Alþýðublaðið - 31.05.1963, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 31.05.1963, Blaðsíða 3
92,4% landsmanna höfðu rafmagn ’61 92,4 AF HUNBRAÐI landsmanna höfðu rafmagn árið 1961, segir í skýrslu um rafmagnsmál, sem blaðinu hefur borizt frá Kaforku- málastjóra. Tölurnar líta þannig út: af 180.058 íbúum landsins liöfðu 166.396 rafmagn. Af þessum fjölda höfðu 161.096 manns cða Aðalfundur Sjálfsbjargar FIMMTI aðalfundur Sjálfsbjarg- ar, Landssambands fatlaðra verð- ur settur í Skátahe^milinu í Reykjavík í dag klukkan 1.30. — Fundinn sitja um 40 fulltrúar frá 10 fálagsdeildum. í dag verða fiuttar skýrslur stjórnrar, frarn- kvæmdastjóra, sambandsfélaganna og fleira. Einnig verða framsögu- ræður um atvinnumál, félagsmál og farartækjamál. Ráðgert er að fundurinn standi í þrjá daga. 89,5% rafmagn frá almennings- veitum, en 5.300 eða 2,9% rafmagn frá einkastöðvum, t. d. á sveita- bæjum. Af þessum tölum sést, að 13.662 manns hefur vantað raf- magn 1961 eða 7,6% landsmanna. Þess' ber að geta í þessu sam- bandi, að íbúatölur í rafvæddum sveitum eru áætlaðar. Langmestur hluti landsmanna hafði rafmagn frá rafveitum bæj- ar og sveitafélaga eða 73,1% alls 131.653 manns. Langflesta við- skiptavini hafði Rafveita Reykja- víkur, alls 83.653 manns eða 46,2%. Af þessu voru 73.388 í Reykjavík sjálfri, en auk þess sér hún fyrir rafmagni í Kópavog, Seltjarnar- n,es, Garðatún og Álafoss, auk j þess sem 884 manns í nærliggj- ! andi sveitum fá rafmagn frá Raf- j veitunni. Flesta viðskipavini utan Reykja I víkur hefur Ráfveita Akureyrar, I 8957 manns (5%), þá kemur Hafn | arfjörður með 7793 manns (4,3%) og síðan Keflavík, Vestmaunaeyj- ar og Akranes. Héraðsrafmagnsveitur ríkisins súu á þessum tíma 29.443 manns (16,4%) fyrir rafmagni. Austur- landsveita nær yfir stærst svæði, allt norðan frá Bakkafirði og suð ur á Djúpavog, auk sveita, og hef- ur flesta viðskiptavini, 5622 tals- ins (3,1%). Næst kemur Eyjafjarð arveita með 3803 manns (2,1%) og svo koma í röð Vestfjarðaveita, Snæfellsnesveita, Rangárveita, Ár nesveita og Húnaveita, sem allar eru mjög svipaðar að stærð með 1,3% af rafmagnsnotendum. HEIMILISN OTKUN. Sala rafmagns til heimilisnot- kunar er mjög mismunandi rnikil hjá hinum ýmsu rafveitum og verð rafmagnsins enn margbreytilegra. Það kemur í ljós í skýrslu Raf orkumálastjóra, að mest heimilis- notkun rafmagns árið 1961 hefur verið á svæði Árnesveitu 1090 kíló wattstundir á mann, næst mest hjá Þingeyjarveitu, 1050 kwst. og í BorgarfjarðarveiX/U 1010 ktwst. Aðrar héraðsveitur voru með miklu lægri tölu og kemur Stranda veita næst með 880 kwst. Hjá bæjaveitum var notkunin mest ó Reyðarfirði, 971 kwst., þá Siglufjörður með 965 kwst. Akur eyri með 848 kwst. og Eyrarbakki með 835'kwst. Reykjavík kemur 15. í röðinni af 22 bæja- og sveita- rafveitum með 634 kwst. á íbúa, sem er rúmur þriðjungur af öilu rafmagni, sem Rafveita Reykja- víkur seldi það ár. Minnst var heimilisnotkim hjá Dalaveitu, 370 kwst. á íbúa, en í bæjum var notkunin minnst á Pat reksfirði, 487 kwst. RIISIJÓRASKIPTI