Alþýðublaðið - 17.08.1963, Blaðsíða 1
44. árg. — Laugardagur 17. ágúst 1963 — 174. tbl.
87 bankar og
sparisjódir
BANKAR og: sparisjóðir í landinu
eru nú 87 talsins að bankaútibú-
um meötöldum. í árslok 1961 voru
sparisjóð'ir orðið að bankaútibúum
bankaútibú 22, en síðan hafa tveir
sparisjóðir orðið af bankaútibúum
og einn þeirra samþykktur sem
banki.
Elzti starfandi sparisjóður á land
inu er Sparisjóður Siglufjarðar,
sem stofnaður var 1873 en fyrsti
sparisjóður, sem starfaði var
„Sparisjóður Múlasýslna á Seyð-
isfirði", sem stofnaður var fimm
árum fyrr eða 1868. Hann starfaði
þó aðeins í 2 ár.
20 TEKNIR
ERÁ ÁRAMÓTUM
IIM 20 BÁTAR hafa verið
teknir frá síðustu áramót-
um fyrir ólöglegar fiskveið-
ar. Flestir hafa þetta verið
bátar með leyfi til liumar-
veiða, en nokkrir togbátar
hafa verið í hópnum. Margir
bátanna eru frá Vestmanna-
eyjum, og sumir þeirra fram
ið ítrekuð brot. Flestir bát-
anna eru teknir undan Port-
landi, en einn var þó tekinn í
fyrradag við Reykjanes.
í árslok 1961 störfuðu 13 spari-
sjóðir í kaupstöðum, en kaup-
staðirnir eru einnig 13. Hins veg-
ar störfuðu þá aðeins sparisjóðir í
11 þeirra en á Akureyri og Húsa-
vík voru þá starfandi tveir spari-
sjóðir á hvorum stað 1. janúar sl.
hætti Sparisjóður Húsavíkur störf-
um og stofnað var í stað hans
bankaútibú Landsbankans. Á
sama tíma hætti Sparisjóður Húna
vatnssýslu á Blönduósi störfum og
stofnað var í hans stað bankaúti-
bú Búnaðarbankans. Þá hefur ver-
ið samþykkt að Samvinnuspari-
sjóðurinn í Reykjavík verði Sam-
vinnubanki.
Sparisjóðimir dreifast svo um
iandið, að flestir þeirra eru á
Norðurlandi eystra og á Vest-
fjörðum en fáir þeirra eru á
Reykjanesi, Austurlandi og Suð-
urlandi.
Athugun leiðir í Ijós, að 2/3
hlutar sparifjár landsmanna eru
hjá bönkunum en rúmlega 1/5
hluti hjá sparisjóðum. í árslok
1961 nam sparifé í bönkum 2.219.6
millj. eða 67.9% en í sparisjóðum
74 .7 millj. eða 22.9%. í árslok
1959 námu spariinnlán sparisjóð-
anna 509.5 millj. og í árslok 1960
námu þau 586.2 millj. Aukning
sparifjárins árið 1961 nam hjá
sparisjóðunum í heild 160.5 millj.
eða 27.4%. Hjá bönkunum var
aukning sparifjárinnstæðna á
sama tíma 25.4%.
Upplýsingar þessar eru í Fjár-
málatíðindum.
ria s
is
Ilitinn í París' var 35
gráður á celsrus, þegar
María Guðniuncsdóttir
stilfti sér upp á götu úti
til að láta mynda sig í eiu-
um forláta pels af villiketti.
Tízkuhúsin hugsa þó ekki
uin sumarhitann heldur :u t.
að spáð er köldum vetri í
Frakklandi, og þess vegna
hefur Jacques Laurent, sá
sem teiRnaði lo'ðkápuna,
talið rétt að búa sig undir
sölu á tízkufötum fyrir kulda
Ekki fylgdi sögunni, hvað
flíkin á að kosta.
Kina undis býr
aras a
Indlúnd
NYJU DEIHI 16.8 (NTB-Reut-
-er). Nehru forsætisráðt erra sagði
á þingi í dag, að Kínverjar byggju
sig undir árásaraðgerði- á landa-
mærum Indlands í norðri. Hann
lagði áherzlu á, að Indverjar yrðu
að auka varnarviðbúm.ð sinn.
