Alþýðublaðið - 14.09.1963, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 14.09.1963, Blaðsíða 1
 - segir lögreglustjórinn Eins og kunnugt er af fréttum höfðu Samtök hernámsandstæð inga ákveðið að'halda fund fyrir framan Háskólabíó á sama tíma og Lyndon M. Johnson héldi ræ'ðn sína i kvikmyndahúsinu. Var sið' an ætlunin að afhenda varaforset anum skrifleg mótmæli. Nú heíur lögreglustjórinn í Reykjavík til kynnt samtökunum, að hann geti ekki failist á að þessi fundur verði hai'dinn fyrir framan Háskólabíó en bent á Melavöllinn sem Iausn á vandamálinu. Hér á eftir fer fréttatilkynning sem blaðinu barst í gær frá lög- reglustjóra: Timmtudaginn 12. þ.m. barst lögreglustjóraembættinu bréf frá Samtökum hernámsandstæðinga þar sem skýrt er frá því, að sendi nefnd frá samtökunum muni af- henda varaforseta Bandaríkjanna Lyndon B. Johnson, orðsendingu að Hótel Sögu kl. 18 mánudaginn 16. september. í tilefni afhending arinnar muni samtökin gangast fyrir því, að nokkúr hópur manna muni safnast saman við Háskólabíó sama dag kl. 17-18 undir borffum með áletrunum, er túlki skoðanir samtakanna. Fluttar verði í gjall arhorn stuttar tilkynningar til þess fólks, sem þarna kemur sam an. í tilefni þessa kvaddi ég í dag á minn fund forráðamenn Sam taka hernámsandstæðiuga. Var þeim skýrt frá því að aðrir aðil ar hafi þegar boðað til opinbers fundar í Háskólabíói á framan greindum tíma og lögreglan geti því ekki fallist á að útifundur verði lialdinn á umræddum stað og tíma né gjallarhorn notuð þar vegna þess að slíkt fundarhaid gæti leitt af sér truflun á umferð og raskað allsherjarreglu. Jafnframt var forráðamönnum samtakanna tjáð, að lögreglan hafi ekkert við það að athuga, þótt samtökin haldi fund á öðrum heppilegri stað. Var þeim m.a. bent á að lögreglan værj fyrir sitt leyti ekki mótfallin því, að fund ur þeirra fari fram á Melavellin um við Suðurgötu. BREYTIN6AR A FERÐAAÆTLUN VARAFORSETANS: Fer héðan strax mánudagskvöld TOLUVEKBAR breytingar varaforseta Bandarikjanna hingað hafa nú verið gerðar í sambandi við komu Lyndon B. Johnsou, til lands á mánudag. Sú er helzt að varaforsetinn fer héðan strax AN FLUTTÁ DARSVÆÐIÐ Síldveiðiflotinn mun ekki stöðvast vegna farmannadeil- unnar. Stjórn og samninga- nefnd Sjómannafélags Reykja- víkur hafa heimilað' flutninga á samtals um 2000 tonnum af fu- elolíu og dieselollu á síldar- svæðið. Með þessu hafa far- menn brugðist drengilega við og látið þjóðarhagsmuni sitja í fyrirrúmi, í kjaradeilu sinni. Þjóð'in hefur haft af'því þung- ar áhyggjur undanfarna daga, að svo kynni að fara, að sildar- veiðarnar stöðvuðust vegna far- mannavcrkfallsins. Verkfall far- manna nær til olíuflutninga- skipanna og var vitað, að síld- veiðarnar myndu stöðvast næstu daga vegna oliuskorts á Norðausturlands- og Austur- Ianshdöfnum. Og enginn veit, hve lengi sfldinni þóknast að vera á miðunum. Hér vöru því i miklir þjóðarbagsmunir í veði. Nú reyndi á þjóðliollustu far- manna og þeir stóðust prófið. í gærkvöldi ákvað stjórn og samninganefnd Sjómannafélags ins að leyfa olíuflutningaskip- unum Stapafelli og Kyndli að fara eina ferð hvoru með olíu farm á síldarhafnirnar. Stapafell fer norður um land og mun lesta olíu frá Húsavík vík og eitthvað áfrám austur um. Kyndill fer hins vegar suð- ur um land til Reyðarfjarðar og lestar olíu þar og síðan norð ur um Austfjarðahafnimar. Strax og þessi ákvörðnn hafði Framh. á 3. síðu að kvöldi mánudagsins, eða að loknu kvöldverðarboði að Hótel Borg. Hann fer því ekki til Græn lands, eins og ráðgert hafði ver- ið, heldur beint heim til Banda- rikjanna, en þar bíða hans áríð- andi störf að morgni þriðjudags. Þá hefur verið ákveðið, að eft- ir hádegisverðinn að Hótel Sögu, afhendi varaforsetinn Gunnari Friðrikssyni, forseta Slysavarna- félags íslands, þrjár færanlegar talstöðvar sem gjöf til félagsins. Einnig mun hami eftir ferðina til Þingvalla, heimsækja Háskóla ís- lands, þar sem hann færir rektor bókagjöf til hinnar nýju vísinda- deildar skólans. Eins og áður hefur verið g^tið 1 hcr í blaðinu, verða um 40 manns í fylgdarliði Johnson. Eru þar meðal annars blaðamenn og ljós- myndarar, öryggisverðir, ritarar og fleira starfsfólk varaforsetans. Islenzk stjórnarvöld munu hafa frétt í gær um breytinguna í sambandi við brottför varafor- setans héðan, og hefur því þessi ákvörðun verið tekin með stutt- um fyrirvara, en hin raunverulega ástaeða hefur ekki verið látin uppi. Harður árekstur varð milli tveggja bifreiða á mótum Lönguhliðar og Miklubrantar laust fyrir kl. 5 í gærdag. — Strætisvagn, Bústaðahverfi, og vörubifreið af Akranesi í e-.igu Þórðar Þ. Þórðarsonar sk illu saman með þeim afleiðing- um, að tólf manns í strætis- vagninum hlutu meiðsli. Strætisvagninn ók austur Miklubraut, en vörubitreiðin norður Lönguhlíð. Árelcstur- ín varð við gatnamótin og lentu bifreiðarnar á Ijósa- staur, þá á þriðju bifreiðioni, sem stóð á austurhluta Löngu hlíðar norðan við gatnaraót. Loks stöðvuðust þær á eyj- unni milli akreinanna. Átta farþegum úr sirætis- vaguinum var þegar elcið af slysstað á Slysavarðstofuna. 2 konur leituðu síðar urn dag- inn læknishjálpar að auki vegna slyssins. Vagnstióri strætisvagnsins mun og hafa meiðzt, en stjóruanda V( ru- bílsins sakaði ekki. — Allir reyndust farþegarnir lítið meiddir. Myndirnar eru frá árekstursstaðnum. Samib i nóit? SÁTTAFUNDUM í farmmna- deilunni er haldið áfram. Eins og sagt var frá í Alþýðubiaðiru í gær hófst sáttafundur í Alþingisliús- inu kV 8,30 í fyrralcvi'lti. Sá fundur stóð langt fram á nótt. — Samkomulag náðist ckki. Kl. 4 siðd. í gær hcfst svo sáttafundur að nýju. Þegar Haðið fór í prentun scint í ga:rl:völdi stóð fundurinn ennþá yfir. Þá var skárra útlit fyrir að samkomulag tækist með deiluaðilum. 44. árg. — Laugardagur 14. september 1963 — 197. tbl. EKKI VIÐ HÁSKÓLABÍÖ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.