Alþýðublaðið - 21.05.1963, Page 13
Minningarorð:
ÞÓRÐUR GUÐBJÖRNSSON
GÓÐVINUR minn, Þórour Guð-
björnsson, bifreiðarstjóri, er í dag
kvaddur. Aðeins 45 íra að aidri
varð hann að láta undaa síga í
hetjulegri baráttu við þann eríiða
sjúkdóm, sem varð lians bauamein.
Hann hlaut hvild eftir miklar
þrautir, sem hann umbar af stakri
þolinmæði og æðruleysi. ÍVleð hon
um er genginn sannur og góður
drengur, mikill mannkostamaður.
Þórður Guðbjörnsson fluttist til
Hafnarfjarðar árið 1922 og hafði
þar síðan sitt heimili. Hann var
fæddur 27. marz 1918 í Hagavík
í Grafningi og voru foretdrar lians
Þórður Guðbjörnsson
hjónin Guðbjörn Gíslaron, bór.di
og Guðríður Þórðardóttir. Stóðu
að Þórði sterkir ættstofnar. Þórð-
ur var á öðru ári, er hann missti
föður sinn af slysförum. Af fram
úrskarandi dugnaði kom móðirin,
sem enn er á lífi og stundar erf-
iðisvinnu dag hvern, syni sínum
og dóttur, Birnu, sem búsett er í
Hafnarfirði, til manndóms og
þroska.
Þórður lauk námi írá Lauga-
vatnsskóla með góðum vitnisbmði,
enda var hann prýðisvel greindur,
þótt dult færi með gífur sínar.
Hann kvæntist árið 1952, Ingi
björgu Björnsdóttur, frá Hafnar-
firði og eignuðust þau tvær elsku-
legar dætur. Var Þórður írábær
heimilisfáðir.
Þórður gerði akstujr vörubif-
reiðar að sínu lífsstarfi. Rak hann
um nær tuttugu ára skeið í ina eig
in vörubifreið eða þar til er hann
fyrir tæpum fjórum árum varð
fyrir alvarlegu áfalli hjanasjúk-
dóms, sem hann mun pTHöngu
áður hafa kennt, þó hann létí ekki
á þvi bera.
Farsæld fylgdi Þórði í starfi, og
hann ávann sér hug og hjörtu
allra, sem honum gátu kynnzt. —
Hann var annars mjög dulur, en
hógværð hans og prúðmennska
var til fyrirmyndar. Hann átti ríka
og ósvikna þjónustulund. Mórgum
verður greiðasemi hans m'nnis-
stæð, en oft lagði hann hart aö
sér á tímúm, er aðrir völdu sér
hvíld, til að hjálpa náunganum
imeð akstri og á annan hátt. Var
þá oft farið vægt í kröfur um
endurgjald eða því sleppt. Eink-
um var hann þeim greiðvikinn,
sem minnst máttu sín.
Aldrei tileinkaði Þórður sér þær
ógeðfelldu aðferðir sumra í nú-
tímaþjóðfélagi að beita smjaðri og
fláttskap til öflunar fyrirgreiðslu
í starfi og fjárhagslegu tilliti.
Hann var hreinn og beinn, heil-
steyptur og ráðvandur, sannkall-
að göfugmenni.
Ég átti því láni að fagna að
eignast trúnað hans og trausta vin
áttu. Þórður Guðbjörnsson vsrður
mér ógleymanlegur og dýrmæt
kynningin við hann. Rósemi huga
hans, heiðrikja andans, lifandi á-
hugi á góðum málefnum, glögg-
skygeni á menn, grandvart og
dyggðugt lífemi, sem einkcnnd-
ist af lítillæti, tillitssemi til ann-
arra og því að gera kröfurnar til
sjálfs sín — þetta allt voru eðlis-
einkenni þessa höfðingsmanns, sem
hér hefur verið minnzt með fáum
kveðjuorðum.
Honum fylgl til fyrirhcitna
landsins þögul bæn þakklatra huga
allra þeirra, sem hann þekktu
rétt.
Árni Gunnlaugsson.
the 'elegant’
DE LUXE
leisure chair
Sólstólarnir
fást í Geysi.
