19. júní - 01.02.1923, Page 1
19. JUNI
VI. árg.
Reykjavík, febrúar 1923.
8. tbl.
Ingibjörg1 H. Bjarnason.
Alþingi var sett 15. dag febrúar-
mánaðar. Setning Alþingis er orðinn
árlegur viðburður, og því eigi talinn
til þeirra atburða
er marki nýtt tíma-
bil í sögu þjóðar-
innar. En að þessu
sinni rennur þó,
frá sjónarmiði vor
kvenna, upp nýtt
tímabil, er hin
fyrsta íslenska kona
tekur sæti á þingi
þjóðarinnar. Fyrir
oss er þetta stórvið-
burður. í sögu ís-
lenskra kvenna
verður dagurinn
merkisdagur.
Starf hins fyrsta
fulltrúa kvenna á
þingi verður hið
erfiða starf braut-
ryðjandans. Þar
verður alt greiðara
fyrir þær, sem á eftir koma.
Fyrsta konan á þingi þjóðarinnar.
Vér verðum að tala i eintölu, um konu
en ekki konur. Og erum þó fullur
helmingur landsmanna. Minnumst
þess. Ekki vegna þeirra hagsmuna
kyni voru til handa, er vér kynn-
um að geta náð, ef vér værum þar
fleiri. Minnumst þess vegna hins, að
á oss hvílir fullur helmingur ábyrgðar
á afdrifum þjóðfélags vors. Minnumst
þess að vér höfum fulla skyldu til að
taka þátt í þeim
störfum, sem unnin
eru á Alþingi, þeim
störfum, sem frekar
öllu öðru eiga að
miða að því að
leggja traustan
grundvöll að fram-
tiðarhag sjálfstæðr-
ar, alfrjálsrar ís-
lenskrar þjóðar.
Ekki að eins i orði
— heldur í raun
og sannleika.
Með hlýrri sam-
úð og góðum ósk-
um fylgja hugir
fjölda kvenna um
land alt, fyrstu
konunni, er stígur
inn fyrir vébönd
Alþingis. Þau vé-
bönd, er eitt sinn voru þjóðarinnar
helgasti dómur.
Sem landskjörinn þingmaður á frk.
Ingibjörg H. Bjarnason sæti i efri
deild, og hefir verið kosin í fjárveit-
inganefnd og mentamálanefnd deild-
arinnar.
Ingibjörg H. Bjarnason.