Alþýðublaðið - 15.06.1963, Side 3
RÚSSAR SKJÓTA
NÝJU GEIMFARI
Moskva, 14. júní
(NTB—Rcuter)
RÚSSAR skutu greimfarinu Vostok
5. á braut umhverfis jörðu kl. 12.00
eftir ísl. tíma. í dag. Að sögn Tass-
fréttastofunnar verður hér um
langa geimferð að ræða. Einn mað-
ur er í geimskipinu og ekki kona,
eins og kvittur hefur verið uppi
um að undanförnu. Geimfarinn
lieitir Valery Bykovsky og er und-
irofursti að tign.
Fyrstu fregnirnar frá geimfar-
inu hermdu, að öll tæki störfuðu
eftir áætlun og Bykovsky liði vel.
Vostok 5. er 88 mínútur og 4
sekúndur að fara einn liring um-
hverfis jörðu. Minnsta fjarlægð
geimskipsins frá jörðu verður 181
kílómetri og mesta fjarlægð 233
kílómetrar.
Bykovsky ofursti er fimmti
iWWWMWWWWWWW
Pleven kominn
að bryggju
MILLI klukkan fjögur og
fimm í gær var franska tog-
aranum Pleven reimt upp að
ytri Torfunesbryggjunni á Ak
ureyri og stóð hann þar á
grunni að framanverðu. ■—
Fjöldi manns var viðstadd-
ur á bryggjunni og fylgdist
með af áhuga.
í alla nótt var látlaust unn-
ið að því að dæla úr skipinu.
Slökkviliðið á Akureyri hef-
ur aðstoðað við dælinguna og
er tilbúið með stærri dælur,
ef með þarf.
Sonur togaraeigandans á-
samt frönskum tæknifræð-
ingi er kominn til Akureyrar
til að kanna mál þetta og
taka ákvarðanir um hvað
gera skuli.
muwmtWWMMHMMMV
I geimfari Sovétrikjanna. Hann verð
I ur 29 ára 2. ágúst, og er laglegur.
'Sýndar voru myndir af honúm í
sovézka sjónvarpinu skömmu eftir
að Vostok 5. hafði verið skotið.
Sagt er, að tilgangurinn með
geimferðinni sé að rannsaka áhrif
geimferðar á liffærin og reyna
stýritækni á löngum geimferðum.
Bykovsky sagði áður en hann
lagði upp í geimferðina, að það
væri mikill heiður fyrir hann að
halda áfram hinu mikla verkefni,
sem það væri að sigra geiminn
fyrir hönd sovézka föðurlandsins.
Bykovsky sendi Krústjov forsæt- i
isráðherra kveðjur sínar, svo og '
til hinnar lenínsku miðstjórnar |
sovézka kommúnistaflokksins og
landa sinna. Hann kvaðst mundu
gera sitt ýtrasta til þess að inna af
höndum hið ábyrgðarmikla hlut-
verk sitt á sem beztan hátt.
Nýi geimfarinn er sonur fyrr-
verandi járnbrautarstarfsmanns.
t Hann fæddist í smábænum Pav-
lovo-Posad í Moskvu-héraði og er
kvæntur 25 ára gamalli starfs-
stúlku á rannsóknarstofu, Vlen-
i tina Mikhailomna að nafni. Þau
| eiga þriggja mánaða gamlan son.
Hann gekk í samband ungkomm-
únista 1952. Fjórum árum síðar
gekk hann í skóla sovézka flughers
ins og varð orrustuflugmaður. —
Hann hefur verið sæmdur Rauðu
stjörnunni, sem fer mjög sjaldan
gert á friðartímum. Bykovsky
hefur verið sæmdur fjórum öðrum
heiðursmerkjum.
Að sögn Tass er hann greind-
ur og rólegur flugmaður, sem er
skjótur að taka ákvarðanir við
flóknar kringumstæður. Hann er
áhugasamur íþróttamaður og dug-
legur fallhlífastökkmaður. Fyrri
geimfarar Rússa eru Juri Gagarin,
German Titov, Andrian Nikolajev
og Pavel Popovich.
Nikoljaev hefur farið flestar
hringferðir eða 64. Það gerði hann
í ágúst í fyrra. Daginn eftir sendu
Rússar upp annað geimfar með
Popovlch. Þetta var í fyrsta sinn
sem tvö geimför voru á lofti í einu.
Popovitch fór 48 hringi umhverf-
is jörðu.
Moskvubúar söfnuðust út á göt-
unum til þess að hlýða á tilkynn-
inguna um nýju geimferðina frá
bifreiðum og götuhátölurum. Ekki
hefur verið tilkynnt hvað Bykov-
sky á að fara marga hringi um-
hverfis jörðina. Haft er eftir sov-
ézkum heimildum, að annað geim-
skip verði sent á eftir Bykovsky,
sennilega með fyrsta kvengeim-
faranum um borð.
Kl. 15.30 fór Vostok 5. yfir Dan-
Framhald á 14. síðu.