VIÐ ARBEIDERBLADET AÐALRITSTJORI Arbeider- bladet í Osló, Olav Larsen, læt ur nú af því starfi. Hann hefur verið ábyrgðarmaður blaðsins og ritstjóri þess sl. 14 ár og er nú 69 ára að aldri. Eftirmaður hans hefur ver- ið ráðinn, Reidar Hirsti, blaða maður, sem nú er 38 ára að aldri. Ritstjóraslciptin fara fram 1. júní. Hirsti hefur staríaö við blaðið síðan hann lét af for- mennsku í æskulýðssamtökum norska Verkamannaflokksins 1958. Á myndinni sjást (talið frá vinstri): Olav Larsen, Reidar Hirsti og Martin Trammel, sem setið hefur í miðstjórn Verka- mannaflokksins síðan 1918, en víkur nú þaðan fyrir aldursakir. TEL AVIV: Tveir borgarar Ísraelsríkis, Hanna Haas og Abraham Lizzmann, hafa kært Franz-Josef Strauss, fyrrver- andi landvarnaráðherra Vest- ur-Þýzkalands, og Globke, nú verandi ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu, og aðra fyrir lögreglunni í Tel Aviv og kref jast þess, að þeir verði. ið Sumarsýning í Ásgrimssðfni NÝLEGA VAR opnuð sumarsýn- ing í Ásgrímssafni. í vinnustofu ! Ásgríms Jónssonar eru sýndar j olíumyndir, en á heimili hans vatnslitamyndir. Þessi sýning er méð líku sniði og aðrar sýningar safnsins að sumri til, en þá hefur verið leit- ast við að gefa sem gleggst yfir- lit yfir listþróun Ásgríms í rúm- lega hálfa öld og sýnd sem marg- þættust viðfangsefni. Eru þá m. j a. hafðir f huga erlendir gestir, sem safnið 6koða. í Ásgrfmssafni verða iil rölu kort af nokkrum listaverkum safns ins, m. a. litkort af Heklu- og Þing- vallamynd. Einnig kort af þjöð- sagnateikningum. Gefið hefur ver ið út lítið upplýsingarit um lista- manninn og safn hans. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1,30--4. Að- gangur ókeypis. í júlí og ágúst verður safnið op- ið alla daga, nema laugardaga á sama tíma. dæmdir samkvæmt ísraelsk- um lögum um nazista og sam- um, sem beitt var við Eich- mann. Strauss, sem nú dvelst í ísrael, er sakaður um afbrot gegn stríðsföngum, gyðing- um og öðrum, í fangabúðum hjá Scongau í Bæjaralandi í síðasta stríði. 30. maí 1963 DACCA: Það er enn of snemmt að $egja nokkuð ákveðið um af- leiðingar fellibyls þess, er gekk yfir strönd Austur-Pakistan við Bengalflóa á miðvikudag, en sennilegt er talið, að rúm- lega 500 manns hafi týnt lífi, að því er landsstjórinn þar, Abdul Nomen Khan sagði í dag. Þúsundur manna hafa orð- ið heimilislausar í bænum Chittagong og sennilega hef- ur tjónið orðið enn meira. VATIKANTÐ: Heilsa Jóhannes- ar páfa 23. hefur batnað mikið og blæðingar úr magaæxlinu hafa stanzað, að því er upplýst er í Vatikaninu í dag. Hefur sú læknismeðferð, sem páfinn hefur hJotið, borið góðan árang ur. Læknir hans. Signor Gas- barrini, fór í dag heim til sin til Bologna, og er það talið góðs viti. KAUPMANNAHÖFN: Stjórn- arandstöðuflokkarnir, vinstri og ihaldsmenn, ákváðu í dag að heirata að þjóðaratkvæði fari fram um frumvarp ríkisstjóm- arinnar um jarðnæði. Er búizt við, að atkvæðagreiðslan fari fram 25. júní nk. Þau fjögur frumvörp, sem stjórnarand- staðan krefst þjóðaratkvæðis um, em lög um forkaupsrétt ríkisins og