Alþýðublaðið - 31.07.1963, Page 4

Alþýðublaðið - 31.07.1963, Page 4
UMFERÐARVIKA ALÞÝDUBLAÐSINS í DAG er ætlunin að ræða hér nokkuð um framúrakstur og mætingar. í 47. grein umferðarlaganna eru ákvæði um mætingar og framúrakstur. í upphafi þess- arar greinar segir svo: „'Þeg- ar ökutæki mætast skulu stjórn emiur þeirra aka út að vinstri brún akbrautar í tæka tíð og draga úr hraða, ef nauðsyn krefur. Ef hindrun er á vegi, skal ökumaður er ekur á þeim vegar hehningi, þar sem hún er, nema staöar, ef nauðsyn- legt er”. Ef ökutæki mætast, þar sem vegur er svo mjór, að hvorugt kemst fram hjá öðru, áliættu- laust, skal sá ökumaður, sem betur fær því við komið aka út af vegi eða aftur á bak, Það er eftirtektarvert úti á vegum liversu ilia sumir öku- menn víkja. Segja má með nokkruin sanni, að sumir víki alls ekki. Verstir í þessum efn- um eru að sjálfsögðu „sunnu- dagabílstjórarnir” svoköliuðu. Þeir vita sjaidnast hversu breið ur bill þeirra er, og því síður hversu utarlega á kantinn þeim er óhætt að fara. Þeir ökumenn, sem ekki finna fullkomlega til hreiddar ökutækis síns, ættu að gera sér það að reglu, aö stanza eins utarlega á kanti og þeir þora, cf þeir eru í vafa um hvort vegurinn er nógu breið- ur til að mögulegt sé að mæt- ast. Skýrt er tekið fram, að sé hindrun á vegi, skuli sá stöðva, sem hefur hindrunina á sínum vegarkanti. Þetta mun öllum ljóst, en ákvæðin í lögunum eru ljós og taka af allan vafa. Um framúrakstur segir í næstu málsgreiu: „Ökumenn skulu hleypa fram fyrir sig á hægri hönd þeim sem fram fyrir vilja. Eigi má aka fram úr ökulæki, nema unnt sé án áhættu eð'a óþæginda fyrir aðra umferð, enda sé útsýn yfir ak- braut góð. Eigi má aka framúr ökutæki á vegamótum, beygj- um, ef þær eru brattar eða þröngar, né við eða á afmörk- uðum brautum fyrir gangandi fólk”. Hér eru skýr ákvæði um að hleypa skuli framúr þeim er það vilja. Sumir ökumenn virð- ast haldnir barnalegu stolti sem kemur fram í því, að þeir vilja ekki lileypa neinum fram úr. Það er allt annað en skemmtilegt að þurfa að dúsa í rykmekki frá hægfara bifreið, einungis vegna þess að öku- maður hennar er haldinn þessu bjánalega stolti. Að aka ekki framúr á vega- mótum er slík grundvallar- regla, að ekki ætti að þurfa að fara mörgum orðum um hana. Samt eru þeir ótrúlega margir, sem taka allskonar „sjensa” í sambandi við þetta. Slíkir menn læra tæpfega af öðru. en reynslunni, en hætt er við, að sú reynsla gæti orðið þeim æði dýrkeypt. Síðar segir í 47. grein: „Aka skal fram fyrir ökutæki liægra megin við það. Skal sá sem framhjá ætlar, gefa þeim sem á undan fer, merki, þannig að hann megi vita um þá ætlau. Sá, sem á undan er, skal þá, er hann verður var við þann, sem á eftir kemur, vlkja til vinstri og draga úr liraöa, eða nema staðar, þannig að áhættulaust sé að aka framhjá. Sá sem fram fyrir liefur ekið, má ekki aka að vinstri brún akbrautar. fyrr en hann er kominn svo langt að hinu farartækinu geti ekki stafað hætta eða veruleg óþæg- indi af”. Þegar ökumaður hefur geng- ið úr skugga um að öll skilyrði leyfi framúrakstur, ber honum að gefa þeim, sem á undan fer merki. Það mundi þá annað- hvort verða flaut eða ljósblikk. Það er oft þægilegra að nota ljósin heldur en flautuna, sér- staklega þegar um er að ræða stóra og háværa bíla. Sá sem fyrir framan er ekur síðan út á vegarbrún, þegar hann veit um fyrirætlan hins, eða nem- ur staðar, ef þess gerist Það er rnjög góð regla, sem stjórar ættu að nota, þegar hver . ætlar framúr þeim, að gefa stefnuljós til vinstri, þeg- ar þeir eru tilbúnir að víkja. Verið getur að þeir sjái bíl koma á móti, sem sá aftari sér ekki, og bíða þeir þá að sjálf- sögðu meö að víkja unz öll skilyrði til framúraksturs eru fyrir hendi. í þessari grein segir enn- fremur, að aka megi vinstra megin fram úr ökutæki við vegamót, ef ökumaður þess hefur greinilega gefið merki um að hann hyggist aka til hægri. Þar sem akbraut er skipt í akreinar má aka vinstra megin fram úr ökutæki, en þá ber að gæta sérstakrar varúðar. Að lokum segir, að aka megi fram hjá vegagerðartæki á þann hátt, sem heppilegastur er mið- að við aðstæður, en gæta skuli sérstakrar varúðar. Ávallt ber að gæta ýtrustu varúðar við framúrakstur, og aka aldrei framúr bifreið, nema maður sé þess fullviss, að ekki sé önnur að koma á móti, eða nein önnur hætta fyrir hendi. Það er oft erfiít að gizka á liraða bifreiðar sem kemur á móti, og betra er að bíða, en tefla á tvísýnu. Manni liggur aldrei það mikið á, að réttlæt- anlegt sé að stofna eigin lífi og annarra í hættu. Það er aðalsmerki góðs öku- manns að víkja vel, og hleypa öllum fram fyrir sig, sem fram fyrir vilja. Að lokum: Freistið þess aldr- ei að fara fram úr bifreið, ef önnur er að reyna að komast fram úr bifreið yðar. 4 31. júlí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.