Óðinn - 01.09.1912, Qupperneq 1
OÐINN
Eggert Pálsson prestur.
Hann er fæddur 6. október 1864 í Sogni í
Kjós. Foreldrar hans voru Páll Einarsson bóndi
þar og kona hans Guðrún Magnúsdóttir Waage
bónda í Stóru-Vogum
Jónssonar. Eggert út-
skrifaðist úr latínu-
skólanum 1886 og af
prestaskólanum 1888.
Ári síðar fjekk hann
veitingu fyrir Breiða-
bólstað i Fljótshlíð og
vígðist þangað 11. ág.
1889. Var liann þá
nýkvæntur, en kona
hans er Guðrún dóttir
Hermanns Jolinsens
sýslumanns á Velli í
Rangárvallas. Hafa
þau síðan búið á
Breiðabólstað, og frá
1902 hefursíra Eggert
veriðþingmaðurRang-
æinga.
Síra Eggert Páls-
son er talinn góður
prestur og hefur verið
mjög vinsæll hjá sókn-
arbörnumsínum,enda
varð hann brátt hjer-
aðshöfðingi þar eystra
og forvigismaður bæði
í sveitastjórnarmálum
og landsmálum. Hann
er búsýslumaður mikill. Segir kunnugur maður
svo frá, að hann liafi tekið við Breiðabólstað 1889
ineð 2 þús. kr. skuld á baki eftir námið, og brauð-
ið rýrt um 700 kr. frá því sem áður var. Og
prestsekkja alla tíð í brauðinu síðan, sem tekur
l/io af tekjunum. Jörðin stærðarskrokkur og karga-
þýfð. En síra Eggert hefur á þessum árum sljett-
að um 20 dagsláttur og girt alt túnið (80 — 90 dag-
sláttur) með fimmfaldri girðingu og þrefaldri með
undirhleðslu. Bygt lieyhlöðu fyrir 7—800 hesta,
með íjósi á aðra hlið og hestliúsi á hina. Bygt
íbúðarhús, sem kostað liefur um 7 þús. kr., og tók
til þess upphaflega 4 þús. kr. lán á prestakallið,
ernú munvera eftir af
um 2 þús. kr. Fyrstu
árin bjó hann eins og
aðrir þar um sveitir
með öllum þremur
tegundum gripa: sauð-
fje, hrossum og kúm,
en hætti við sauðfjár-
búskapinn 1901 og
bygði þá tvær hjá-
leigur, sem undir voru
baldnar, af því að
liann þóttist sjá, að
sauðfjáreignin borgaði
sig ekki. Hefur síðan
að eins haft kýr og
liross. Mun nú láta
nærri að hann haíi
um 25 nautgripi og
um 30 hross. Varð
hann fyrstur manna
til þess þar á Suður-
Iandsundirlendinu að
hætta við sauðfjárbú-
skapinn, en siðan hafa
fáeinir bændur tekið
það eftir. Hann var
einnig sá fyrsti, sem
byrjaði á því að
plægja og herfa jörð
með grasrótinni, bera aðeins áburð á og láta gróa
upp af sjálfu sjer á 2—3 árum, og hafa fjölda
margir tekið það upp síðan.
Frú Guðrún, kona síra Eggerts, er mesta
myndarkona í öllum greinum. I’au hafa eignast
eina dóttur, sem Ingunn heitir, nú 16 ára, en aðra
stúlku, jafngamla, hafa þau einnig alið upp, sem
Eggert Pálsson prestur.