Alþýðublaðið - 23.08.1963, Page 7

Alþýðublaðið - 23.08.1963, Page 7
HIN SlÐAN KARTÖFLUMUS: þessi litla mús, sem er nú reyndar kartöfla með músarlögun leit fyrir skömmu dagsins ljós í garðholu í Ástralíu. Fólk varð svo hrifið af þessu fyrirbæri, að það keppt- ist um að taka myndir af því, og hér er ein myndin, sem borizt hefur alla leið hingað til ís- Iands frá hinni fjarlægu Ástralíu. — Það er altítt, að kartöflur taki á sig hinar furðulegustu mynd- ir og þetta eintak er einmitt glöggt dæmi þess. 75 MILLIÓN KAFFISEKKIR Fulltrúar frá meira en 50 löndum, sem framleiða og flytja inn kaffi hafa verið á þriggja vikna fundum í London til að Blaðamanna- verkíall ÞAÐ ERU víðar blaðamanna- verkföll en hér á íslandi. í lok júií mánaðar síðastliðins var til dæmis efnt til slíks verkfalls á Hawai. Þar voru 850 menn í verk- falli í 43 daga. Þetta verkfall var það fyrsta í sinni röð á Ilawai, al- veg eins og hér á íslandi. HIN góðkunna blökkusöngkona Sarah Vaughan hefur að undan- förnu verið á ferð í Kaupmanna- höfn og skemmt í Tívolí. Hefur lmn hlotið afbragðsgóða dóma, enda ér hún skemmtikraftur á heimsmælikvarða. MISSTI ÖKULEYFI Dægurlagasöngvarinn Tommy Steele var fyrir skömmu sviptur ökuréttindum og dæmdur I fjár- sekt. Ástæðan var sú, að hann hafði verið staðinn að því að aka um götur Lundúnaborgar á 145 kílómetra hraða! semja kaffi-sáttmála um sam- ræmi á verði kaffis. Næst á eftir olíu er kaffið mik ilvægasta vara alþjóðlegra við- skipta. Það eru til dæmis 20% af öllum útflutningi Suður-Ameríku og iönd eins og Brasilía, Colomb- ia, Haiti, Guatemala og San Salvador lifa að miklu leyti á kaffiútflutningi. Kaffið hefur einn ig mikla þýðingu fyrir mörg hinna nýrri Afríkuríkja. Sl. ár var kaffiverðið það lægsta, sem það hefur verið í 13 ■ ár. í heiminum er nefnilega til meira kaffi eins og stendur en þörf er fyrir. Sérfræðingarnir segja, að til séu 73 milljónir 132 punda poka af kaffi en kaffiinn- flutningur heims nemur aðeins 46.750.000 pokum. Þar af flytja Bandaríkjamenn inn helminginn. Bandaríkin eru stærsti kaffi- innflytjandinn og kaffiverðið gegnir því miklu hlutverki í efna- hagslífi landsins. Það var því ekki sízt fyrir tilstilli Bandaríkjanna, að innan Sþ hafa á undanförnum árum gilt alþjóðlegir samningar um kaffiverð í heiminum. Full- trúar 54 landa hafa undirritað samninga þessa. Samningarnir koma jafnvægi á kaffiverðið í heiminum og ákveða það. Á ráðstefnunni í London kom það skýrt í ljós, að kaffiverðið hlýtur að hækka á næstu árum. Flej/ri vandamái kaffiiðnaðaritns bar á góma á ráðstefnu þessari, sem talin er hafa borið ríkulegan árangur, ekki einungis efnahags- lega séð heldur og frá pólitísku ejónarmiði. -SMÆLKl-SMÆLKI-SMÆLKI Veð- morð Sá fáheyrði atburður átti sér stað laust fyrir s'ðustu helgi í Aurora, Illlinois í Bandaríkjun- um, að maður nokkur var myrtur vegna veðmáls. 42 ára gamall maður, Howard Stebel, veðjaði um það við kunn- ingja sína að hann þyrði að varpa hinum 50 ára Myron Fred Hunter í Fox-fljótið. Eftir veðmálið hafði Stebel eng ar vöflur á, heldur hratt Hunter ofan í fljótið, en Hunter var þarna nærstaddur. Er ekki að orðlengja það, að Hunter lenti á rifi í ánni og lézt samstundis. AKSTUR 79 ára gamall maður á Jótlandi var á dögunum sektaður fyrir að aka of hægt. Hafði hann með hin- um hæga akstri sínum valdið því, að bílstjóri, sem ók á móti honum, hélt, að gamli maðurinn hyggðist beygja inn