Alþýðublaðið - 14.09.1963, Side 7

Alþýðublaðið - 14.09.1963, Side 7
I FRÆGÐ - BJÓ ISKUGGA ALVEG þangað til nú nýlega hefur bandaríski kvikmyndaleik- arinn Sþencer Tracy verið álitinn fyrirmyndar eiginmaðúr. Hann var jafnan í fylgd með konu sinni, Louise Treadwell, og þau virtust bæði glöð og hamingjusöm. Nú hefur almenningur fengið að vita að' bros þeirra og hamingja voru aðeins á ytra borði. Fyrir skömmu lagðist Spencer Tracy á sjúkrahús eitt í Los Angel es vegna lungnasjúkdóms. Og Hinn barngóði Spencer sjúkdómurinn reyndist mjög alvar legur. Svo alvarlegur var hann, að Spencer Tracy fékk ekki leyfi til að taka á móti gestum . . nema konu sinni og leikkonunni Kather ine Hepburn. Blaðamennirnir í Hollywood fengu nóg að gera, þegar þeir kom ust á snoðir um þetta. Tvær kon- ur við sjúkrabeð Tracys. Það Var ærið umhugsunarefni. Og smám saman skýrðist málið. Það kom nefnilega í ljós, að hinn 63 ára gamli kvikmyndaleikari hafði um árabil lifað tvöföldu lífi, án þess að nokkur hefði grun um það, nema þeir, sem hlut áttu að máli. Spencer Tracy hafði lifað í hjóna bandi með eiginkonu sinni Louise Treadwell og jafnframt átt Kat- herine Hepurn fyrir ástmey. En hvers vegna skildi hann ekki við Louise? Og hvers vegna í ó- sköpunum giftist hann ekki Kat- herine? Svörin við þessum spurn ingum eru ekki eins augljós og ætla mætti. En þegar þau urðu heyrinkunn breyttist kalinn, sem um sinn hafði vaknað í garð Trac- ys, þegar kunnugt varð um tvö- falt liferni hans, í djúpa samúð. Louise og Spencer eignuðust son, sem hét Jóhn. Spencer var ékaflega hrifinn af honúm, því að hann er maður barngóður. En Um það bil tíu mánuðum eftir fæð- ingu barnsins kom Tracy einu sinni að konu sinni, þar sem hún sat og grét ákaft. — Ég hef ekki enn getað feng- ið mig til að segja þér sorgarfregn, sagði Louise, þegar maður henn ar gekk á hana. John sonur okkar er daufdumbur. Ég hef lengi ver- ið hrædd um það, en nú er ég viss; Hann heyrir ekkert — og mun aldrei getað talað. Þetta fékk ógurlega á tilfinn- ingamanninn Spencer Tracy. Iiann iagðist í botnlaust hugaryíl. Og til að sefa sorg sína fór hann að drekka. Og hann drakk mikið. Smám saman veiktust kraftar hans, hann fitnaði óhóflega og fékk útlit sídrykkjumannsins. i Þar kom að hinn daufdumbi son ur eignaðist litla systur. Susan var hún skirð, og hún varð sem- betur fer alveg eins og önnur börn. Þetta gat þó ekki að fullu læknað áhyggjur Spencers. Hann hætti þó að drekka en sökkti sér þess í stað niður í starf sitt. Hann varð ríkur og frægur. En hann var ekki hamingjusamur maður. Einn góðan veðurdag árið 1941 varð Katherine Hepburn á vegi Spencers Tracy. Þau áttu að leika saman í kvikmynd. Og það varð ást við fyrstu sýn. Spencer og Kat- herine gerðust góðir vinir og hann sagði henni allt af létta af sírium högum. Katherine var kona, sem skildi hann. — Hún vann bæði ást hans og trúnað og gat stillt hinn sára harm, er í brjósti hans bjó. Aldrei varð þó úr því að þau Katherine stofnuðu til hjúskapar. í hvert sinn, sem eitthvað slíkt bar á góma