Nehru sagði, að herská afstaða
Kínverja hefði birzt í ýmsum
myndum að undanförnu. Hún hefði
Framh. á 14. síðp
LESTARRÁNIÐ MIKLA:
A
London, 16. ágúst
(NTB—Reuter)
MAÐUR og kona, sem voru á
gönguferð í fallegu skóglendi suð
MARGIR BÁTAR HÆTTIR
VEIOUM FYRIR AUSIAN
ERU A LEIÐINNI TIL VESTMANNAEYJA
Töluverð síldveiði var sl. sólar-
hring suðaustur af Hvalbak. Vit-
að var um afla 50 skipa með sam-
táls 29.380 mál og tunnur. Veð'ur
á miðunum var gott. Eftirtalin
skip fengu 500 mál og tunnur og
þar yfir:
Jón á stapa 1000, Skagaröst
750, Þórkatla 900, Fram 1300,
Heimir 500, Skipaskagi 600, Þor-
björn 750, Hamravik 600, Lómur
900, Sigurpáll 1000, Einar Hálf-
dáns 550, Sigurður SI 500, Akurey
500, Mummi II. 600, Sigurður
Bjarnason 800, Árni Geir 600,
Gullver 500, Mummi 700, Manni
750, Tjaldur 650, Oddgeir 550,
Hoffell 900, Seley 1000, Sæfaxi
95Q, Stiígandi 700, Stéingrímur
trölli 500, Sigrún AK 500, Guð-
björg ÍS 550, Sólrún 1000, Bára
800 og Vonin 850.
Reyðarfirði 16. ágúst
Mikil síld hefur borizt iiingað
og hefur verksmiðjan ekki haft
við að bræða. Síldin er blönduð
millisíld, mjög lítið af stórsíld.
Hefur síldin því að mestu farið í
bræðslu, aðeing slatti úr tveimur
bátum farið í salt.
Veðrið hér er gott, logn og blíða
en sólarlaust. Hér er búið að salia
í 11 til 12 þús. tunnur á þremur
söltunarstöðvum. Síldarbræðslan
i hefur brætt um 30 þús. mál, en um
Framh. á 12. síðu
ur af London, fundu í dag tvo,
poka, sem í voru um 12 millj. (ísl.)
kr. í pund-seðlum. Lögreglan tel-
ur að peningarnir séu hluti fjár-
ins, sem stolið var í hinu ævin-
týralega lestarráni í síðustu viku,
þegar ókunnur fjöldi grímu-
klæddra manna hafði á brott með
sér um 300 millj. (ísl.) kr.
Maðurinn og konan, sem fiíndu
peningana i hinum fagra Redlans-
skógi um 40 km suður af London,
hringdu í lögregluna strax eftir að
þau höfð'u fundið pokana, sem
voru troðfullir af pund-seðlum.
Skammt þar frá var læst skjala
taska, sem einnig reyndist hafa að
geyma peninga.
Lögreglan skundaði á staðinn,
og með hjálp sporhunda fann hún
tösku skammt frá veginum. í tösk
unni voru einnig peningar.
Svo virtist sem töskunni hefði
verið fleygt þangað, enda hafði
ekkert verið gert til þess að fela
hana.
Leynilögreglumennirnir, sem
vinna að rannsókn málsins sögðu
á grundvelli fundarins í Redland-
skógi, að ástæða væri til að ætla,
að þrjótarnir hefðu skyndilega
orðið hræddir og losað sig við
mikinn hluta ránsfengsins.
★ MARGIR
HANDTEKNIR
Peningarnir fundust skömmu áður
en tveir menn, tvær konur og eig-
inmaður annarrar konunnar, sem
öll voru handtekin í sambandi við
ránið, fengu framlengdan gæzlu-
varðhaldsdóm.
Mennirnir eru ákæröir fyrir
þátttöku í ráninu. Þeir höfðu falið
Framhald á 3. síðu.
Ekkert nýtt í
Milwood-málinu
Ekkert nýtt • hefur gerzt í
Milwood-máíinu. Tngnrinn'
ligffrfr enn við varðskipa-
bryggjuna, og er nú allur
orðinn dökkur af ryði. Ekk
ert hefur heyrzt frá eigend-
anum, John Wood, en næst
liggur fyrir, að Smith mæti
hér fyrir rétti annan septem-
ber n.k. Er þó talið óliklegt
að gamli maðurinn verði við
þeim tilmæíum.