Alþýðublaðið - 28.05.1963, Síða 2
£í!í5ÖOXM2DímiCI)
gnitjörsr: Giáll J. Asiþórssor (áfe) bB Benedlkt Gröndal.—AOstoBarrltstJórl
IQOrgvin GuCmundsspn - Fréttastjórl: Sigvaldi Hjálmarsson. — Simar:
M 909 — 14 302 — 14 903. AuglýsLngasíml: 14 906 — Aösetur: AlþýðuhúsiO
Pren:smiöja Ai>ýöublaBs)ns, Hverfisgötu 8-10 — Askriftargjald kr. 65.00
4 mánufii. 1 lausasulu kr. 4 00 eint Dtgefandi: Alþýöuflokkurinn
FALSANIR TÍMANS
HALDA ÁFRAM
TÍMINN >er ekki af baki dottinn. Það er ekki
fyrr búið að reka ofan í hann ble'kkingarnar um
landhelgismálið en blaðið byrjar að rangfæra og
falsa atriði í öðru máli. SI. sunnudag birtir Tíminn
, forsíðufrétt um það, að Bretar vilji nú komast inn
, í fiskiðnað okkar íslendinga. Þessu „til staðfesting
ar“ birtir Tíminn mynd af frétt úr Manchester
Guardian en svo illa tekst til, að fréttin úr hinu er-
i lenda blaði leiðir, í ljós, að Tíminn hefur hér enn
einu sinni gerzt sekur um fölsun. í Manchester
Guardian segir, að á fiskveiðiráðstefnunni, er Bret-
ar hafa boðað til í haust eigi að ræða um fiskveiði-
fakmöik EFTA ríkja, gagnkvæm löndunarréttindi
aðildarríkja EFTA og réttindi til reksturs fiskiðju-
vera í ríkjum EFTA. En þegar Tíminn fer að þýða
fréttina segir blaðið, að ræða eigi „réttindi innan
fiskveiðmarka annarra ríkja11 og í fyrirsögn Tím-
: ams segir: „Bretar vilja nú komast inn í fiskiðnað-
: inn okkar”. Þannig gerir Tíminn sér lítið fyrir og
; gerir ísland að aðila EFTA, fríverzlunarsvæðis sjö-
, ríkjanna til þess að geta haldið því fram, að Bretar
vilji nú komast inn í fiskiðnað okkar íslendinga! *
I. Tíminn leikur hér nákvæmlega sarna leikinn og
| í landhelgismálinu. Framsóknarmenn eru uppvísir
; að því í sambandi við landhelgismálið að hafa birt
, fréttaskeyti, sem þeir vissu að hafði ekki við rök
að styðjast, þar eð blaðamenn Tímans höfðu sam-
I feand við utanríkisráðuneytið áðux en fréttaskeyt-
j ið var birt. Nú er jafnvel gengið enn lengra, þar
eð birt er röng þýðing á erlendri frétt til þess að
betur henti áróðri Framsóknarmanna. Er augljóst,
að Framsóknarmenn ætla nú að hefja sams konar
áróðursherferð í Efnahagsbandalagsmálinu og þeir
íhafa rekið í landhelgismálinu og þeir hyggjast
hyggja hina nýju herferð á blekkingum og rang-
færslum eins og hina fyrri.
UTBOÐ
INNFLYTJENDUR
Seljið viðskiptavinum yðar
Rúmenska skó
sem til ei-u fyrirliggjandi I
miklu úrvali fyrir alla ald-
ursflokka, tækifæri og árs-
tíðir.
— Karlmannaskór og sandalar, mjúkir handsaumaðir. — Með
leður- eða gúmmísólum.
— Gæðaskór karla og kvenna, saumaðir eftir Goodyear-kerfinu
úr úrvaíshúðum.
— Kvenskór og sandalar af ballerínugerð. Álímdur, sveigjan-
legur sóli úr leðri eða gúmmú.
— Sveigjanlegir karlmanna* og kvenskór og sandalar með
gúmmísólum.
— Barnaskór með sveigjanlegum, saumuðum sóla. Bjartir litir,
mikið úrval, stærðir 20-38.
— Vinnustígvél með gúmmí- eða leðursólum.
. Skrifið eftir upplýsingum og tilboðum til
ROMAN OEXPORT
‘ * “1 *
4, Piata Rosetti — Bucharest, Rumania.
Símnefni: ROMANOEXPORT — Bucharest.
HANNES Á
Tilboð óskast í að byggja verzlunar- og skrif-
stofuhús að Hafnargötu 62 í Keflavík.
Uppdrátta og útboðslýsingu má vitja á skrif-
stofu Kaupfélags Suðurnesja Faxabrau1r27 og
Teiknistofu SÍS, Hringbraut 119, Reykjavík
gegn 500 kr. skilatryggingu.
