Alþýðublaðið - 19.07.1963, Side 10
Atvinnumennska
Floyd Patterson er mjög hugsi um þcssar mundir.
„Þetta verður
auðvelt", segir
Sonny Liston
Las Vegas — (AP)
ÁHUGI fyrir keppni þeirra Lis-
ton og Patterson um heimsmeist-
aratitilinn í þungavigt, fer stöð-
ugt vaxandi. Keppnin fer fram að-
faranótt 23. júlí nk. kl. 2.30.
Á þriðjudag æfði Liston af miklu
kappi og hann virðist vera í mjög
góðri æfingu. Daginn fyrir barðist
hapn fullar 13 lotur án hlés. Sér-
fræðingar, sem fyígdust með æf-
ingunni segja, að heimsmeistar-
inn sé að nálgast það form, sem
hann var í, er hann sigraði Pat-
terson.
iiiston leggur mikla áherzlu á
hraðann, virðist hinn rólegasti og
hefiir engar áhyggjur af væntan-
legri viðureign. Hann notar æf-
ingafélaga sína nánast sem sand-
sekki.
.Patterson er einnig mjög vel
undirbúinn. Þegar Liston æfði á
mánudaginn tók Patterson sér frí
og. slappaði af. Hann segist ekki
vilja hætta á að komast í ofæfingu
Heimsmeistarinn fyrrverandi
dvelur mikið einn og tekur vænt-
anlega viðureign alvarlega, alveg
eins og þegar hann sigraði Inge-
mar 1961.
Liston er mjög léttlyndur fyrir
keppnina og sagði í viðtali við
fréttamenn snemma í vikunni, að
líta mætti á keppni þessa sem
Framh. á 11. rtðu
FYRIRFRAM var reiknað með
öruggum sigri Norðurlanda í
keppninni gegn Balkanríkjun-
um, sem lauk á Olympíuleik-
vanginum í Helsingfors f fyrra
kvöld. Ekki var þó rciknað með
eins miklum mun og raun varð
á, 265.5 stig gegn 171.5 eða 94
stiga mun.Það er greinilegt, að
keppni sem þessi á litla fram-
tíð fyrir sér.
íslendingar áttu aðeins einn
keppanda á Olympíuleikvang-
inum á þriðjudag og miðviku-
dag. Valbjörn Þorláksson, sem
keppti í tugþraut og stóð sig
með ágætum, varð annar með
6909 stig. Fyrir keppnina var
Valbirni spáð fjórða til fimmta
sæti af sérfræðingi sænska
íþróttablaðsins, en hann koll-
varpaði þeim hlægilega spá-
dómi myndarlega.
Þessi ágæti árangur Val-
bjarnar sýnir, að fslenzkir
frjálsíþróttamenn ná oftast
betri árangri f keppni erlend-
is, sérstaklega toppmenn okk-
ar, sem ekki fá nægilega keppni
hér heima.
Rétt áður en tugþrautar-
keppnin hófst gerði úrliellis-
rigningu og það hafði reyndar
rignt í vikunni áður og braut-
ir voru því þungar í 100 m. hl.
Sennilega hefur það haft þau
áhrif að Valbjörn náði ekki
betri tima í 100 m., en 11,1 sek.
í stað 11,3 er hefði nægt til þess
að hann hefði fengið yfir 7000
stig. Vonandi kemur það síðar.
V
Næsta stórátak frjálsíþrótta
manna okkar er Norðurlanda-
mótið' í Gautaborg um mánaða-
mótin og keppnin við Vestur-
Noreg í Álasundi 6. og 7.
ágúst. Stjóm FRÍ hefur ákveð-
ið að senda 7 keppendur á
Noröurlandamótið, sex karla og
eina konu. Valdir voru sigur-
vegararnir í landskeppninni
gegn Dönum. Jón Þ. Ólafsson,
Kristleifur Guðbjörnsson, Val-
bjöm Þorláksson og Úlfar
Teitsson. Auk þess voru vald-
ir tveir af okkar efnilegustu
yngri mönnum og þeim gefið
tækifæri til að reyna sig á
stórmóti, það eru þeir Kjartan
Guðjónsson og Slcafti Þor-
grímsson. Við teljum þetta
rétta stefnu hjá FRÍ. — Stúlk-
an ,sem valin var, Sigrún Sæ-
mundsdóttir úr Þingeyjarsýslu,
en hún hefur unnið bezta afrek
kvenna hér á landi í sumar, er
hún stökk 1.47 m. í hástökki
nýlega.
Það verður þungur róðurinn
fyrir íslenzku keppendurna á
NM og sennilega verður aðeins
einn, sem fær verðlaun, Val-
björn Þorláksson í tugþraut.
Jón Þ. og Kristleifur hafa góða
möguleika á að verða meðal
sex beztu í hástökki og hindr-
unarhlaupi, en þeir verða að
bæta árangur sinn verulega,
til að komast á verðlaunapall-
inn.
