur 2:1
Þau félög, sem enn hafa ekki
lokið leikjum sínum eru:
Fram-KR — og
V alur-V íkingur,
en þeir leikir fara fram 25. þ.m.
Þá hefjast leikir Reykjavíkur-
mótsins í 2. fl. A og B, 3. fl. A
og B, 4. fl. A og B og 5. fl. A,
B og C, öll sama daginn eða 8.
júní, sem er laugardagur.
VALUR SIGRAÐI ÞRÓTT ÖRUGGLEGA 3-0 OG VARÐ:
Reykjavíkurmeistari
í knattspyrnu 1963
Hér er Árni Njálsson, bakvörður Vals tolleraður að leik loknum.
MLD sigri sínum yfir Þrótti í
Reykjavíkurmótinu á sunnudags-
kvöldið, tryggði Valur sér endan-
legan sigur í mótinu. Hlaut Valur
alls 10 stig, en Þróttur, sem er
næstur eða nr. 2, 7 stig.
Leikurinn i heild var all kapps-
fullur, svo sem vera bar, þar eð
var um úrslitalelk að ræða. þó
(æpast eins spennandi og búizt
/ar við. Réði þar mestu um, að
Þróttur náði sér aldrei verulega
á strik, svo sem í hinum fyrri leikj
um sínum í mótinu. Hin sterka
vörn Vals gerði hinar skothörðu
.,kanónur“ Þróttar í framlínunni,
sem svo oft hafa ógnað motherj-
unum, í fyrri leikjum móísins og
gert þeim gamanið grátt með lang
skotum sínum, næsta óvirkar og
framverðir Vals, Ormar og Fiías,
réðu yfirleitt mestu á miðju vall-
arins.
Framlína Þróttar var aldrei
Jhættuleg Vals-markinu, nema úr
hornspyrnum, en þær fékk Þrótt
ur nokkrar og voru þær y.’Irleitt
framkvæmdar mjög vél, sérstak-
lega sýndi Axel Axelsson mikla
■ snilli í framkvæmd þeirra.
★ Valur skorar.
Öll mörkin, 3 að tölu, voru skor
í fyrri hálfleik. Það fyrsta kom,
er 20 mín. voru liðnar af leiknum.
Alfonsson, hinn ungi
og ört vaxandi framherji Vals
gerði það. Markið bar að með
þeim hætti, að Guttormur, maik-
vörður Þróttar, hafði varið frek-
laust skot, en í stað þess að
varpa þegar frá sér knetíiir.im,
sló hann honum niður, svo að
sem sótti að honum,
tókst að krækja knettinum frá
honum og senda í markið. Hér
var vel að verki staðið hjá Berg-
sveini, en ekki að sama skapi hjá
Guttormi, sem yfirleitt hefur svnt
ágæta markvörzlu í mótinu. Rum-
um 7 mín. síðar kom svo annað
markið, en það gerði Hans. mið-
herji. Laumaði knettinum inn úr
þvögu. Loks rétt fyrir hlé eða á
siðustu mín., skoraði svo Hennann,
útherji, þriðja markið, sem kom
eftir ágætan samleik, sem átti ypp
tök sín hjá Ormari á miðju vall-
arins með sendingu til Berg-
steins, útherja, sem síðan lét
knöttinn ganga viðstöðulaust til
Bergsveins, er aftur lyfti honurn
yfir til Hermanns, er skaut þegar
í stað og skoraði glæsilega og ó-
verjandi.
Eins og fyrr segir, voru það
fyrst og fremst hornspyniurnar
frá Þrótti, sem ógnuðu eitthvað
i Vals-markinu. Þrívegis í röð bjarg
I aði Björgvin af miklu snarræði
með yiírslætti úr slíkri aðstöðu,
auk þess, sem hann hirti fleirl
hornspymur á markteigi.
★ Síðari hálflc’kur.
Á fyrstu fimm mín. áttu Þrótt
arar tvö góð upphlaup, það íyrra
endaði í skoti í annað markhorn-
ið niður við jörð, en Árni var
þar fyrir og bjargaði örugglega
og í annan stað átti Haukur, mið-
herji, fallegt skot úr scndingu
frá Jens, þar sem hann sneiddi
knöttinn fagurlega að markinu,
en aðeins framhjá. í þessum hálf-
leik átti Valur gegn vindi að
sækja, en þrátt fyrir það, þo fram
verðirnir réðu mestu um miðju
vallarins og framlínan væri meira
og minna í sókn meginh'uta leiks
Framhald á 12. síðu.
Bergsveinn
skoraði 1000.
mark mfl. Vals
í LEIK Vals og Þróttar í
Rvíkurmótinu á suimu-'
dagskvöldið, var 1000. mark
Vals í meistaraflokki skor-
að. Það var hinn ungi og
efnilegi framherji, Berg-
sveinn Alfonsson, sem
markið gerði. Það var fyrsta
mark leiksins, sem var 1000
markið.
21. maí 1963 — AIÞÝÐU5LAÐIÐ