Alþýðublaðið - 19.07.1963, Blaðsíða 16
HÆTTULEGT STARF
SLÖKKVILIÐSINS
Verja sig
sprengingum
Slökkviliðsmenn unnu
hættulegt starf við ísaga í
gærkvöldi. í fyrstu komust
þeir hvergi nálægt húsinu,
og urðu að skýla sér á bak
við veggi, bíla og annað er
tiftækt var. Þeir voru þó
allra manna næst eldinum,
og a.m.k. einu sinni munaði
litlu að illa færi er sundur-
tættur gaskútur féli rétt hjá
hóp slökkviliðsmanna.
44. árg. — Föstudagur 19. jálí 1963 — 155. tbl.
Leituðu óttasiegnir
að ættingjunum
Seint í nótt voru íbúar næstu i út glerbrotunum og reyna að setja
iiúsa við ísaga að koma heim till eitthvað í gluggana. Þegar spreng-
«ín Margir biðu þó morgunsins,! ingarnar byrjuðu, var allt rafmagn
®g sváfu hjá ættingjum eða vin-1 tekið af hverfinu, en það var að
arn. Menn byrjuðu á því að sópa komast í lag um kl. tvö.
Þó kom þarna nokkur hópur
fólks til að líta eftir eða heim-
sækja og hjálpa vinafólki, sem bjó
í þeim húsum, sem verst urðu úti.
Einum hjónum mætti blaðamað-
ur Alþýðublaðsins, en þau voru að
leita að móður eiginkonunnar, se n
hafði búið ein í „blokkinni“ v.ð
Grettisgötu, sem verst varð úti.
Höfðu þau leitað að gömlu konunni
víða um bæ, en ekki fundið hana.
Bakarar
semja
Bakarasveinafélag íslands
eg Landssamband íslenzkra
bskarameistara hafa samið
un> f.5% kauphækkun bak-
ara. Gildir þessi samningur
frá og með 12. júlí til 15.
október uæstkomandi.
Skömmu eftir að mestu 6pr?ág-
ingarnar urðu, komu nokkrir ætt-
irgjar þeirra, sem í verksmiðjunni
unnu, og voru nokkrir þeirra viti
sínu fjær af ótta. Vegna ringulreið
arinnar var uþphaflega ekkert
hægt að segja með vissu um ein-
staka menn, sem höfðu verið ^ð
störfum í ísaga,- Eins og segir firá
á fyrstu síðu, voru tveir rnenu lok-
aðir inni í súrefnisgerðinni, en
þeim varð ekkert meint af dvöl-
innl þar, nema hvað taugarnar
komust úr lagi.
f alla nótt var lögregluvörður
um húsin, sem mannlaus voru og
errgum hleypt inn í þau nema í-
búunum sjálfum.
Samkvæmt uppíýsingum frá
ítlpkkviliðþstjóra kom kallið til
Slökkviliðsins kl. 11.15. Eftir það
hófust strax sprengingar og linnti
þá ekki símahringingum frá fólki
í nágrenni eldsins. Maðurinn, sem
fyrstur varð eldsins var, var Jón
Þorvarðarson, einn af starfs-
mönnum verksmiðjnnnar.
Kom hann til mannanna, sem
voru að vinna í súrefnisgerðlnni,
hringdi á slökkviliðið og hvarf svo.
Seinna náðist til hans og gaf hann
rannsóknarlögreglunni skýrslu um
eldsupptökin. Tveir menn voru yið
vinnu í súrefnisgerðinni, og tóku
þeir þegar að stöðva allar vélar,
en að því búnu, áttu þeir einskis
annars úrkostar en að bíða, því
að þeir komust ekki út. Varð bið,
þeirra löng og allskelfileg, þvi að
þeir losnuðu ekki úr klefanuin
fyrr en klukkan var nærfellt hálf
tvö, en allan tímann glumdu
sprengingar og eldhafið geysaði
að kalla fast við hliðina á þeini.