Keppni íslands og V.Noregs
í Álasundi verður vafalaust
skemmtileg og afrek liðanna
eru ótrúlega jöfn, Norðmanna
þó helduf betri. Við munum
ræða nánar um þá keppni síð-
ar. — Ö.
WWWiWtWtMiMmiMiMIWitWWWWitWWyMWtlHWItttWWWWmtWWWtWWWMW
10 19- Júlf 1963 — ALÞtOUBLAÐIÐ
Ritstjéri: ÖRN EIÐSS0N
i Danmdrkii?
EITT ELZTA knattspyrnufélag
Danmcrkur, Boldklubben Frem,
Kaupmannahöfn styður nú ein-
dregið, að atvinnumennsku verði
komið á f danskri knattspyrnu. —
Frem átti árum saman eitt bezta
knattspyrnulið Danmerkur.
í félagsblaði Frem skrifar rit-
stjórinn, Bernhard Nielsen, grein
um danska knattspyrnu og er
hreinskilinn. Ritstjórinn segir, að
það verði að hefja greiðslur til
danskra knattspyrnumanna, ef
dönsk knattspyrna eigi ekki að
deyja út. Hann stingur upp á því,
að hverjum leikmanna verði
greiddar danskar krónur 75 fyrir
hvern unnin leik, 20 kr. fyrir jafn-
tefli og 5 kr. fyrir hverja æfingu.
— Gjörið svo vel, boltinn er til-
búinn. Þeir eldri hrista að sjálf-
sögðu höfuðið, þar sem áhuga-
mennskan er að syngja sitt síð-
asta. Þeir segja að það sé „hobby”
að leika knattspyrnu. En að sjá um
I. deildarkeppni í Danmörku er
orðið fyrirtæki, skrifar Nielsen.
Nielsen heldur því fram, að
knattspyrnan hafi aUt að vinna og
engu að tapa.
—■ Allir efnilegir knattspyrnu-
menn í litlu félögunum út á landi
mundu fá sinn möguleika. Þeir
verða eftirsóttir af stærri félög
unum til gagns fyrir landsliöið og
danska knattspyrnusambandið,
segir Nielsen að lokum.
stuttu máli
SOVEZK boðhlaupssveit kvenna
hefur sett heimsmet í 4x200 m.
boðhlaupi, hljóp á 1:35.1 mín., sem
gefur 23.8 sek. á „mann”.
SPANVERJAR sigruðu Dani í
frjálsum íþróttum í Madrid með
118 gegn 90. Orla Band setti
danskt mct í sleggjukasti með
58.97 m. og Erik Madsen sigraði í
100 m. hlaupi á 10.7 sek.
í SEX-landakeppni V.-Þ.jóðverja,
Frakka, Hollendinga, Svisslend-
inga, ítala og Belgíumanna var
háð hérstök keppni i tugþraut. —
Keppni þessi fór fram í Enschede
og lauk með óvæntum sigri Hol-
lendingsins Eef Kamerbeek, sem
hlaut 7364 stig. (11,5 - 6.99 - 14.74
- 1.83 -,50.6 - 14.8 - 46.20 - 2.80 -
61.47 - 4:54.6.
Annar varð Walde, V-Þ. 7085 st.
þrið'Ji Holdorf, V-Þ, 7059, fjórði
Sar, Ítalíu, 6994 stig, fimmti Heise,
V-Þ, 6908 og sjötti Duttveiler,
Sviss, 6268 st.
★
BOLCHOV, Sovét sigraði í há-
stökki í Gorki, stökk 2.15 m. So-
kolov sigraði í 3000 m. hindrunar-
hlaupi á 8:33,2 min. og Kriunov í
400 m. grindahl. á 51.7.
RAGNAR JONSSON - FH
HANDBOLTI
MEISTARAMÓT karla og kvenna
í handknattleik utanhúss fer að
þessu sinni fram á Hörðuvöllum
í Hafnarfirði og hefst á morgun
kl. 3.30. AIls senda fimm félög
flokk til keppni bæði í karla og
kvennaflokki.
Á morgun leika í karlaflokki
KR—FH, í kvennaflokki Þróttur—•
FH og í karlaflokki Ármann—ÍR.
Á sunnudag hefst keppnin kl. 3
og þá leika Breiðablik og Víking-
ur í kvennaflokki og KR—Vik-
ingur og FH—Ármann í karla-
flokki.
Liðin, sem taka þátt í karla-
flokki að þessu sinni eru öll í
góðri æfingu, en það vekur at-
hygli, að íslandsmeistarar Fram
taka ekki þátt.
Keppnin getur einnig orðið
skemmtileg í kvennaflokki, en þar
; keppa FH, Víkingur, Valur, Þrótt
ur og Breiðablik.
Núverandi íslandsmeistarar í
handknattleik karla og kvenna
er FH.
£*