hristi Spencer höfuð ið og sagði: ---Það kemur ekki til mála. Ég verð að hugsa um drenginn minn, hami John. Hann þarf bæði á móð ur og föður að halda? Og hvað verður um hann ef við hjónin skilj um? Frú Tracy. komst fljótt að því, hvar fiskur lá undir steini. -En það hvarflaði ekki heldur að henni að sækja um skilnað. Tillitið'til Johns var henni fyrir öllu. Þessir þrímenningar, Spencer, Louise og Katherine hafa sem sé orðið að færa sínar þungu fórn- ir. En nú er John Tracy orðinn fullorðinn maður og það sem meira er: Hann hefur lært að gera sig skiljanlegan á sinn hátL Og nú er hann í fastri atvinnu hjá Disney. Laugardagur 14. september 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tóníeikar. — 8,30 Fréttir. — 8,35 Tónleikar. — 10.10 Veðurfregnir). 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar), 13.00 Óskalög sjúklinga (Kristín Anna Þórarinsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. — (15.00 Fréttir). 16.30 Veðurfregnir. ....... Fjör í kringum fóninn: Úlfar Sveinbjörnsson kynnir nýjustur dans- og dægurlögin. 17.00 Fréttir. — Þetta vil ég heyra: Séra Hjalti Guðmundssot* velur sér hljómplötur. 18.00 Söngvar í léttum tón. 18.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 18.55 Tilkýnningar. 19.20 Veðurfregnir. —- 19.30 Fréttir. 20.00 „Gróðurhúsið", smásagá eftir Anders Bodelsen, í þýðingrt Stefáns Jónssonar rithöfundar (Steindór Hjörleifsson leikari). 20.15 , írskur tenór og þýzkur. barýtón: Guðmundur Jónsson minnir hlustendur á söngvarana John McMormack og Heinrich Schlusnus. ....... 21.00 Leikrit: Þættir úr „Paradísarheimt“ eftir Halldór Kiljan Lax- nes, saman teknir af Lérusi Pálssyni fyrir leiksýninguna Kílj anskvöld 1961 og stjórnað af honum. Leikendur: Helga Val- týsdóttir, Rúrik Haraldsson, Haraldur Björnsson, Valur Gísla son og Lárus Pálsson. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög. — 24.00 Dagskrárlok. A vélarvæng yfir Ermarsund Katherine Hepbrun og Spencer Tracy í myndinni „Fagir brúðarinn ar“, þar sem þau léku aðalhlutverkin. 32 ÁRA gömul ensk stúlka, II- ana Campbell, vann nýlega þá heíjudáð, að verða fyrst’a mann- eskja í veraldarsögunni, sem fer yfir Ermarsund standandi á flug- vélarvæng. Kunnur flugmaður og verðlauna hafi, Dennis Hártas, stýrði vél- inni, sem var lítil tvíþekja, en I’.ana lét binda sig fasta á annan flugvélarvænginn. í köldum gusti og þungum loftþrýstingi hélt Ilana þrekraunina út í 80 mínútur. Á eftir vél Hartas fór önnur vél, sem vera skyldi til taks, ef eitt- hvað yrði að. Einu sinni á leiðinni yfir sund ið, lenti flugvélin í slæmum svipti vindi. Að öðru leyti gekk ferðin hið bezta og Ilana var hraust og- kát að leiknum lokum. Fi-akkar þeir, sem urðu vitni að því er flugvélin kom x’fir sunct- ið með konuna standandi á væÁyrk um urðu furðu lostnir. Slíkt höMi* þeir aldrei séð fyrr. Og þeir hrós uðu ákaft hugrekki og þreki Ilönujj þegar hún steig niður af flugvel' arvæng litlu tvíþekjunnar. tiUAJ 14.. sept. 19^3 % .PX T*|

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.