Slökkviliðsstjóri kvaðst hafa kal.l
að út allt síökkviliðið. Einnig
kvaðst hann hafa látið koma með
alla slökkvibíla er til náðist, líka
af flugvellinum. Um kl. hálf þrjú
voru allir enn úti og naumast far-
ið að fara inn fyrir girðinguna á
lóð vtjrksmiðjunpair.
Slökkviliðsstjóri kvað slökkvi-
liðsmenn hafa unnið í nokkurri
hættu við að reyna að halda eltí-
inum í skefjum, meðan mest vnr
um sprengingar, en þess hafði
verið gætt gaumgæfilega að þeir
væru í vari, skýldu sér á bak við
veggi og aunað þvílíkt. Þó kvað
hann eitt sinn brot úr sprungn-
um gaskút hafa skoUið niður mitt
á milli slökkviliðsmanna; og- þá
vitanlega ekki mátt neinu muna,
að slys yröi.
Brot úr sprungnum kútum þeytt
ust langar leiðir, stór brot allt
yfir á Snorrabraut og ,ollu þar
skemmdum á gluggum. Kvað
slökkviliðsstjóri viðbúið, að brot
hefðu þeytzt nokkur hundruð m.
þótt ekki yrði til neinna vand-
ræða í slíkri fjarlægð frá eldinum.
Alþýðublaðið átti tal við Harald
Haraldsson, járnsmíðameistara 1
Stálvinnslunni og innti hann eftir
því hver áhrif bruninn é ísaga
hefði á stáliðnaðinn. Kvað hann
eyðileggingu verksmiðjunnar
hljóta að hafa mikil óþæglndi í
för með sér, mundi valda miklum
töfum, enda þótt ekki leiði til
neinnar stöðvunar. Suða er nú
mikið framkvæmd með rafmagni
en gas almennt notað til þess að
skera stál. Þó er líka hægt að
skera stál með fljótandi gasi.
. Haraldur taldi, að ekki mundi
taka langan tima, unz mf verk-
smiðja tæki til starfa.
Síðustu fréttir:
Fréttamaður blaðsins kom á
brunastaðinn klukkan að ganga
fimm í morgun, fékk staðfest
bæði hjá lögfegluþjónum og bruna
vörðum, að ekki væri nokkur vafi
talinn á því, hvernig eldurinn í
ísaga hefði komið upp.
Gjörsamlega ókleift reyndist
þó að fá nokkrar uppfýsingar um
það efni. Telja verður sennilegast
að mistök, líklega einhvers konar
tæknileg mistök, hafi þarna komið
til.
Klukkan að ganga fimm í morg-
un voru brunaverðir enn að
sprauta á rústirnar, og var cnri
talin hætta á að gaskútar þar
gætu sprungið.
Lögregluvörður verður þarna í
allan dag, eins og var í nótt, því
óvarin verðmæti eru þarna mikil
bæði í íbúðum og verzlurium.
Múrarar ræða
samninga
Samninganefndir Mdraraféla,',"-
ins og atvinnurekenda voru á
fundi í fyrrakvöld. SamniagaaðiUr
ræddust við í tvær kfnkkustundir,
en þá Iauk fundinum.
Múrarafélagið mun fjalla um
málið á félagsfundi á mánudags-
kvöld og verður sá fundur látinn
taka endanlega ákvörðun utn
samningana.
Maður
týnist
MAÐUR um sextugt hvarf
frá tjaldi félaga sinna á
Grímstunguheiði í Húna-
vatnssýslu £ fyrrakvöld og
hefur ekki til lians spurzt, er
síðast fréttist. Þeir félagar
voru þrír saman og höfðu
slegið upp tjaldi. Reikaði
einn þeirra frá tjaldinu og
hvarf í þokuna, en hún hef
ur verið mikil á þessum slóð
nm.
Strax og þokunni léttir
mun Björn Pálsson fljúga á
staðinri til leitar, verði mað
urinn ekki fundinn.