Geysir hf.
Vesturgötu 1.
Einangrunargler
Framleitt einungis úr drval*
gleri -— 5 ára ábyrgð
Pantið tímanlega
Korkiðjan h.f.
Skúlagötu 57. — Simi 23200.
SMUBSTÖÐIH
Sætúni 4 - Sími 16-2-27
Billina er smnrffur fljótt og vd.
Seljum allar fegundir af smuroliu.
2-180 tonn
AUt það fullkomnasta.
Fæst hjá Leyland.
Afborgunarskilmálar
Einkaumboð fyrir
LEYLAND MOTORS LTD.
I1!
Almenna verzlun-
arfélagið hJ.
Laugavegi 168
Reykjavík.
Sími 10199.
SMURI BRAUÐ
Snittur.
Pantið timanlega tfl ferming-
Opiff frá U. 9-2S48.
Síml 16012
BrauSstofan
Veaturgðtn 25.
Kaupum alls konar
lireinar tuskur.
Bólsturiðjan
Freyjugötu 14.
Kosningaskrifstofur
Alþýðuflokksins
Reykjavík
Kosningaskrifstofan er í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, símar 15020, 16724.
Opin kl. 10—22 (kl. 10—10).
Vesturland
Aðalskrifstofan er í Félagsheimili Alþý’ðu-
flokksins, Vesturgötu 53, Akranesi, sími 716.
Skrifstofan er opin kl. 10—7.
Vestfiröir bbb
Aðaiskrifstofan er í Alþýðuhúsinu ísafirði,
opin kl. 5—10.
NorOvesturland
Aðalskrifstofan er í Borgarkaffi, Siglufirði,
sími 302. Skrifstofan er opin kl. 5—7.
Skrifstofan á Sauðárkróki er að Knarrarbraut
4 (niðri), sími 61.
Norðausturland
Aðalskrifstofan er að Strandgötu 9, Akureyri,
sími 1399. Skrifstofan er opin kl. 10—22 (kl.
10—10).
Suðurland
Aðalskrifstofan fyrir Suðurlandsundirlendið
er að Grænuvöllum 2, Selfossi, sími 273.
Skrifstofan er opin kl. 8—10.
Skrifstofa flokksins í Vestmannaeyjum er að
Drekastíg 24, sími 490 og er opin kl. 8—10.
Reykjanes
Aðalskrifstofa kjördæmisins er í Alþýðuhús-
inu, Hafnarfirði, símar 50499, 50307, 50211.
Skrifstofan er opin kl. 14—19 og 20—22 (kl.
2—7 og 8—10).
Svæðisskrifstofan fyrir Keflavík og Suðumes
er að Hringbraut 99, Keflavík, sími 1940
(92-1940). Opin kl. 1—10.
í Kópavogi er flokksskrifstofan í Alþýðuhús-
inu, Auðbrekku 50, sími 38130.
Opin kl. 2—7 og 8—10.
Aðalskrifstof u r
flokksins eru í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötn
símar 15020, 16724, opnar kl. 10—22.
Flokksmenn em beðnir að hafa samband við
starfsfólk þeirra um allt er lýtur að kosuing-
unum.
Flokksfólk um land allt er heðið að hafa sem
hezt samband við flokksskrilstofur sínar og
veita þeim allt það lið sem unnt er.
Utankjörsta8aatkvæðagreifsla
Kosnlng utan kjörstaða er hafln. Kosið er hjá hreppstjér-
um, sýslumönnum, bæjarfógetum og borgarfógetanum f
Reykjavík. en kjörstaður hans er í Melaskólanum og er op-
Inn kl. 10—12, 2—6 og 8—10. Kjóslndum ber að kjósa
þar sem lögheimfli þeirra var 1. des. 1962.
Þeir, sem ekki geta kosiff þar á kjördegi, verða að kjósa
ntankjörstaðakosningu fyrir þann tíma. Kjósendnr, sem
staddir eru erlendis, geta kosið á skrifstofum íslenzkra
sendifulltrúa.
Listi Alþýðuflokksins um allt land er A-LISTI.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. maí 1963 J.3;