Kaupfélag Suðurnesja.
tM LEIÐ og Svavar Gests Iiæítir
vetrarstaifinu, en síðasti þáttur
hans var á sunnudagskrölj, vil
ég færa honum þakkir fyrir á-
nægjulegar kvöldstundir í vetur.
Mér er kunnugt um það, að þáttur
hans hefur verið vinsælasta út-
varpsefnið — og fæstir hafa viljað
missa af því, enda setið heima og
hætt við að fara út þegar hann
hefur haft sinn þátt. Maður
gagnrýnir og finnur að ýmsu, en
ekki er síður ástæða að geta þess,
sem vel er gert. Þættir Svavars
hafa verið léttir og leikandi og létt
á þann hátt dagskránni, sem hefur
lengi verið of þung. Útvarpið verð-
ur að tryggja sér þennan fjörmikla-
stjórnanda og fimdvísa skeinmli-
mann fyrir næstu vetrardagsbrá.
VERKAMAÐUR SKRIFAR: ,.Á
hverjum vinnudegi fara þúsundir
manna um hádegið í mat og úr
mat — fara heim til að boroa há-
degisverð og síðan aftur á vinnu-
stað. Þannig er þetta og hefur
verið alla tíð hjá okkur íslending-
ym. Við erum ekki ennþá farnir
að átta okkur á, að slíkt fyrirkomu
lag á ekki við — borgar 6ig ekki
fyrir neinn — og er með öllu tu cil .
MARGIR ERU FARNIR að sjá
þetta og eru þegar, sem betur fer,
nokkuð margir farnir að hafa með
sér matarpakka og ýmis stórfyrir-
tæki og stofnanir hafa komið upp
mötuneytum fyrir starfsfólkið. En
betur má ef duga skal. Eflaust 'er
að mikið fé og mikla fyrirhöfh
mætti spara, ef almennt yrði lát-
ið af þessum sið — að fara heim
um hádegið, oft og tíðum bókstaf
lega gleypa í sig og svo af stað
aftur. Myndi ekki aðeins sparast
fé, heldur væri þetta miklu betra
fyrir fólkið sjálft. \
ÞÁ ÞARF ÞAÐ EKKI að hendast
á milli, oft langar leiðir, og gæti
komið fyrr úr vinnu en' clía., Mat-
arpakki um hádegið riiyndi leysa
+ Svavar Gests er hættur.
+ Þakkir fyrir marga ánægjulega stund.
1 * Úr mat og í mat.
Bréf úr Heimunum um sóðaskap og hirðuleysl.
mikinn vanda. Einnig myndi nýr
siður — hætta að fara heim í mat
um hádegið — verða til þess að
fjeíri matpölus^aðir yrðu starf-
ræktir víðsvegar um bæinn.“
PÉTUR í IIEIMUNUM skrifar:
„Beztu þakkir fyrir aila þættina
þína um fegrun og betri um-
ígengni í borginni okkar. Þar hafa
oft verið orð í tíma töluð. Nýtt
hverfi liefur á skömmum ííma r:s-
ið upp inn í Heimunum. Að mörgu
leyti er hér um að ræða beztu
skilyrði fyrir ’’búa borgarinnar. Þó
mættl betur fara eftirfarandi:
NOKKRAR GÓÐAR verzlanir
hfa verið staðsettar 1 miðju hverf-
inu, fiskibúð. Heimakjör, Jónskjör,
Sólheimabúðin, efnalaug og svo að
sjálfsögðu Mjólkursamsalan með
sína mjólkurbúð. Sóðaskapiu inn í
kringum þessar búðir er íyrir
neðan allar hellur, auk þess sem
ómögulegt er að komast þangaS án
þess að skemma meira eða minna
góða skó. Þetta stafar af því að það
er mestmegnis smátt eggjagrjót og
ofaníburður í kringum búðjmar
og þ. h. Væri nú ekki mögulegt
að verzlanirnar tækju sig saman
og létu steypa eða ma'bika plan
fyrir framan allar búðirnar í einu.?
I
Á HÆÐINNI MILLI STÓRU
Framtakshúsanna eru 15-20 sorp-
tunnur og allar auðvitað loklausar.
Dæmalaust er að borgarlæknir
skuli leyfa að börn leiki sór að því
að róta í þessu sorpi, svo ef einhver
stormur er, fýkur allt drasl upp
úr tunnunum og mjólkurhyrnur
og annar úrgangur fyllir alla
bletti, sem margir íbúanna eru
að reyna að halda hreinum.
VIÐ HÉR KÖFUM margsinnis
kvartað yfir þessum ófögnuði, en
nú eins og svo oft áður mega þín
ráð máske bæta úr þessu. Þú ert
Vesturbæingur og ættir að líta
hingað til okkar og sjá með eigin
augum baslið hérna, því með mjög
litlum tilkostnaðí mætti kippa
þessu í lag öllum til ánægju.“
Toppgrindur
Mjög ódýrar toppgrindur — aðeins kr. 600,00.
21-salan
Skipholti 21, sími 12915.
£ 28. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