í næstu hliðargötu, sem hann ekki gerði. Lentu bíl- arnir af bessum sökum í árekstri. Hún: Elsku Anton, mamma vill ekki samþykkja, að við giftumst. Hún segir, að þú sért svo kven- legur. Hann (reiður): Já, svei. — Það getur svo sem vel verið, að ég sé kvenlegur í samanburði við hana. ★ ________________ Kampman, fyrrverandi forsætis- ráðherra Dana, var eitt sinn að halda ræðu á pólitískum fundi í smábæ einum á Jótlandi. í lok ræðu sinnar hvatti hann áheyrendur tif þess að gera ein- hverjar fyrirspurir. Roskin kona bað fyrst um orð- ið, en um leið hvíslaði fundarstjór inn að forsætisráðherranum: — Þessi kona er dálitið rugluð í kollinum, svo að bú skalt ekki taka það of hátíðlega, sem hún segir. Kampman skildi bað fullkomiega, og konan tók til máls: — Ég ætlaði bara að segja, að þetta var sú skvnsamlegasta ræða, sem ég hefi nokkru sinni heyrt- ★ — Ekki skil ég, hvers vegna fellibyljirnar í Kvrrahafinu eru alltaf skírðir kvennanöfnum! — Þú hlýtur að skilja það, haf- irðu nokkru sinni séð kvenmann í stórhreingerningu. ★ — Hverju svaraði pabbi, þegar þú hringdir til hans og sagðir, hon- um, að við værum trúlofuð? — Ég gat ekki gert mér grein fyrir því, hvort það var hann, sem svaraði eða hvort eldingu laust nið ur í símann! — Hvers vegna léztu ekki spaða gosann út? — Hefi ég nokkurn tíma sagt þér frá ógæfunni, sem foreldar mínir urðu fyrir í Vestmannaeyjum? -r- Nei, ég hé!t að þú værir fædtl ur á Akureyrij MISHEPPNUD GEIMSKEYTI Brezka tímaritið „Flight Inter- national" heldur því fram í greínt fyrir skömmu, að Rússar hafi sl. ár sent út í geiminn sex flug- skeyti, sem hafi farið út af braut 6inni. Telur tímaritið að flugskeytun um hafi verið stefnt tii Venus, Mars og tunglsins. „Flight International" telur, að' þessi sex flugskeyti séu ekki tal- in með þeim nitján, sem sovézka stjórnin hefur opinberlega til- kynnt, að send hafi verið á loft. DANSKA söngstjarnan Gitte Hænning er á góðri leið með að’ verða mjög vinsæl í Þýzkalandí. Hin nýja hljómplata hennar „Ich will nein cowboy als mann“ hefur hlotiff þar fádæma góffar vifftökur og selzt í 175.000 eintökum. Föstudagur 23. ágúst 8.00 12.00 13.15 13.00 15.00 18.30 19.20 20.00 20.30 20.40 21.05 21.30 22.00 22.10 22.30 23.15 8,30 Fréttir. Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. 8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfregnir). Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar). Lesin dagskrá næstu viku. „Við vinnuna": Tónleikar. Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. 16.30 Veðurfr.--- Tónl. — 17.00 Fréttir. — Endurt. tónlistarefni). Harmonikulög. — 18.50 Tilkynningar. Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir. Efsta á baugi (Björgvin Guðmundsson og Tómas Karlsson). Chaconna fyrir strengjasveit eftir Johann Páchelbel. — Kamm erhljómsveitin í Munshen leikur. Hans Stadlmair stj. Erindi: Ferð um Sognsæ (Ingólfur Kristjánsson rithöfundur). Tilbrigði og fúga eftir Brahms, um stef eftir Handel, op. 24. —- Leon Fleisher leikur á píanó. Útvarpssagan: „Ilerfjötur" eftir Dagmar Edquist; VII. (Guð- jón Guðjónsson þýðir og flytur). Fréttir og veðurfregnir. Kvöldsagan: „Dularilmur" eftir Kelley Roos; VI. (Ilalldóra Gunnarsdóttir blaðamaður þýðir og les). Menn og músík: VIII. þáttur: Schubert (Ólafur Ragnar Gríms- son). Dagskrárlok. H9N SfðAN. IÞYÐUBLAÐIÐ — 23. ágúst 1963 X

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.