Alþýðublaðið - 17.08.1963, Blaðsíða 7
fa ft'
HIN SfÐAN
r
D ER LÁTINN
- og vinsrnir syrgja hann
LEIÐINDAMÁLI or nú lokið.
Brezki læknirinn, dr. Stephen
Ward, aðalmaðurinn í svonefndu
„Profumo“ eða ‘,,KeeIer“ máli er
nú látinn. Hann batt enda á líf
sitt með því að taka inn of stór-
an skammt af svefnlyfjum. Hann
lézt á sjúkrahúsinu St. Stephens
Hospital í Fulham í Englandi
föstudaginn annan ágúst eftir að
læknar höfðu gert árangurslausar
tilraunir til að bjarga lífi hans.
Bróðir hans, Peter, sat á rúm-
stokki hins ógæfusama læknis og
listamanns, er hann gaf frá sér
síðustu andvörpin.
Dómarnir um menn breytast oft
að þeim látnum. Svo var og einn
ig um dr. Ward. Enginn hefur
haldið því fram að dr. Ward hafi í
rauninni verið vondur maður en
almenningsálitið og blöðin í Bret
landi álitu hann siðspilltan. Við
andlát hans hefur þetta breytzt og
menn fella almennt ekki þann dóm
yfir hinum látna, að hann hafi
verið siðspilltur heldur „full
frjálslyndur."
Dr. Ward fannst rænulaus í í-
búð Mr. Noel Howard Jones mið-
vikudaginn 31. júlí eftir að hafa
tekið inn stóran skammt af svefn-
lyfjum. í íbúð þessa vinar síns
skildi hann eftir bréf, þar sem
hann gerir grein fyrir ásetningi
sínum um sjálfsmorð og réttlæt-
ir það. Þar segir svo meðal ann-
ars:
„Mér þykir fyrir því að þurfa
að grípa til þessa óyndisúrræðis.
En ég neyðist til þess vegna þess
að ég held þetta ekki lengur út
— að standa fyrir rétti dag eftir
dag og mæta forvitnum augum á
götunum. Það er ekki ótti, sem
rekur mig út í þetta heldur á-
kvörðunin um að þeir skuli ekki
ná sér niðri á mér. Ég vil ann-
ast hið síðastnefnda sjálfur. Það
stendur mér næst‘.‘
Julie Gulliver hét sú af vin-
konum dr. Wards, er síðust manna
hafði eitthvað saman við hann að
sælda. Hún var í félagsskap hans
kvöldið áður en hann tók inn
svefnlyfin. Júlía sagði, þegar hún
frétti lát dr. Wards: „Þetta kom
mér ekki á óvart. Ég vissi strax,
að hann myndi deyja."
Frá lögfræáingi Christine Keel-
er kom þessi yfirlýsing við lát
Wards: „Ungfrú Christine Keeler,
sem um þessar mundir er undir
handarjaðri lækna er mjög miður
sín vegna hins sviplega fráfalls dr.
Stephen Ward. Dr. Ward hafði
átt mikið saman við hana að sælda
og bún bar í brjósti til hans heit-
ar tilfinningar. Vegna dauða dr.
Ward hefur ungfrú Keeler hætt
við að leika aðalhlutverkið í kvik
mynd þeirri, sem áformað var að
gera um ævi hennar".
Það var vinkona Christine Keel-
er, Paula Hamilton-Marshall, sem
flutti Keeler andlátsfregn dr.
Wards. „Christine varð mjög bilt
við, sagði ungfrú Hamilton-Mar-
shall. Ég óttast eftirköstin af
því”.
Astor lávarður sagði að Ward
látnum: „Þeir sem voru svo lán-
samir að leita liðsinnis dr. Wards
munu minnast hans með óbland-
inni þakklátssemi. Minningin um
það, hve hann var ávallt fljótur
og fús til að hjálpa, mun varð-
veitast og ekki gleymast".
Að því er bezt mun vitað lét
dr. Ward ekki eftir sig neina erfð
askrá. Málverk hans og myndir,
sem munu véra mjög mikils virði,
voru því seld fyrir nokkrum dög-
um á upþboði og fengust fyrir þau
miklar fjárupphæðir.
FARKOSTUR
KENNEDYS
KENNEDY forseti hefur nú ný-
lega aukið farkost sinn um tvær
nýjar þyrilvængjur. Ráeður forset
inn þá yfir 10 þyrilvængjum,
Boeing 707 þotu og þremnr öðr-
um af líkri gerð. Auk þess hefur
hann umráð yfír rammbyggðri
sprengjuflugvél, sem notast skal
ef til styrjaldar kemur, lysti-
snekkjum tveimur og fullkomnum
járnbrautarvagni. Segið þið svo,
að Kennedy sé I vandræðum að
brcgða sér á milli bæja.
Aldrei
sofnað
SPÆNSKUR maður — Valen-
tine Medina að nafni — heldur því
fram að sér hafi aldrei komið dúr
á auga allt sitt langa lif en hann
er nú 63 ára gamall. Kveðst hann
nú leita sér áð atvinnu, sem næt
urvörður, þar eð hann muni bezt
til þess starfs fallinn.
Ærður
maður
ÞAÐ bar til tíðinda í dýragarð-
inum í Vín í Austurríki, að
maður nokkur varð skyndilega vit
stola, barði niður gesti og gerði
tilraun til að opna Ijónabúr dýra-
garðsins og hleypa villidýrunum
út. Bjargaði hann sér á hröðum
| flótta undan lögreglunni og hafð-
i ist ekki upp á honum.
Fólk safnast sainan úti fyrir St. Stephenssjúkrahúsinu og les an
látsfregn dr. Wards.
LEIKFLOKKUR Helga Skúlasonar úr Reykjavík hefur að
undanförnu ferðast um Norðurland og sýnt þar við góða aðsókn
og mikla hrifningu sjónleikinn „Hlauptu af þér hornin“. —
Myndin, sem hér birtist er úr leikför þeirra félaga og sýnir
þau Helgu Bachmann og Erling Gíslason í hlutverkum sínum.
Laugardagur 17. ágúst
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. —»
8.35 Tónleikar. — 10.10 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 Óskalög sjúklinga (Kristín Anna Þórarinsdóttir).
13.30 Úr umferðinni.
14.40 Laugardagslögin. — (15.00 Fréttir).
16.30 Veðurfregnir.
Fjör í kringum fóninn: Úlfar Sveinbjörnsson kynnir nýjustut
dans- og dægurlögin.
17.00 Fréttir. — Þetta vil ég.heyra: Helgi Hafliðason velur séi’
hljómplötur.
18.00 Söngvar í léttum tón.
18.55 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir — 19.30 Fréttir.
20.00 Skemmtiþáttur með ungu fólki (Andrés Indriðason og MarkuS
Örn Antonsson hafa umsjón með höndum).
20.50 Kátir þýzkir músikantar leika marsa, valsa, skottísa og polka.
21.15 Leikrit: „Anderson", útvarpsleikrit eftir sanmefndri sögu
Einars H. Kvarans. — Ævar R. Kvaran færði í leikritsforini
og er jafnframt leikstjóri.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög — 24.00 Dagskrárlok.
HIN SlÐAN
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 17. ágúst 1963 f.