Keeler sakar Ev-
anov um njósnir
London, 14. júní
(NTB—Reuter)
Christine Keeler, hin 21 árs gamla '
ljósmyndafyrirsæta, hefur sakað ,
fyrrverandi flotamálaráðherra '
' Rússa í London, Evgeny Ivanov, |
um tilraun til njósna. Þessu var :
haldið fram í bréfi, sem lögfræð-
ingur í London, Eddowes að nafni,
hefur sent Harold Macmillan for-
sætisráðherra.
; Jafnframt . þessu hefur sendi-
herra Rússa í London, Alexander
Soldatov, vísað eindregið á bug
fregnunum um, að Ivanov hafi á
nokkurn hátt verið viðriðinn Pro-
fumo-málið. Sem kunnugt er, sagði
John Profumo, annar elskhugi ung
7000 hafa synt
i Reykjavík
Opnun dragnóta-
veiftisvæða
Sjávarúívegsmálaráðuneytið lief
ur samkvæmt liigum nr. 40/1960
um taknuJnr.aðJi dragnótaveijðar
undir vísindalegu eft'rliti, leitað
álits aðila, sem hlut eiga að máli
um opnun dragnótarveiðasvæða.
SLYS OG
ÍKVÍKNUN
ÞAÐ slys varð í gær, á gatnamót'
um Hólmgarðs og Réttarlioltsveg-
ar að kona féll um járnfestingu
fyrir umferðannerki og handleggs-
brotnaði illa.
Kl. hálfníu í gærkvöldi var
slökkviliðið kallað að húsi í Kópa-
vogi. Lagði þar mikinn reyk út um
glugga. Hafði konan gleymt potti
á rafmagnseldavél og sofnað. —
Skemmdir urðu engar. I
Að fengnum umsögnum hefur ráðu
neytið ákveðið opnun veiðisvæða
sem hér segir:
1. Svæðið út af Seyðisfirði.
2. Svæðið frá Norðfjarðarnípu,
suður fyrir Fáskrúðsfjörð.
3. Frá Papey vestur fyrir Þor-
lákshöfn.
4. Frá hólmanum Einbúa í Ós
um, sunnan Sandgerðis norður fyr
ir Arnarfjörð.
Dragnótaveiðar munu þó bannað
ar innfjarða samkvæmt nánari á-
kvæðum í leyfisbréfi.
í Faxaflóa takmarkast veiðisvæð
ið þannig:
1. Úr Garðskagavita um punkt-
inn 64° 8’ n.br. 22° 42’ v.l. í Gerðis
tangavita.
2. Úr Hólmbergsvita um bauju
nr. 6 í Faxaflóa í Kirkjuhólsvita.
Veiöarnar munu geta hafizt 18.
þ.m.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið
14. júni 1963
NORRÆNA sundkeppnm hefur
nú staðið í mánuð.
Af 74 sundstöðum hefur verið
synt í 52. Þessa daga er verið að
hefja starfrækslu hinna 22.
Á þeim 4 vikum, sem liðnar eru
af keppnistímabilinu munu um 13
þúsund íslendingar hafa synt eða
um 31% þess fjölda, sem þarf til
þess að þátttaka íslands aukist um
WttUMHMMMMWWWW
NORÐMENN FÁ
MIKINN AFLA
VIÐ LANGANES
ÁLASUNDI 14. júní (NTB)
Fyrstu bátarnir með ís-
landssíldina eru á heimleið
til Noregs og von er á fyrstu
bátnum þegar á laugardags-
kvöld. Sá bátur er með 2800
hl. afla. Annar bátur, sem er
á leiðinni, er með 3000 hl.
Búizt er við, að margir bát-
ar muni tilkynna um afla í
vikulokin, þar sem veiði hef
ur verið góð út af Langanesi
Síldveiðar norsku bátanna
við ísland hófust viku fyrr
en í fyrra, og það lofar góðu
um vertíðina í ár.
AUs hefur verið tilkynnt
um 61 bát, sem eiga að veiða
og landa aflanum í Noregi,
en 58 bátar eiga að skila
aflanum um borð í móður-
skip á miðunum.
Alls hafa verið leigð 20
flutningaskip til flutninga á
síld til norsku vejrksmiðj^
anna.
Frffttir frá Bergen hermdu
í kvöld, að síldveiðin við ís
land væri i fullum gangi
og allt benti til þess, að hún
yrði mikil.
Skeyti barst frá rannsóknar
skipinu Anna G. kL 5 e. ísl.
tíma og segir þar, að margir
bátar hafi fenglð góðan afla
undanfarinn sólarhring, allt
upp í 2000 hl.
50% frá grundvallartölu þeirri
| (28088), sem okkur er gert að ná.