forkaupsrétt bæjar- félaga, heimilisskyldu fyrir bændur og herðingu ákvæða um náttúruvernd. Síðastnefndu lögin fjalla um, að ríkið skuli ekki greiða uppbætur vegna friðunar. Sennilega verður greitt atkvæði um öll fjögur frumvörpin í einu. BERLÍN: Mótmælendakirkjan í Austur-Þýzkalandi hefur gef- út yfirlvsingu í tíu atriðum um afstöðu sína til austur- þýzku stjómarinnar. Þar segir m. a.', að virða beri vald ríkis- ins — svo framarlega, sem það brjóti ekki í berhögg við sann- leikann. Yfirlvsingin, sem til varð á ráðstefnu austur-þýzku kirknanna í Austur-Berlín í marz sl., hefur nú verið birt í Vestur-Berlín. í yfirlýsingunni segir m. a., að kirkjunni beri að upplýsa stjórnarvöldin um sannJeikann, jafnvel þó að hún Joinni að þurfa að þjást fvrir það. Það mundi yera óhlvðni við guð að þeaja um misnotkun valda og hlýða mönnum fremur en guði. Ennfremur, að það væri óhlýðni að gangast undir liugmynda- kerfi, sem þykist vera fullkom- ið, og þannig láta hafa áhrif á sig siðakerfi, sem þiónaði viss- um, óguðlegum sjónarmiðum. NAIROBI: Yomu Kenyatta, hinn nýi forsætisráðherra Ke- nya, tilkynnti í dag, að hann hefði hinn nýja ráðherralista sinn tilbúinn. Hann mun sjálf- ur verða ábyrgur fyrir land- vörnum, utanríkismálum og innanríkismálum. WASHINGTON: Starfsmaður Bandaríkjastjórnar skýrði frá þvi í dag, að stjórn Equador hefði vísað á bug tilmælumi Bandaríkjastjómar um, að af- hentir skyldu þegar í stað tveir amerískir fiskibátar, sem floti Equador tók um síðustu helgi. STOKKHÓLMI: Dick Helander biskup hefur gert skaðabóta- kröfu á hendur sænska rikinu og því fólki, sem hann telur hafa haft afskipti af málum gegn sér. Segir Aftonbladet, að skaðabótakröfurnar nemi hálfri milljón sænskra króna. VORMÓT í HELGADAL SKATAFELAGIÐ Hraunbúar held ur hið árlega vormót sitt í Helga- dal nú um Hvítasunnuna. Mótið verður sett laugardaginn 1. júní og verður slitið hinn 3. júni, á annan í Hvítasunnu. 16 skátafélög víðsvegar af land- inu hafa boðað þátttöku sína í þessu móti og eru líkur til að um 700 skátar sæki mót þetta. Á mótinu verða iðkaðar ýmsar skátaíþróttir, farið í gönguferðir, og varðeldar verða á laugardags- og sunnudagskvöld. Á hvítasunnudag klukkan 11 f.h. verður guðsþjónusta, síra Bragi Friðriksson prédikar. Mótsstjóri verður Marinó Jó- hannsson, dagskrár- og varðelda- I stjóri Rúnar Brynjólfsson, tjald- I búðastjórar Albert Kristinsson, i Hafsteinn Óskarsson og Jónína Gunnarsdóttir. Lögreglustjórar j mótsins verða þeir Birgir Dag- Ibjartsson og Snorri Magnússon. | Ferðir á mótið verða frá Hraun- byrgi (skátaheimilinu í Hafnar- firði) á föstudagskvöld klukkan 8 og 9 og laugardag klukkan 9 ár- degis og 1,30 síðdegis. Á hvítasunnúdag verða ferðir frá Hraunbyrgi fyrir ylfinga og i ljósálfa kl. 9 árdegis og klukkan 1,30 verða sætaferðir frá Álfafelli fyrir gesti, sem vilja heimsækja mótið .og til baka klulíkan 6 síð- degis og aftur um kvöldið að lokn- um varðeldi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 31. maí 1963 J:

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.