I Viðhorf almennings til keppn-
innar hefur verið ágætt. Sund-
'iðkanir hafa aukist og þátttakan í
keppninhi fram að þessu mun betri
en hún var 1960. í Reykjavík hafa
þegar synt 200 metrana um 7000
borgarar en þar syntu 1954 rúm-
lega 16 þúsund. Á Akureyri hafa
'i þegar synt 11% íbúanna og í Vest-
mannaeyjum um helmingur þess
fjölda, sem syntu 1960, en þá
syntu fleiri 200 m. í nokkurri ann-
I arri Norrænni sundkeppni.
Keppni hefur verið komið á
Imilli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar
| og Akureyrar, Selfoss og Húsa-
víkur, Akraness og Keflavíkur. Ým
ist er keppt um farandgripi eða
verðlaun, sem fyrirtæki hafa gefið.
Á Selfossi keppa íbúarnir inn-
byrðis og í Reykjavík er í undir-
búningi keppni milli borgarhluta.
Nú þegar allir sundstaðir verða
opnir til afnota er vonandi að íbú-
ar í næsta nágrenni við þá noti
sem fyrst tækifærið til þess að
iðka sund og synda 200 metrana,
því að sumir þessara sundstaða
eru aðeins opnir i 3—5 vikur.
Haldi sú góða þátttaka áfram,
sem hefur verið til þessa, munu
auðveldlega nást 42 þús. þátttak-
Frh. á 14. síðu.
Ifrú Keeler, af sér embætti her-
málaráðherra í síðustu viku, efti»
' að hafa lýst því yfir, að hann
, hefði logið að Neðri múlstofunni,
! er hann áður sagði, að hann hefði
ekkert samneyti haft við fyrir-
sætuna lauslátu.
★ Þessi nýja rás atburða í Pro-
fumo-málinu hefur vakið mikla
athygli í London. Eddowes lög-
fræðingur, sem var lögfræðingur
ungfrú Keelers í sambandi við
banatilræði við hana, segir í bréfi
lil Macmillan forsætisráðherra,
að hann hafi fengið að vita um
ftjósnatilraun Ivanovs, er hann
yfirheyrði ungfrú Keeler og hann
hefði þegar í stað aðvarað örygg-
isþjónustuna.
Ungfrú Keeler hafði sagt, að Iv-
anov hefði beðið hana um að út-
vega upplýsingar um sendingu
kjarnorkuvopna til Vestur-Þýzka
lands. Hún heldur því eindregið
fram, að hún hafi ekki útvegað
þessar upplýsingar.
★ Sagt var af opinberri hálfu í
London í kvöld, að staðhæfing
ar Eddowes lögfræðings væru
rannsakaðar rækilega og menn
teldu,að þær fælu ekkert nýtt í sér
fram yfir það, sem menn hefðu
þegar fengið vitneskju um annars
staðar frá.
í London hafa menn annars
Framhald á 15. síðu.
Hjörtur Gísla-
son jarðsung-
inn á Akureyri
í GÆR var Hjörtur Gíslason á Ak-
ureyri jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju. Síra Birgir Snæbjörnsson
jarðsöng að viðstöddu fjölmenni.
Karlakórinn Geysir söng við at-
höfnina, en eins og kunnugt er
var Iljörtur þar áhugasamur fé-
lagi. Iljörtur Gíslason var kunnur
hagyrðingur og vinsæll hjá öll-
um þeim, sem þekktu hann. Og
yngstu lesendurnir, börnin, kunnu
honum sérstakar þakkir fyrir hin-
ar vinsælu barnabækur hans uiu
Salomon svarta og þá félaga.
j Það er því skarð fyrir skyldi við
fráfall Iljartar Gíslasonar.
NORRÆNA BLAÐAMANNA-
NÁMSKEIÐINU LOKIÐ
iMmmuwmvtuwuMMHM
NORRÆNA blaðamannanámskeið-
inu Iauk í gærkvöldi með því, að
þátttakendur sátu boð Gylfa Þ.
Gíslasonar, menntamálaráðherra,
í ráðherrabústaðnum. Láta hinir
erlendu gestir hið bezta af dvöl
sinni hér. enda hafa þeir víða far-
ið og margt skoðað á þeirri viku,
sem námskeiðið hefur staðið.
Þeir hafa farið í ferðalög um
nágrenni Reykjavíkur og kynnzt
því markverðasta þar. Þeir fóru í
j boði bæjarstjórnar Akraness í
' ferð um Borgarfjörð og Akraness-
bæ, fóru á skak á leiðinni upp eft-
ir og skoðuðu Sementsverksmiðj-
una og snæddu kvöldverð þar.
Þeir hafa skoðað fiskiðjuver og
kynnzt starfsemi Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna og þeir hafa
farið flugferð yfir landið.
í gær áttu blaðamennirnir að
rpestu leyti frí, en síðdegis fóru
þeir í heimsókn til forseta íslands,
Ásgeirs Ásgeirssonar, að Bessa-
stöðum. áður en þeir sátu veizlu
menntamálaráðherra.
Þeir fara heimleiðis í dag.
ALÞYÐUBLADI3 -
'jní 1963 3